Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 80
Koma ekki sjálfum sér á óvart Stefán Logi Magnússon, markvörður KR, vakti mikla athygli fyrir góða frammistöðu á milli stanganna eftir að hann vann sér sæti í byrjunarliði KR um mitt sumar. KR-liðið tapaði aðeins tveimur leikjum, á móti Val og FH, af síðustu ellefu leikjum sínum í deildinni eftir að Stefán Logi kom til skjalanna og náði með naum- indum að bjarga sér frá falli. „Auðvitað hefðum við KR- ingar viljað vera að berjast í öðrum hluta deildarinnar og þetta var ekki skemmtilegt ástand en lærdómsríkt engu að síður og við náðum sem betur fer að vinna okkur út úr því,“ sagði Stefán sem var sáttur með að fá tæki- færi í liðinu og ánægður með við- horf Kristjáns Finnbogasonar sem varði markið fyrri hluta sumars. „Teitur Þórðarson gaf mér tæki- færið og ég greip það með þökk- um og Kristján Finnbogason tók því af fagmennsku og hjálpaði mér mikið. Hann var auðvitað ekki sáttur við að missa sæti sitt í liðinu enda eru allir alvöru íþrótta- menn ósáttir þegar þeir missa sæti sitt og ég skil hann vel,“ sagði Stefán sáttur með lífið hjá KR. „Mér líður mjög vel hjá KR en ég ákvað samt að nýta mér upp- sagnarákvæði í samningi mínum við liðið og er með lausan samning eins og er, en það er fullur hugur hjá mér og KR að halda samstarf- inu áfram og finna lausn á málum. KR er eina liðið á Íslandi sem kemur til greina hjá mér og ég er orðinn ansi mikill KR-ingur á þessum stutta tíma hjá liðinu.“ Stefán viðurkenndi þó að auð- vitað leitaði hugurinn aðeins út fyrir landsteinana. „Það er auðvit- að draumur allra að fara út í atvinnumennsku og það er bara spurning um að vera réttur maður, á réttum stað og á réttum tíma. Ég hef kynnst þessu sjálfur hvernig er að vera atvinnumaður, en ég var náttúrlega mjög ungur þá og tel mig vera betur undirbúinn núna ef tækifærið gæfist,“ sagði Stefán sem kvaðst engu að síður alveg rólegur yfir öllu tali um atvinnumennsku og mögulegu landsliðssæti. „Ég ætla bara að einbeita mér að því að æfa vel og spila vel fyrir KR og ef ég fæ annað tækifæri á atvinnumennsku, þá mun ég skoða það vel, en ég er ekkert að flýta mér. Sama gildir í raun um lands- liðið, að ef maður er nógu góður þá verður maður valinn, annars ekki og ég er ekkert að hugsa um það núna.“ Stefán telur að hann þurfi bara að einbeita sér að sjálfum sér og að hann geti enn bætt sig mikið. „Það er yfirleitt talað um að mark- menn séu á toppi ferilsins á aldr- inum 28-33 ára, þannig að ég ætla bara að halda áfram að bæta mig og er í raun og veru enn ungur að „markmannsárum“ þótt maður sé farinn að eldast, sagði Stefán í léttum dúr. Stefán Logi Magnússon, markvörður KR, hefur verið valinn leikmaður umferða 13-18 í Landsbankadeild karla í fótbolta samkvæmt mati Fréttablaðsins. Topplistar í 13. til 18. umferðar Topplistar í 13. til 18. umferðar Það eru tveir Norður- landabúar sem eru í stórum hlut- verkum hjá ítalska úrvalsdeild- arliðinu Lottomatica Roma. Þetta eru jafnaldrarnir Jón Arnór Stefánsson og Daninn Christian Drejer sem hafa báðir reynt sig hjá mörgum sterkum liðum í Evrópu. Jón Arnór er á sínu öðru ári hjá Rómarliðinu en Drejer kom þangað frá VidiVici Bologna í sumar. Í fyrsta leiknum, sem Lottom- atica vann 84-79 í framlengingu gegn Cimberio Varese, voru þeir báðir í byrjunarliðinu og áttu báðir ágætan leik. Jón Arnór var með 10 stig, 6 fráköst og 5 stoð- sendingar í þessum fyrsta leik tímabilsins en Drejer bætti við 11 stigum. Það eru alls sjö útlendingar í Rómarliðinu því auk þeirra Jóns Arnórs og Drejer eru þar Sló- veninn Erazem Lorbek, Króatinn Roko Ukic og Bandaríkjamenn- irnir Ray Allan, David Hawkins og Erik Daniels. Lorbek skoraði 13 stig í fyrsta leiknum en Lott- omatica lék þá án allra Banda- ríkjamanna sinna. Jón Arnór spilar við hlið Drejer Steve Bruce, stjóri Birmingham, viðurkenndi að mikil óvissa ríkti um samnings- mál sín eftir eigandaskipti hjá liðinu. „Ég samdi við fyrrverandi eiganda Birmingham í maí síðastliðnum, en með yfirtökunni hefur það allt saman verið sett í bið og ég á von á svari fyrir helgi. Ég tel að ég sé rétti maðurinn í starfið, en það verður að koma í ljós hvort nýir eigendur séu á sama máli,“ sagði Bruce sem hefur stýrt Birmingham í að verða sex ár, en liðið er í 13. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. - Óviss um hvort ég verð rekinn Stuðningsmaður skosku meistaranna í Celtic hefur verið dæmdur í bann eftir að hafa vaðið inn á völlinn og stuggað við Dida, markverði AC Milan, í leik liðanna í Meistaradeildinni á dögunum. „Celtic tekur alvarlega á svona hegðun og umræddur stuðningsmaður hefur því verið dæmdur í lífstíðarbann á öllum leikjum Celtic bæði á heimavelli og útivöllum,“ sagði Peter Lawwell, stjórnarformaður Celtic. UEFA ætla hvorki að ógilda sigur Celtic í leiknum né heldur að aðhafast eitthvað út af leikrænum tilburðum Dida, sem þótti gera heldur mikið úr atvikinu. - Í lífstíðarbann á leikjum Celtic
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.