Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 68
ATH kl. 17
Sýning Hugleiks Dagssonar á
nýjum teikningum opnar í dag á
efri hæð tónleikastaðarins
Organ kl. 17. Sýningin kallast
XXX og stendur til 15. október.
Myndlistarmaðurinn
Ragnar Kjartansson opnar
sýninguna Guð í Nýlista-
safninu á morgun. Á sýn-
ingunni er eitt umfangs-
mikið verk. Ragnar sérvann
verkið fyrir Nýlistasafnið í
samvinnu við samtímalista-
stofnunina Thyssen-Bor-
nemisza Art Contemporary
í Vínarborg og var Franc-
esca von Habsburg, sem er
í forsvari fyrir þá stofnun,
sérlegur velgjörðarmaður
verkefnisins.
Ragnar lýsir verkinu sem endur-
tekningu. „Þetta er gjörnings-
myndbandsverk sem sýnir mig og
tólf manna hljómsveit sem stýrt er
af Davíð Þór Jónssyni, en hann
samdi með mér tónlistina í verk-
inu. Ég er söngvari hljómsveitar-
innar og ég endurtek í sífellu sömu
setninguna. Tónlistin breytist og
nær hápunkti en línan sem ég syng
er alltaf sú sama, þannig að við
áhorfendum blasir síbreytileg end-
urtekning.“
Heiti sýningarinnar er að hluta
til sprottið úr því að verkið tekst á
við þær tilfinningar sem fylgja því
að missa trúna. „Ég var trúaður
þegar ég var yngri en svo hefur
þessi trú fjarað út eftir því sem ég
fullorðnast. Það er tómleg og döpur
tilfinning að missa guð. Það er líka
eitthvert mikilmennskubrjálæði í
þessum titli sem ég kann vel við.
Síðan vinnur titillinn á einhvern
spennandi hátt með innihaldi
verksins. Mér finnst ekki alveg
rétt að útskýra svo stóran titil.
Hann kallar alveg á nógu mörg
hughrif í sjálfu sér.“
Hljómsveitin leikur tónlist sína í
litríku umhverfi, en Ragnar pant-
aði 400 metra af bleiku satíni til
þess að klæða veggi salarins þar
sem hún leikur. Mætti ætla að
þessi litagleði gæfi til kynna kát-
ínu, en svo er ekki. „Þetta er sorg-
legt verk, þrátt fyrir hljómsveit-
ina og bleika litinn. Verkið sýnir
okkur sorg í bleiku satíni.“
Sorg og trú eru sígild viðfangs-
efni listamanna. Í texta eftir Jón
Atla Jónasson sem birtist í sýning-
arskrá sýningarinnar er minnst á
það að Ragnar sæki mikið í mynd-
list og menningu nítjándu aldar-
innar og nýti hana í sín eigin verk.
„Þetta er elegant staðhæfing hjá
Jóni. Það er alveg rétt að ég sæki
mikið innblástur í myndlist sem
var unnin fyrir heimsstyrjaldirnar
tvær og er nítjánda öldin er mér
sérlega hugleikin. Á þessum tíma
hafði fólk ekki almennt enn misst
trúna á mannkyninu, ef svo má
segja. Ég er sjálfur alinn upp eftir
þau umskipti og því finn ég ein-
hvern fallegan naívisma í þessum
gömlu verkum sem er ekki til í
nýrri list. Ekki það að ég hafi eitt-
hvað á móti samtímalist, hún er
frábær og ég tek náttúrulega þátt í
henni sjálfur. Það mætti segja að
ég sækti í eldri list til að finna mér
innblástur og til að vinna með
minni hennar á nýjan hátt. En ég
er ekki haldinn hreinræktaðri for-
tíðarþrá,“ segir Ragnar að lokum.
Nýlistasafnið er til húsa að
Laugavegi 26 og stendur sýningin
Guð yfir til 4. nóvember.
Dönsk skáld ósátt
Danska akademían er hópur
danskra skálda og rithöfunda.
Aðeins þeir sem útvaldir eru af
samtökunum fá inngöngu í þau
og eru þá ævimeðlimir.
Akademían sendi í vikunni frá
sér yfirlýsingu, sem eitt og sér
þykir fréttnæmt, þar sem sam-
tökin sendu síðast frá sér yfirlýs-
ingu þegar fatwa-dómur féll yfir
Salman Rushdie fyrir átján árum
síðan. Það er því deginum ljósara
að samtökin láta ekki í sér heyra
nema þau hafi sterkar skoðanir á
málunum.
Yfirlýsingin nýja er fordæm-
ing á menningarstefnu danska
ríkisútvarpsins, DR. Skáldin hafa
áhyggjur af minnkandi hlut bók-
mennta og leiklistar í dagskrá
ríkismiðilsins og sérlega af því
að minna er lesið upp í útvarpi af
skáldskap og ljóðum en áður.
