Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.11.2007, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 02.11.2007, Qupperneq 12
 „Þetta fólk heldur að það sé yfir allt og alla hafið og er eins og í fílabeinsturni um leið og búið er að kjósa það. En það situr í sínum stólum í umboði þjóðar- innar,“ segir Ævar Sveinsson. Hann reyndi í tvö ár að fá viðtal við Þorgerði Katrínu Gunnars- dóttur menntamálaráðherra og minnti á sig í ráðuneytinu mánaðar- lega, áður en hann gafst upp. Á mánudaginn birtist í Frétta- blaðinu yfirlit um viðtalstíma ráð- herranna. Í því kom fram að „þó nokkrir“ væru að bíða viðtals við Þorgerði Katrínu, en í ráðuneyt- inu fengust ekki nákvæmar upp- lýsingar um fjölda þeirra, né um hugsanlegan biðtíma hvers og eins. Því rifjar Ævar upp að hann hafi á sínum tíma eytt miklum tíma og kröftum í að ná tali af Þorgerði. „Við vorum nokkrir sem vorum ósáttir við afnotagjald Ríkis- útvarpsins og við lögðum fram undirskriftalista til að mótmæla því á bensínstöðvum og víða um bæinn. Við fengum tæplega 20.000 undirskriftir, þótt talsverður hluti þeirra hafi skemmst. Að lokum áttum við um 14.000 undirskriftir og fórum með þær til ráðherra.“ Eftir langan biðtíma hafi hann loks fengið að afhenda undirskrift- irnar Birni Bjarnasyni, þáverandi menntamálaráðherra, en lítið mark hafi verið tekið á þeim. „Svo þegar Þorgerður tekur við segist hún ætla að fara að hræra upp í þessu Ríkisútvarpi. Ég fór því af stað og óskaði eftir viðtali við hana. Mér fannst að þessar undirskriftir ættu auðvit- að að vera til hliðsjónar við laga- breytinguna. Þær ráku úr mér garnirnar í ráðuneytinu og sögðu svo að hringt yrði í mig. Svo leið og beið og ég hringdi mánaðar- lega. Eftir nokkra mánuði var mér boðið upp á að Þorgerður hringdi í mig og ég féllst á það. En hún hringdi aldrei.“ Ævar hélt áfram að hringja, einu sinni í mánuði, í heil tvö ár, áður en hann gafst upp. „Ég var flokksbundinn hjá Sjálf- stæðisflokki og talaði við skrif- stofuna í Valhöll. Þar var mér líka sagt að haft yrði samband við mig, en ekkert gerðist.“ Ævar skilur ekki hvers vegna honum hafi ekki einfaldlega verið vísað frá. Hann hafi beðið um stað- festingu í ráðuneytinu á því að ráðherra vildi ekki tala við hann, en ekki fengið. „Ég sá mína sæng upp reidda og kaus ekki Sjálfstæðisflokkinn aftur. Með sinni frekju og einræði kom Þorgerður því svo í gegn að afnotagjaldið var gert að nef- skatti,“ segir Ævar og dæsir. Menntamálaráðherra svaraði ekki beiðni Fréttablaðsins um við- tal vegna þessa máls, en hún er stödd erlendis. Beið eftir ráðherra í tvö ár til einskis Ævar Sveinsson safnaði eitt sinn 20.000 undirskriftum gegn afnotagjaldi RÚV og vildi ræða við Þorgerði Katrínu menntamálaráðherra, þegar breyta átti lög- um um RÚV. Hann hringdi mánaðarlega í tvö ár áður en hann gafst upp. Hæstiréttur hefur staðfest níu mánaða fangelsisdóm yfir manni á þrítugsaldri sem ákærður var fyrir að hafa í fórum sínum tæp sjötíu grömm af amfetamíni og gramm af kókaíni. Maðurinn játaði að eiga efnin við yfirheyrslu, en sagðist fyrir dómi ekki muna eftir játningunni. Hann dró þó