Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 83
Síðumúli 8 – Sími 568 8410Hafnarstræti 5 - Sími 551 6760 Krókháls 5 – Sími 517 8050
Veidimadurinn.is - Sportbudin.is - Veidihornid.is
Munið vinsælu
gjafabréfin okkar
Öll kasthjól – 40% afsláttur
Kaststangir 20-50% afsláttur
Fluguhjól 15-50% afsláttur
Flugustangir 15-50% afsláttur
Öndunarvöðlur frá 9.995
Veiðivesti frá 1.995
10 stk. spúnar aðeins 1.990
Lítið notaðar leiguvöðlur aðeins 5.000
Sjókayakar 15-30% afsláttur
Þurrbúningar og vesti 15-50% afsláttur
Valdar haglabyssur 20-30% afsláttur
Felufatnaður 15-50% afsláttur
Útsalan hefst í dag og lýkur 7. október
Vinsælustu vörurnar seljast alltaf upp fyrst
Sjókayakar, fatnaður og búnaður aðeins í Sportbúðinni Krókhálsi 5. Skotvopn og felugallar aðeins í
Veiðihorninu Síðumúla 8 og Sportbúðinni Krókhálsi 5. Leiguvöðlur aðeins í Veiðihorninu Síðumúla)
ÚTSALAN ER BYRJUÐ
BARA Í FÁEINA DAGA
HK mætir ítalska liðinu
Pallamano Conversano í Evrópu-
keppni félagsliða í tveimur leikj-
um í kvöld kl. 19.15 og á morgun
kl. 16.15 og fara báðir leikirnir
fram í Digranesi. HK-liðið hefur
farið ágætlega af stað í N1-deild-
inni í ár og ætlar sér stóra hluti í
Evrópukeppninni.
„Við ætlum að fara eins langt og
við mögulega getum í keppninni
og erum mjög ánægðir með að
stjórnin hafi komið því í kring að
við spilum báða leikina í Digra-
nesi og við vonum að fólk fjöl-
menni og styðji liðið. Það er kom-
inn tími til að íslensk lið komist
lengra í þessari keppni og vinni
sig upp í styrkleikaflokki til þess
að standa betur að vígi frá byrj-
un,“ sagði Gunnar Magnússon,
aðstoðarþjálfari HK, sem kvaðst
bjartsýnn á möguleika sinna
manna í leiknum.
„Pallamano Conversano er
sterkt og reynslumikið lið en að
sama skapi frekar hægt og ég tel
að okkar möguleikar felist í því að
keyra upp hraðann og stjórna
þannig leiknum. Við erum komnir
með sterkan hóp í HK og getum
spilað leikina á mörgum mönnum
og það er mikil tilhlökkun í okkar
herbúðum fyrir leikjunum,“ sagði
Gunnar og sagðist ekkert hrædd-
ur við mikið leikjaálag á sínum
mönnum svona snemma móts.
„Við spilum náttúrlega fjóra
leiki á einni viku en við höfum
ekki miklar áhyggjur af því og
erum búnir að undirbúa okkur vel
fyrir tímabilið. Ef að Digranesið
verður troðfullt og stuðningurinn
verður góður, þá eiga leikmenn-
irnir ekki eftir að finna fyrir
neinni þreytu, það er alveg klárt,“
sagði Gunnar vongóður. -
Ætlum að keyra upp hraðann í leiknum
Bandarísku leikmenn-
irnir Tamara Bowie og Ifeoma
Okonkwo spila saman í Euro-
league kvenna í vetur en þær
fengu báðar samning hjá lett-
neska liðinu TTT Riga sem þær
voru hjá til reynslu.
Bowie og Okonkwo voru í
stórum hlutverkum með Grinda-
vík og Haukum í Iceland Express
deild kvenna á síðasta tímabili,
Bowie var með 30,5 stig og 14,8
fráköst að meðaltali í fyrra en
Okonkwo vann alla titla með
Haukum og alla innbyrðisleikina
sex á móti Bowie auk þess að
skora 21,9 stig og taka 9,7 fráköst
í leik.
Fengu báðar
samning
Keflvíkingar hafa
þegar gert samning við þrjá
erlenda leikmenn um að þeir spili
með liðinu í Iceland Express-
deild karla í vetur.
Þetta eru þeir Anthony
Susnjara (Ástralía), B.A. Walker
(Bandaríkin) og Colin O´Reilly
(Írlandi). Til viðbótar hafa þeir nú
fjórða leikmanninn á reynslu en
það er Tommy Johnson 26 ára og
196 sm framherji.
Johnson er Bandaríkjamaður
með breskt vegabréf sem hefur
leikið í Belgíu undanfarin ár. Allir
nýju erlendu leikmennirnir voru
með í 99-60 sigri á FSU í æfinga-
leik og skoruðu þá saman 61 stig.
Walker var stigahæstur með 22
stig, Susnjara skoraði 17 stig,
Johnson var með 15 stig í sínum
fyrsta leik og Írinn O´Reilly rak
lestina með sjö stig. Semji
Keflavík við Johnson verða þeir
með flesta útlendinga í deildinni
ásamt liði Tindastóls sem þegar
hefur samið við fjóra erlenda
leikmenn.
Fjórir útlend-
ingar í vetur?
Það er ekki bara bar-
áttumál hjá íslenskum knatt-
spyrnufélögum að fjölga í efstu
deild því yfirmaður norskrar
knattspyrnu, Boye Skistad, mælir
með tillögu um að fjölga liðum úr
14 í 16 í norsku úrvalsdeildinni.
Samkvæmt tillögunni munu
Norðmenn stytta hjá sér undir-
búningstímabilið, hefja leik í
mars og spila fram í byrjun
nóvember. Hún verður tekin fyrir
í mars 2008 og það gætu verið
komin 16 lið í deildina 2009.
Skistad trúir því að þessi
breyting munin bæta norska
boltann og ekki síst hjálpa
liðunum í Evrópukeppninni.
Tillaga um að
fjölga liðum