„DR hefur skipt sköpum varð-
andi aðgang almennings að
danskri skáldskaparlist. Hlust-
endur hafa haft möguleika á að
upplifa bókmenntir í bílnum eða
við húsverkin eða við hverjar
þær kringumstæður þar sem
maður hlýðir á útvarp. Þetta
hefur skipt danskar bókmenntir
máli,“ segir Jens Smærup Søren-
sen, ritari og talsmaður akademí-
unnar.
Samtökin hafa ekki einvörð-
ungu áhyggjur af stöðu bók-
mennta í útvarpi heldur líka í
sjónvarpi, enda tók sjónvarps-
stjórn DR nýverið þá ákvörðun
að gefa upp á bátinn sérhæfða
bókmenntaþætti og koma bók-
menntaumfjöllun fyrir í þáttum
sem fjalla um menningu á breið-
ari grundvelli. „Það vantar að
sjónvarpið fjalli af dýpt um lista-
og menningarlíf Danmerkur. Við
viljum sjá krefjandi umræður
um bókmenntir sem gefa meira
af sér en þeir snöggsoðnu gagn-
rýnendaþættir sem nú eru á dag-
skrá.“ segir Sørensen.
Torben Smidt, yfirmaður
menningarumfjöllunnar hjá DR,
hefur í kjölfar yfirlýsingarinnar
ákveðið að bjóða meðlimum aka-
demíunnar til fundar við sig til
þess að gefa þeim færi á að útlista
frekar umkvörtunarefni sín.
„Mér þykir það að sjálfsögðu
leitt að akademían finni sig knúna
til að senda þessa yfirlýsingu frá
sér. Mér þykir hún einkennast af
neikvæðni og bölsýni sem ég
kannast ekki við úr vinnu-
umhverfi mínu.“
Í umræðunni um miðlun menn-
ingarefnis segir Smidt fleira
koma til en einvörðungu áhuga-
leysi fjölmiðlafólks. DR vill til að
mynda halda áfram með upplest-
ur bókmennta í útvarpi, en því
miður hefur stofnunin ekki náð
samningum við rithöfunda um
verðlagningu upplestrarréttinda.
Um helgina verður haldin stór sýning á
íslensku handverki og listiðnaði í
Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar verður að
finna fjölbreytta íslenska hönnun,
handverk og listiðnað. Sambærilegur
viðburður var haldinn í fyrra og tókst
afar vel.
Það eru samtökin Handverk og
hönnun sem standa fyrir og skipuleggja
þennan viðburð. Samtökin eru til húsa í
Aðalstræti 10 og hafa það að markmiði
að efla handverk, hönnun og listiðnað
og auka gæðavitund á þessu sviði. Enn
fremur vilja samtökin auka skilning
almennt á menningarlegu, listrænu og
hagnýtu gildi handverks, hönnunar og
listiðnaðar með fjölbreyttu kynningar-
starfi. Má eflaust líta á sýninguna í
Ráðhúsinu sem lið í því starfi.
Sérstök valnefnd á vegum samtak-
anna valdi 57 þátttakendur sem eiga
verk á sýningunni. Meðal þess sem þar
má berja augum eru skartgripir,
fatnaður, húsgögn og ýmsir nytjahlutir
unnir úr fjölbreyttum efnivið, til að
mynda horni, beini, roði, gleri, tré og
fleiru.
Listamennirnir sjálfir verða á
staðnum til þess að kynna vörur sínar.
Þetta er því kjörið tækifæri fyrir
almenning til að kynnast fjölbreyttu
íslensku handverki og listiðnaði.
Sýningin hefst á föstudag og er opin
fram á mánudag. Nánari upplýsingar
um sýninguna og það handverksfólk
sem leggur til gripi á hana má nálgast á
www.handverkoghonnun.is.
Handverk í Ráðhúsinu
Kl. 10:00 Lei Yunxia, sendifulltrúi í Kínverska sendiráðinu, staðgengill sendiherra
Setningarávarp
Kl. 10:20 Geir Sigurðsson, forstöðumaður Asíuvers Íslands – ASÍS
Draumur, vaka og óvera: Um daóíska lífslist
Kl. 10:40 Arnþór Helgason, varaformaður Kínversk-íslenska menningarfélagsins
„Austrið er rautt“
Kl. 11:00 Steingrímur Þorbjarnarson mannfræðingur
Kínverskt ritmál: Táknheimur til viðbótar tungumálinu
Kl. 11:20 Pallborðsumræður og spurningar úr sal
Kl. 11:35 Kaffihlé
Kl. 12:00 Hjörleifur Sveinbjörnsson þýðandi
En þá verðurðu að lesa næsta kafla: Kínversk frásagnarlist
Kl. 12:20 Dagur Kristjánsson, fyrrverandi námsmaður í Kína
Einn á móti milljarði
Kl. 12:40 Pallborðsumræður og spurningar úr sal
Kl. 13:00 Málþingi slitið
Fundarstjóri er Grétar Már Sigurðsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu
Málþingið fer fram á íslensku og er öllum opið.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með tölvupósti á salurinn@salurinn.is eða í síma 5 700 400.
Í KÓPAVOGI 29. SEPTEMBER - 7. OKTÓBER 2007
Auglýsingasími
– Mest lesið