Fréttablaðið - 13.10.2007, Blaðsíða 19
Guðríður Arnardótt-ir, oddviti Samfylk-
ingarinnar í Kópavogi,
þarf að leita um það bil
ár aftur í tímann að til-
efni til að þyrla upp
moldryki í þeim tilgangi
að ná fram hefndum
fyrir flokksbróður sinn
eftir að ég vakti athygli
á að hann hefði verið vanhæfur í
skólanefnd þegar frændi hans var
ráðinn aðstoðarskólameistari hér í
bæ.
Hefndin byggist hins vegar á
röngum forsendum. Guðmundur
G. Gunnarsson, sem var ráðinn
árið 2006 í tímabundna verkefnis-
stjórn hjá skipulagsdeild Kópa-
vogsbæjar, gegnir ekki sömu
störfum og fyrrverandi ritari
skipulagsstjóra enda störfuðu
þeir samhliða fyrst um sinn.
Guðmundur tók m.a. við verkefn-
um annars manns sem annaðist
þau í útseldri vinnu með tilheyr-
andi kostnaði.
Þar sem samanburðurinn við
starf ritara er rangur fellur öll
röksemdafærsla Guðríðar eins og
spilaborg um að Kópavogsbær
brjóti jafnréttislög og verkefnis-
stjórinn sé á ofurlaun-
um.
Skipulagsdeild
Kópavogsbæjar getur
hrósað happi yfir því
að hafa fengið jafn
hæfan verkefnisstjóra
og fyrrverandi
bæjarstjóra á Álftanesi
til að sinna mörgum
brýnum verkefnum
sem menn réðu illa við
áður sökum manneklu.
Þeir sem þekkja störf
Guðmundar og kynna sér
launatölurnar af sanngirni hljóta
að furða sig á hneykslun Guðríð-
ar.
Það var heldur ekki seinna
vænna fyrir hana að fetta fingur
út í ráðningu hans því henni lýkur
eftir örfáar vikur. Í næstum heilt
ár stóð Guðríði á sama um það
sem hún nú kallar spillingu.
Henni var sama alveg þangað til
flokksbróðir hennar var nappað-
ur.
Kópavogsbær leggur sig fram
um að ráða gott fólk í kröfuhörð
störf óháð stjórnmálaskoðunum
þess. Það á jafnt við um samherja
mína og Guðríðar.
Höfundur er bæjarstjóri í
Kópavogi.
Hefnd Guðríðar TH E
E DG E
OF
H EAVEN
KVIKMYND E F T IR
F A T IH AK IN
BESTA HANDRITIÐ
CANNES 2007
TILNEFND TIL
GULLPÁLMANS
CANNES 2007
„Dramatísk, falleg og bjartsýn þrátt fyrir
grimma atburðarás...einkar ánægjulegt
að sjá Schygullu, drottnandi líkt og á
tímum Fassbinders ...ein athyglis-
verðasta mynd hátíðarinnar.“
- Sæbjörn Valdimarsson, Morgunblaðið
KLIPPIÐ HÉR!
- Ekkert hlé á góðum myndum
Ekkert hlé Minna af auglýsingum Engin truflun321
2 fyrir 1 allar frumsýningarhelgar gegn framvísun þessarar úrklippu.
www.graenaljosid.is - Skráning í Bíóklúbb Græna ljóssins margborgar sig
FRUMSÝND 12 . OKTÓBER SÝND Í REGNBOGANUM
HIN HLIÐIN | AUF DER ANDEREN SEITE