Fréttablaðið - 13.10.2007, Side 32
Nærtæk leið til að draga verulega úr mengun
frá bílaumferð er að knýja bíla með lífrænu
etanóli í stað bensíns eða díselolíu. Ford C-Max
Flexifuel er þannig bíll.
Innan nokkurra áratuga verða olíulindir heimsins þurr-
ausnar. Jafnframt er reiknað með því að bílaeign mann-
kynsins muni meira en tvöfaldast fram til ársins 2030
– úr um 925 milljónum nú yfir í tvo milljarða. Ef allur
þessi bílafloti á að ganga fyrir olíu og bensíni mun
ganga enn hraðar á olíubirgðirnar og olíuverð hækka í
samræmi við það. Að sama skapi yrði mannkyninu lítt
ágengt í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda ef
ekki verður stórlega dregið úr notkun jarðefnaelds-
neytis í samgöngum.
Það er því ekki að undra að bílaframleiðendur eru
byrjaðir að bjóða upp á bíla sem ganga fyrir öðrum og
umhverfisvænni orkugjöfum en olíu og bensíni. Á
meðan beðið er eftir því að rafhlöðutæknin nær því
stigi að mengunarlausir rafmagnsbílar verða sam-
keppnisfærir – eða vetnisbílar – eru í boði bílar með
hefðbundnum sprengihreyflum sem ganga fyrir elds-
neyti sem mengar miklu minna en bensín. Um nokkurt
skeið hafa bílar sem ganga fyrir jarð- eða metangasi
verið í umferð, meðal annars hér á landi, en aðalgallinn
við þá er að stór gaskútur tekur mikið af farangurs-
rýminu og áfyllingarstöðvar eru mjög fáar (aðeins ein
hér á landi).
Fljótandi lífeldsneyti hefur marga kosti fram yfir
lífrænt gas, séð frá sjónarhóli neytandans. Það er af
þessari ástæðu sem líf-etanól – unnið úr lífmassa sem
til fellur í landbúnaði – hefur náð afgerandi forystu á
markaðnum fyrir umhverfisvæna bíla. Í Brasilíu hafa
þeir um árabil verið markaðsráðandi. Í Svíþjóð sækja
etanólbílar hratt á og eru nú komnir um 80.000 slíkir
bílar á göturnar þar í landi. Um þessar mundir er verið
að opna eitt þúsundustu E85-eldsneytisstöðina í Sví-
þjóð, en E85 er alþjóðlega heitið á lífetanóli sem bland-
að er bensíni, 85 prósent etanól en 15 prósent bensín.
Brimborg, umboðsaðili Ford, Volvo og Citroën, og
Olís hafa nú hafið innflutning E85-eldsneytis og bíla
sem ganga á því. Fréttablaðið reynsluók Ford C-Max
Flexifuel, öðrum tveggja bensín/etanól-tvíorkubíla
sem Brimborg hefur nú flutt inn til að kynna þessa
tækni hér á landi.
Aðalkosturinn við að knýja bíl með E85 í stað bensíns
er að koltvísýringsútblástur telst vera allt að því 80
prósent minni. Þar sem etanólið hefur minna orkugildi
á hvern lítra eldsneytis en bensín eyðir Flexifuel-vélin
meiru þegar hún gengur á E85 og munar þar sam-
kvæmt mælingum í reynsluakstri erlendis allt að 30
prósentum. Hvort etanólbílar verða samkeppnisfærir
á markaðnum hérlendis veltur því að mestu á því
hvernig stjórnvöld ákveða að haga skattheimtu af
lífetanól-eldsneytinu. Í Svíþjóð kostar lítrinn af E85
sem svarar um 80 krónum en bensín 110-120 krónum,
sem gerir að verkum að þótt nærri þriðjungi meira
þurfi af E85 en bensíni til að knýja bílinn þá er það
samt ódýrara. Og ekki síst: samviskan er hreinni.
Í C-Max Flexifuel-bílnum er hin vel þekkta 1,8 lítra
Duratec-bensínvél frá Ford. Í Flexifuel-útgáfunni er
bíllinn útbúinn eldsneytisgeymi, leiðslum og inn-
spýtingu sem betur þolir tæringu, þar sem meira vatns-
innihald er í etanólinu en bensíni. Í tvíorku-útgáfunni
er einnig öflugri vélartölva, sem nemur sjálfkrafa
hvers konar eldsneyti kemur inn á vélina og stillir
eldsneytisdælinguna og innspýtinguna í samræmi við
það. Ökumaður verður ekki var við neinn mun. Í notkun
finnst sem sagt enginn munur á Flexifuel-útgáfunni og
venjulegum bensínbíl.
C-Maxinn, sem er svokölluð „rýmisbíls“-útgáfa af
Ford Focus (en er nú ekki lengur kenndur við Focus-
fjölskylduna), er lipur og notadrjúgur fjölskyldubíll.
Undirritaður kann að vísu ekki að meta eitt helsta
hönnunareinkenni rýmisbílanna, sem er mjög áber-
andi á C-Maxinum, en það er að A-póstarnir eru teygðir
út á mitt húdd svo að framrúðan er mjög langt frá öku-
manni og póstarnir skyggja á útsýni hans. Og jafnvel
þótt setið sé hátt í bílnum, rúður stórar og útsýni þar
með almennt gott, sér ökumaður ekki fram á húdd-
brún, sem spillir skynjuninni fyrir ytri mörkum bílsins
sem er ókostur til dæmis þegar lagt er í stæði.
Um C-Maxinn gildir annars það sama og um Focus-
inn, þar fer lipur bíll sem sýnir skemmtilega aksturs-
eiginleika í borgarumferð og á þjóðvegum. Ódýrt verk-
andi plast í mælaborði og innanrými dregur nokkuð
niður tilfinninguna fyrir gæðum, en hönnun og frá-
gangur er annars hinn ágætasti. Aðalsmerki C-Max er
auðveld umgengni, fjölhæfni og notagildi. Meðal stað-
albúnaðar er nú ESP-stöðugleikakerfi og 6 loftpúðar.
Þar sem stjórnvöld hafa ekki tekið ákvörðun um
hvort etanólbílar skuli njóta afsláttar af aðflutnings-
gjöldum eins og aðrir umhverfisvænir bílar liggur
ekki fyrir að svo stöddu hvað Ford C-Max Flexifuel
mun kosta. Ef enginn afsláttur skyldi fást af aðflutn-
ingsgjöldunum yrði hann samkvæmt upplýsingum frá
Brimborg á bilinu 60-80.000 krónum dýrari en bensín-
útgáfan af bílnum með sömu vél, 1,8 Duratec. Lista-
verð á honum er 2.380.000 kr.
Umhverfissamviska í akstri
Ökunám í fjarnámi !!!!
Ekill ökuskóli er eini ökuskólinn á landinu sem býður upp
á ökunám í fjarnámi. Þú getur unnið námskeiðin
í tölvunni heima þegar þér hentar.
Skoðaðu þennan frábæra kost á ekill.is
Námskeið sem hægt er að taka nú þegar eru fyrra námskeið
til almennra ökuréttinda (Ö1) og bifhjólanámskeið.
Fleiri námskeið eru væntanleg á næstu mánuðum
Ö2 námskeið / Aukin ökuréttindi / Fyrir lesblinda ofl.
Ekill ökuskóli. Sími 461-7800 www.ekill.is ekill@ekill.is
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
FJAÐRIR OG GORMAR
Í FLESTAR GERÐIR
JEPPA
Japan/U.S.A.