Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 82
Þó svo flest lið í Lands-
bankadeildinni séu búin að ganga
frá sínum þjálfaramálum á enn
eftir að fylla í nokkrar eftirsóttar
stöður í tveim efstu deildunum.
Það er allt útlit fyrir mikinn þjálf-
arakapal næstu daga sem erfitt er
að sjá fyrir endann á.
Stærsta starfið er eðlilega hjá
KR en eins og fram kemur er helst
talið að Logi Ólafsson eða Heimir
Guðjónsson taki við KR-ingum.
Svo gæti farið að þjálfarastaðan
hjá FH losni ákveði Ólafur Jóhann-
esson að hætta. FH er talið vilja fá
Heimi í stað Ólafs ef hann hættir.
Fari svo er hætt við að einhver
félög beri víurnar í hinn sigursæla
þjálfara FH. Ákvörðun Ólafs gæti
því haft mikil áhrif á framhaldið í
þjálfarakaplinum.
Svo hafa verið vangaveltur um
hvort Ólafur Kristjánsson sé að
bíða eftir tækifæri hjá annaðhvort
KR eða FH en hann hefur ekki enn
gengið frá sínum málum við
Breiðablik þó svo Breiðablik sé
búið að semja upp á nýtt við lykil-
menn liðsins.
Framarar eru að leita að arftaka
Ólafs Þórðarsonar og í því sam-
bandi eru helst nefndir Þorvaldur
Örlygsson og Daninn Jesper Toll-
efsen sem gerði góða hluti með
Leikni í sumar. Jesper og umboðs-
maður hans sóru af sér að hafa
rætt við Framara en sá kvittur
komst á kreik að Fram hefði rætt
við Danann fyrir nokkru síðan.
Þorvaldur sagðist liggja undir
feldi og myndi gefa Fjarðabyggð
svar um hvort hann hygðist halda
áfram með liðið eftir helgi. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
verður það svar neikvætt og ekki
er loku fyrir það skotið að Þor-
valdur haldi í bæinn þar sem bæði
Fram og Víkingur hafi augastað á
honum.
Víkingar eru annars einnig með
augastað á Ólafi Þórðarsyni sem
og Atla Eðvaldssyni eftir því sem
Fréttablaðið kemst næst.
Stjarnan er einnig í leit að þjálf-
ara eftir að liðið rak Lárus Guð-
mundsson. Nafn Atla Eðvaldsson-
ar hefur einnig verið nefnt í því
sambandi sem og Ólafs Þórðar-
sonar og Jespers Tollefsen.
Það verður áhugavert að sjá
hvernig þessi flókni þjálfarakap-
all fer á endanum.
Hart barist um feitustu bitana á þjálfaramarkaðnum
Það bíða margir
spenntir eftir að sjá hvernig lið
Boston Celtics spilar með nýju
mennina sína Kevin Garnett og
Ray Allen. Fyrsti leikur liðsins
eftir breytingarnar verður gegn
Toronto Raptors í æfingaleik í
Róm á morgun.
„Þetta er glænýtt lið og við
erum enn að læra inn á hver
annan. Leikurinn gegn Toronto
verður kjörið tækifæri fyrir fólk
að koma og sjá tvö af betri
liðunum í NBA-deildinni,“ sagði
Paul Pierce sem hefur verið
yfirburðamaður í liði Celtic
undanfarin ár. Að þessu sinni
hefur Pierce fengið mikla hjálp í
þeim Garnett og Allen en allir
þrír hafa verið stigahæstir hjá
sínum liðum undanfarin sex
tímabil.
„Við vitum vel að við getum
skorað en þurfum fyrst og fremst
að bæta vörnina hjá okkur,“ bætti
Pierce við.
Frumsýning á
nýju liði Boston
Ragnar Óskarsson er
einn þriggja leikmanna sem koma
til greina sem besti leikmaður
frönsku úrvalsdeildarinnar fyrir
septembermánuð. Það verður
kosið um sigurvegarann á heima-
síðu frönsku deildarinnar.
Ragnar skoraði 37 mörk í 4
leikjum mánaðarins sem voru
einnig hans fyrstu fyrir Nimes.
Ragnar varð eins og kunnugt er
markakóngur og meistari á sínu
síðasta ári með Ivry í fyrra.
Ragnar hefur byrjað mjög vel
með Nimes en hann nýtti 60 pró-
sent skota sinna utan af velli í
leikjunum fjórum og öll tólf vítin.
Nimes hefur unnið tvo af fjórum
leikjum sínum og er sem stendur
í 9. sæti. Hinir tveir leikmennirn-
ir sem koma til greina sem bestu
leikmenn deildarinnar í septemb-
er eru Daouda Karaboue, fransk-
ur markvörður Montpellier, og
Nenad Vuckovic, serbnesk skytta
hjá Chambéry.
Ragnar er markahæstur í deild-
inni það sem af er en Vuckovic er
í 4. sæti með 30 mörk í 4 leikjum.
Karaboue er aðalmarkvörður
toppliðsins í Montpellier sem
hefur ekki tapað leik til þessa.
Það er hægt að kjósa á heima-
síðu franska handboltans á www.
lnh.fr en kosningunni lýkur 10.
október. Ragnar mætir einmitt
Vuckovic og félögum hjá Cham-
béry í fimmtu umferðinni í kvöld.
