Fréttablaðið - 19.10.2007, Blaðsíða 76
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
12
16
14
12
12
16
14
14
THE HEARTBREAK KID kl. 8 - 10.10
GOOD LUCK CHUCK kl. 6 - 8
THE KINGDOM kl. 6 - 10
12
14
16
16
12
12
14
16
16
RESIDENT EVIL 3 kl.5.50 - 8 - 10.10
4 MONTHS ENSKUR TEXTI kl.5.40 - 8 - 10.15
EDGE OF HEAVEN ENSKUR TEXTI kl.5.40 - 8
ALEXANDRA ENSKUR TEXTI kl.6
HALLOWEEN kl. 8 - 10.30
SHOOT ́EM UP kl. 10.20
THE HEARTBREAK KID kl. 5.30 - 8 - 10.30
THE HEARTBREAK KID LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
RESIDENT EVIL 3 kl. 5.50 - 8 - 10.10
GOOD LUCK CHUCK kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
SUPERBAD kl. 5.30 - 8 - 10.30
HÁKARLABEITA 600 KR. kl. 3.50
BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 3.45
THE SIMPSONS MOVIE ÍSL. TAL kl. 3.45 300 kr. Síð. sýningar
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
- J. I. S. Film.is
Dóri DNA - DV
Bölvun
eða
blessun?
SYNDIR FEÐRANNA kl. 6 - 8 - 10
GOOD LUCK CHUCK kl. 8 - 10.20
THE KINGDOM kl. 5.40 - 8
HEIMA - SIGURRÓS kl. 6 - 10.20
VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8 - 10.20
- L.I.B. Topp5.is
LAS VEGAS ER HORFIN...
JÖRÐIN ER NÆST!
ÞRIÐJI HLUTINN Í
FRAMTÍÐARTRYLLINUM MEÐ
MILLU JOVOVICH Í TOPPFORMI!
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA!
Mögnuð heimildarmynd, sem
segir örlagasögu drengjanna,
sem vistaðir voru á Breiðavík á
árunum 1952-1973.
Hvaða hræðilegu atburði upplifðu
drengirnir og hvernig unnu þeir
úr þeim?
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR
SÝNING MYNDAR HEFST
www.SAMbio.is 575 8900i i
AKUREYRI
ÁLFABAKKA
SELFOSSI
KEFLAVÍK
STARDUST kl. 8 - 10:30 10
SUPERBAD kl. 8 - 10:20 12
THE HEARTBREAK KID kl. 5:40 - 8 - 10:20 12
GOOD LUCK CHUCK kl. 8 16
STARDUST kl. 5:40 10
NO RESERVATION kl. 10 L
THE BRAVE ONE kl. 8 - 10:20 16
STARDUST kl. 8 -10:20 10
HEARTBRAKE KID kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
HEARTBRAKE KID kl. 8 - 10:30
THE BRAVE ONE kl. 8 - 10:30 16
STARDUST kl. 5:30D - 8 - 10:30 10
STARDUST kl. 5:30
NO RESERVATIONS kl. 8 L
CHUCK AND LARRY kl. 8 - 10:30 12
SUPER BAD kl. 10:30 12
BRATZ kl. 5:30 L
ASTRÓPÍÁ kl. 5:30 L
RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 5:30 L
IN THE LAND OF WOMEN kl. 5:50 - 8 - 10:20 L
THE KINGDOM kl. 8 - 10:20 10
THE BRAVE ONE kl. 8D - 10:20D 16
STARDUST kl. 5:30D 10
ASTRÓPÍÁ kl. 6 L
KRINGLUNNI
- bara lúxus
Sími: 553 2075
THE HEARTBREAK KID kl. 5.40, 8 og 10.20 12
THE KINGDOM kl. 5.40, 8 og 10.20 16
3:10 TO YUMA kl. 5.30, 8 og 10.30 16
HÁKARLABEITA ÍSL TAL kl. 4 L
BRETTIN UPP! ÍSL TAL kl. 4 L
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
www.laugarasbio.is - Miðasala á
Tónlistarhátíðin Iceland
Airwaves hófst með fjöl-
breyttu miðvikudagskvöldi.