ekki í efa að hafa gefið skýrsluna. Í ljósi þess að gild játning lá fyrir sá Hæstirétt- ur ekki ástæðu til að endurskoða dóm Héraðsdóms Reykjavíkur síðan í mars. Maðurinn var á skilorði þegar fíkniefnin fundust. Með 70 grömm af amfetamíni Lögregla í Minnesota í Bandaríkjunum skoðar hvort ákæra eigi konu fyrir að fita gælusvín um 50 kíló á meðan hún gætti þess fyrir samstarfs- mann sinn. Eigandi svínsins segir þetta vera slæma meðferð á dýrinu. Svínið vóg 25 kíló þegar það fór í pössun en níu mánuðum seinna var það orðið 75 kíló. Eiganda svínsins er mjög annt um það og hefur nafn þess húðflúrað á líkama sinn. Hún segist hafa grátið í marga daga vegna skyndilegrar offitu svínsins. „Svínið er líf mitt,“ sagði eigandinn. „Það er ekki samt og áður.“ Lögreglu er nokkur vandi á höndum enda málið afar sérstakt. Svín fitnaði um fimmtíu kíló Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, varar ríki Evrópu við að fylgja fordæmi Bandaríkj- anna og leggja einhliða viðskiptahöft á Íran. Forsetinn hótar því að Íran muni svara slíkum aðgerð- um í sömu mynt. „Ef Evrópuríkin vilja starfa með óvini írönsku þjóðarinnar getum við ekki túlkað það sem vinalega hegðun. Við munum bregðast við því. Evrópubúar vita vel hvað gerist í alþjóðaviðskiptum ef Íran kýs að bregðast alvarlega við.“ Varar Evrópu við aðgerðum Hotel Føroyar **** krónur 36.167,- Gisting í tveggjamanna herbergi m / morgunmat. Verð pr. per. Farfuglaheimilið Kerjalon krónur 28.520,- Gisting í tveggjamanna herbergi uppábúið án / morgunmat. Verð pr. per. Hotel Tórshavn *** krónur 34.270,- Gisting í tveggjamanna herbergi m / morgunmat. Verð pr. per. sími: 482 2426 . davidsam@eyjar.is . www.faereyjaferdir.is . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . Tilboðið gildir frá 26. okt. 2007 – 31. mar. 2008. Verð með sköttum. frá krónum 28.520,- Flug og gisting frá föstudegi til mánudags Helgartilboð til Færeyja í vetur K R E A Kynbundinn launamun- ur alþingismanna er fjögur til sex prósent að því er rannsókn Sam- taka atvinnulífsins sýnir. Launa- munurinn orsakast af því að karl- menn á þingi gegna fleiri ábyrgðarstöðum en þingkonur og fá því hærri álagsgreiðslur. Meðallaun karlkyns þingmanna eru rúmlega 602 þúsund krónur á mánuði, en meðallaun kvenkyns þingmanna rúmlega 34 þúsund krónum lægri. Samkvæmt rann- sókninni spilar starfsaldur inn í, en þingmenn með lengri starfs- aldur eru líklegri til að fá álags- greiðslur, til dæmis fyrir for- mennsku í flokkum eða nefndum. Launakerfi þingmanna byggist á þingfararkaupi, en þingmenn fá álag ofan á það fyrir að gegna ráð- herraembætti, formennsku í nefnd eða vera varaforseti svo fátt eitt sé nefnt. Álagsgreiðslurn- ar eru misháar eftir embættum. 59 prósent karla á þingi eru með álagsgreiðslur, en 49 prósent kvenna. Í greinargerð frá Sam- tökum atvinnulífsins segir að eina leiðin til að leiðrétta þennan mun sé að þingkonur fái aukna ábyrgð. Til dæmis sé hægt að fjölga konum sem eru formenn stjórnarand- stöðuflokka. Minni ábyrgð skýrir launamun kynjanna Auglýsingasími – Mest lesið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.