Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 88
Það má gera því skóna að nokkr-ir hafi lagt frá sér ókláraða
ábætisskál þegar Eva María Jóns-
dóttir spjallaði við Hrafnkel
Sigurðsson í Kastljósviðtali á
sunnudag. Lystarleysið má líklega
tímasetja við augnablikið þar sem
Hrafnkell lýsti „hugljómun“ sinni
á tíunda áratugnum. Hana fangaði
hann í vídeóverki þar sem hann
reisti sig upp á herðablöðunum og
pissaði upp í sig. Ég veit ekki með
aðra en í mér tókust á klígjutil-
finning og hins vegar aðdáun á
hvað Hrafnkell væri liðugur og
hefði gott mið. En almennt virðist
hlandsopinn hafa fallið í grýttan
jarðveg, þó ekki væri nema fyrir
tímasetninguna.
fyrir fussið sem Evu og
Hrafnkatli tókst að framkalla dró
RÚV þó hvergi af, heldur bætti í
ef eitthvað var. Kvöldið eftir var á
dagskrá breski fræðsluþátturinn
Matur er mannsins megin, úr
smiðju breska ríkissjónvarpsins
BBC, þar sem fjallað er um áhrif
matar á mannslíkamann. Í þessum
þætti var tekin fyrir spurning sem
hugsuðir hafa brotið heilann yfir
um aldir alda: hvaða áhrif hefur
matur á sæðisbragð?
og sönnum vísindamönnum
sæmir réðust þáttagerðarmenn-
irnir í empírískar samanburðar-
rannsóknir. Til að komast að nið-
urstöðu voru nokkrir karlar settir
á strangan matarkúr í tiltekinn
tíma. Í kjölfarið voru spúsur
þeirra fengnar til að bragða á sæði
þeirra og meta hvort mataræðið
hefði skilað sér í glundrið. Af til-
litssemi við áhorfendur sjálfsagt
voru konurnar ekki látnar teyga
lífsvökvann úr upprunalegum
ílátum, heldur var hanastélið
framreitt í glærum plastdollum.
Niðurstaðan var sú, bragðefna-
framleiðendum sjálfsagt til sárrar
armæðu, að í mesta lagi mátti
kannski greina smá ávaxtakeim af
einstaka sýnishornum. Sama hvað
menn átu hafði það lítil bætandi
eða skemmandi áhrif – á heildina
smakkaðist sæðið ennþá eins og
sæði.
það er vissulega skiljanlegt að
menn yggli brúnum yfir þessum
nýtilkomnu vessaáherslum þeirra
uppi í Efstaleiti. Ég held hins vegar
að það sé til marks um skammsýni.
Með opnum huga hef ég þannig
dregið að minnsta kosti tvennan
lærdóm af dagskrá RÚV í vikunni.
Í fyrsta lagi sýndi Hrafnkell, sjálf-
sagt óafvitandi, fram á hagnýta
lausn á hinum alræmda miðbæjar-
vanda; nokkrir jógatímar og það
verður hægur vandi að sleppa við
lögreglusekt þegar manni verður
mál í Bankastræti. Í öðru lagi get
ég óhræddur staðfest borðpöntun-
ina á Austur-Indíafélaginu á laug-
ardagskvöld.
Safarík dagskrá