Trausti Júlíusson og Stein-
þór Helgi Arnsteinsson
fylgdust vel með.
Airwaves 2007 hjá mér byrjaði á
hljómsveitinni Klassart. Þessi
systkinasveit frá Sandgerði skil-
aði kántrískotna rólyndispoppinu
sínu þokkalega á Organ á miðviku-
dagskvöldið þó að lélegur hljómur
hafi spillt svolítið fyrir þeim. Á
Nasa skömmu seinna var Elíza að
kynna sína fyrstu sólóplötu. Hún
hefur þroskast mikið og flutti full-
orðinsrokkið sitt með hljómsveit
skipaðri úrvals hljóðfæraleikur-
um. Hún minnti mig á köflum á
Patti Smith sem er ekki slæmt.
Á Grand Rokki var komin biðröð
og greinilega mikil eftirvænting
eftir <3 Svanhvíti! sem birtist á
sviðinu rétt fyrir klukkan tíu. Þessi
ellefu manna sveit náði strax upp
mikilli stemningu með fjölbreyttri
og gleðiríkri tónlist og líflegri
sviðsframkomu. Kátínan í hljóm-
sveitarmeðlimunum smitaðist út í
salinn og eftir nokkur lög var hann
algerlega á þeirra valdi. Frábær
sveit og fyrsti hápunktur kvölds-
ins. Önnur ung hljómsveit, en mjög
ólík, spilað á Nasa. Soundspell er
frekar alvarleg sveit sem hefur
greinilega mikið spáð í hljóm og
útsetningar. Ekki sérstaklega frum-
leg, en mjög metnaðarfull og lofar
góðu. Annar hápunktur kvöldsins
var 1985! á Gauknum. Þeir Dóri
DNA og Danni Deluxxx tóku sviðið
með slíkum krafti að hinar hiphop-
sveitirnar sem ég sá fyrr um
kvöldið, Original Melody og
Poetrix féllu algerlega í skuggann.
Taktarnir hjá 1985! voru einfaldir
og hráir, textarnir skemmtilegir
og kraftur í rappinu. Flott sveit
með húmor og attitúd. Á Organ
upp úr miðnætti birtist svo Þór-
hallur oft kenndur við Thule ásamt
gítarleikara og tveimur ljóskum í
hjúkkubúningum. Lúkkaði flott, en
teknópopp Cocktail Vomit stóð
ekki alveg undir væntingum þrátt
fyrir ágæta spretti og góðar við-
tökur.
Hamingjan skein úr hverju andliti
Airwaves-gesta á fyrsta kvöldi
hátíðarinnar. Á Gauknum var hip-
hop-kvöldið í fullu fjöri. Þar sá ég
Sesar A ásamt Gísla Galdri en
Sesar kynnti meðal annars nýtt
efni sem var fínt. Sesar rappaði
meðal annars á spænsku en hann
hefur búið í Barcelona undanfarin
ár. Annars fannst mér Sesar A
nokkuð bitlaus.
Þegar ég mætti á Nasa var
staðurinn troðfullur en algjörlega
laus við biðröð. Einkar jákvætt.
Smoosh steig þar á svið en þessi
unga og ekki eingöngu efnilega
heldur góða sveit hafði greinilega
vakið eftirvæntingu. Nokkurn
kraft fannst mér vanta í Smoosh
en sveitin stóð fyrir sínu og áhorf-
endur fögnuðu systrunum þremur
í sveitinni vel og innilega. Á Grand
Rokki var sprengikraftur
æskunnar líka við völd. Þar náði
ég í skottið á <3 Svanhvít! sem
virtist vera með stuðið á hreinu.
