Fréttablaðið - 01.11.2007, Side 72

Fréttablaðið - 01.11.2007, Side 72
Gengi íslenska landsliðsins í fótbolta er svartur blettur á andlegri sigurgöngu Íslands. Allir þessir tapleikir – og þá sérstak- lega afhroðið gegn Liechtenstein – hafa dregið landsmenn niður, nánast aftur í moldarkofana. Bráðum fer okkur aftur að finnast við bara ekkert sérstök og alls ekkert merkilegri en aðrar þjóðir. Og það má ekki gerast! sem við þurfum núna til að ná okkur tilfinningalega er almennilegt plögg í heimspress- unni. Svo sem eina jákvæða grein um það hvað útrásarvíkingarnir eru æðislegir, eða bara eitthvað sem snýr þessari óheillaþróun við. Jafnvel myndi duga að Garðar Cortes kæmist inn á Topp 20. Það vill enginn að Ísland verði aftur jafn smátt og sorglega hallæris- legt og það var fyrir sirka 30 árum, áður en frábær nútíminn bankaði upp á. meina, á 8. áratugnum vorum við ennþá á steinöld töff og kúl- lega séð. Enginn var almennilega ríkur, nema kannski Þorvaldur í Síld og fisk. Bara einn rúllustigi var á landinu og forsetinn, hinn alþýðlegi Kristján Eldjárn, fór aldrei neitt. Á þessum tíma þótti Skákeinvígið og Surtsey (sem yrði nefnd Blökkumannaey, gysi hún í dag) það merkilegasta við landið, og helsta gersemi þjóðarinnar var uppstoppaður geirfugl (pældu í því!). Frábærleiki þjóðarinnar var miðaður við aðrar Norðurlanda- þjóðir, en ekki alheiminn, eins og núna. Stórfenglegasti afreks- dagurinn var 5. júní 1975 þegar Ísland marði sigur á Austur-Þýska- landi í fótbolta. Landsmenn ærð- ust af fögnuði og pabbi taldi þetta svo mikið afrek að hann gaf mér fimmtíukall. verður hnignun frá- bærleikans einangruð við slakt gengi í fótbolta. Vonandi kemur ekki líka í ljós að enginn í útlönd- um fílar í raun Sigur Rós og Björk og enginn af þessum útrásarvík- ingum á í raun bót fyrir boruna á sér. Það gæti svo gert útslagið ef kæmist upp að þessi svokallaði Bobby Fischer sem kom hingað er í raun ekki skáksnillingurinn heimsfrægi heldur bara einhver klikkhaus. Við megum aldrei verða jafn hallærisleg og við vorum. Aldrei! Við verðum því að halda trúnni, berja okkur á brjóst, ösla áfram, vinna 80 tíma á viku, byggja fleiri stíflur og verslunar- miðstöðvar, og liggja svo útmigin og hamingjusömust í miðbænum um helgar. Við erum best og allur heimurinn horfir með öfund til okkar. Nei, í alvöru! Hnignun frábærleikans F í t o n / S Í A F I 0 2 3 3 1 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.