Ragnar Óskarsson tilnefndur N1-deild karla í handbolta:
Evrópukeppni félagsliða:
Billy Davies, stjóri
Derby County, hefur fulla trú á
liði sínu þrátt fyrir dræma stöðu
liðsins. „Ég hef fulla trú á því að
við verðum betri með tímanum
eftir að við náum að venjast lífinu
í ensku úrvalsdeildinni. Ég er
mjög sáttur við að við séum enn í
baráttunni ef ég á að vera
raunhæfur,“ sagði Davies
kokhraustur, en Derby County er
engu að síður á botni deildarinnar
með fimm stig og hefur meðal
annars þurft að sætta sig við 4-0
tap gegn Tottenham, 5-0 tap gegn
Arsenal og 6-0 tap gegn Liverpool
það sem af er leiktíð. -
Erum enn með
í baráttunni
Íslandsmeistarar Vals í
Landsbankadeild kvenna eru að
undirbúa sig fyrir leiki í annarri
umferð Evrópukeppninnar sem
fara fram 11. til 16. október
næstkomandi og fá í kvöld gott
tækifæri til að stilla saman
strengina.
Valsliðið mætir þá A-landsliði
kvenna í æfingaleik í hinni nýju
knattspyrnuhöll í Kórnum í
Kópavogi. Leikurinn hefst
klukkan 20.00 og hefur landsliðs-
þjálfarinn Sigurður Ragnar
Eyjólfsson tekur nýja leikmenn
inn í hópinn sinn en átta Vals-
stelpur voru í síðasta landsliðs-
hópi hans.
Valskonur gegn
landsliðinu
Haukar unnu Akureyri
á gríðarlega erfiðum útivelli í gær
27-22 í N1-deild karla í handbolta.
Lokatölurnar gefa þó ekki rétta
mynd af leiknum sem var hraður
og góð skemmtun í frábærri
umgjörð.
Bæði lið gerðu sig sek um ara-
grúa af mistökum í upphafi leiks.
Fjölmargir boltar töpuðust vegna
ónákvæmra sendinga en á bakvið
þéttar varnir voru markmenn
liðanna í banastuði, sérstaklega
Sveinbjörn í marki Akureyrar.
Það var því lítið skorað í kafla-
skiptum fyrri hálfleik. Haukar
komust í 2-0 en Akureyri sótti
síðan í sig veðrið og komst í 5-3.
Haukarnir skoruðu þá sex mörk
gegn einu en þá kom aftur slæmur
kafli hjá gestunum sem leiddu þó
10-11 í hálfleik.
Það var stál í stál í síðari hálf-
leik og jafnt var á flestum tölum.
Bæði lið léku betur en í fyrri hálf-
leik og þegar skammt lifi leiks var
staðan 22-22. Haukar sýndu þá
allar sínar bestu hliðar og skoruðu
tvö góð mörk á meðan Akureyr-
ingum fannst halla á sig í dóm-
gæslunni.
Akureyringar fengu nokkur
tækifæri til að minnka muninn í
eitt mark, síðast þegar rúm mín-
úta lifði leiks en það tókst þeim
ekki. Þess í stað kláruðu Haukar
hið krefjandi verkefni norðan
heiða og eru því áfram í efsta sæti
deildarinnar ásamt Fram. Þjálf-
arinn Aron Kristjánsson var
brosmildur í leikslok.
„Fyrst og fremst var þetta góð
liðsheild og baráttuandinn var frá-
bær. Við gerðum sjálfum okkur
þetta mjög erfitt. Það er alltaf
gaman að koma á Akureyri, hér er
góð umgjörð og svona er skemmti-
legast að vinna. Við vissum að
okkar biði sært dýr eftir tap þeirra
á heimavelli og svo stórt tap gegn
HK. Þeir eru með fínt lið og við
erum mjög ánægðir með sigur-
inn,“ sagði Aron. Haukar eru með
sjö stig eftir fjóra leiki og eru enn
án taps. „Við höfum byrjað mjög
vel. Við vissum að það yrði erfitt
að rétta við Haukaskútuna eftir
margra ára velgengni en þetta
gengur vel. Liðsheildin er mjög
góð og það er allt að smella innan
sem utan vallar,“ sagði Aron.
Rúnar Sigtryggsson, annar
þjálfari Akureyrar, var mjög
ósáttur með dómgæsluna í leikn-
um. „Þáttur dómaranna er ótrú-
legur hérna. Ég er á því að
Haukarnir fái ítrekað endurtekin
tækifæri í sókninni upp úr þurru
undir lokin. Ég vona að þessir
dómarar verði settir niður um
deild, það er ekki hægt að spila
undir þessu. Leikurinn var skref í
rétta átt hjá okkur en það er erfitt
að spila við níu manns frá Reykja-
vík,“ sagði Rúnar.
Haukar eru á toppnum í N1-deild karla eftir sterkan 27-22 sigur á Akureyri í
gær. „Liðsheildin skóp sigurinn,“ sagði þjálfari Hauka eftir frábæran leik en
þjálfarar Akureyrar voru ekki sáttir við dómgæsluna.