Hljómsveitin þar á eftir,
Naflakusk, var einnig í roknastuði
og þrátt fyrir mikið stress í byrj-
un náði sveitin að losa af sér beisl-
ið undir lokin og að vinna áhorf-
endur með sér. Glóprik sem sveitin
dreifði hjálpuðu líka til. Á eftir
Naflakuski kom fram önnur hálf-
gerð stúlknasveit, Vicky Pollard
að nafni. Vicky Pollard var tölu-
vert rokkaðri en Naflakusk og
meðlimir sveitarinnar voru með
alla taktana á hreinu. Hljómsveit
sem gæti komið fram í hvaða þætti
sem er af The L Word. Söngspíra
sveitarinnar var sérstaklega kraft-
mikil og trommarinn einnig en
hljómsveitin í heild minnti á sveit-
ir Riot Grrrl tímabilsins á borð við
Bikini Kill. Á Barnum var síðan
dubstep-hetjan Mala að trylla lýð-
inn og gekk það vel. Var til dæmis
enginn annar en Trentemøller
meðal áhorfenda og steig hann
villtan dans. Og hvað gat maður
annað gert?
„Þetta er búið að ganga vonum
framar en það er ennþá mjög
mikið af drasli eftir. Maður á í
mestu vandræðum með að losa sig
við þetta,“ segir listamaðurinn
Curver Thoroddsen sem hóf gjörn-
ing sinn Drasl til sölu í Listasafni
Íslands á laugardag. „Þetta er búið
að vera rosalega gaman. Fólk er
að koma og kaupa dót og aðrir eru
að skoða þetta sem listaverk. Þetta
blandast allt saman.“
Á meðal þess sem hefur selst er
forláta Atari-tölva sem fór á þrjá-
tíu þúsund krónur og þvottavél
sem söngvari hljómsveitarinnar
Ultra Mega Technobandið Stefán
keypti. Einnig hefur hljóðkerfi
Curvers og allir gítarmagnarar
hans selst, auk þess sem hann er
búinn að fá tilboð í skellinöðruna
sína. Bíllinn hans, hljómborð og
jólatré hafa aftur á móti ekki selst,
sem Curver skilur ekkert í.
Gjörningur Curvers, sem lýkur
á sunnudag, er hluti af listahátíð-
inni Sequences sem er haldin í
annað sinn.
Vinsæll gjörningur Curvers
The Brave One segir frá útvarps-
konunni Ericu Bain (Jodie Foster)
sem býr í New York – öruggustu
stórborg í heimi. Kvöld nokkurt
þegar hún er á gangi í Central
Park með kærasta sínum er ráð-
ist á þau og kærastinn barinn til
dauða. Þegar Erica loks kemst til
meðvitundar nokkrum vikum
síðar líður ekki á löngu þar til
hún kaupir sér skammbyssu þar
sem óttinn virðist ætla að buga
hana. Upp frá því gengur hún um
stræti New York, allt önnur
manneskja en hún var, og kemst
endurtekið í lífshættulegar
aðstæður þar sem hún neyðist til
að beita byssunni á óþjóðalýð
borgarinnar. Í fyrstu er þetta
óviljandi en virðist svo þróast út
í einhvers konar aðferð Ericu til
að vinna úr sorginni og óttanum.
Á meðan hún lifir sínu lífi í friði
birtast æsifréttir í blöðunum um
„hefnarann“ sem hefur tekið
lögin í sínar hendur. Rannsóknar-
lögregluþjónn að nafni Mercer
(Terrence Howard) fær öll þessi
mál á sitt borð og þótt undarlegt
megi virðast þróast vinátta meðal
þeirra tveggja án þess að hann
viti nokkuð um vafasama frí-
stundaiðju Ericu.
The Brave One fjallar sumsé
um hefnd. Blóðhefnd í Íslendinga-
sagnalegum skilningi þess orðs.
Söguþráðurinn er athyglisverður
og heldur manni við efnið án þess
þó að ætla að drepa mann úr
spenningi. Jodie Foster heldur
myndinni töluvert uppi með frá-
bærri túlkun sinni á Ericu og sál-
rænum togstreitum hennar. Aðrir
leikarar standa sig einnig vel.
Málið er að myndin er eiginlega
allt of flöt til að skilja eftir sig
einhvern boðskap, sem er kannski
það sem maður býst við og leitar
að í mynd sem fjallar um hefndar-
morð. Það verður einhvern veg-
inn óþolandi að hún skuli ekki
hreyfa við neinu innra með manni.
The Brave One er þó mjög vel
gerð spennumynd með sálrænu
ívafi sem fjallar um það að leika
guð en tekst þó að skilja lítið eftir
til að velta vöngum yfir.
Hefnd í frístundum