Fréttablaðið - 03.11.2007, Side 2

Fréttablaðið - 03.11.2007, Side 2
Akureyringurinn sem vann rúmar 105 milljónir í Víkingalottóinu í byrjun október fékk vinninginn greiddan út síðasta miðvikudag. Fjárhæðin var millifærð á bankareikning hans. Enga skatta þarf að greiða af vinningnum, fyrir utan fjármagnstekjuskatt af vöxtum sem fjárhæðin ber. Guðbjörg Hólm, þjónustufull- trúi hjá Íslenskri getspá, segist sjálf hafa millifært upphæðina á reikning vinningshafans. Aðspurð hvort vinningshafinn hafi fengið fjármálaráðgjöf segist hún ekki vita það. Þau bendi fólki aðeins á hverjir geti ráðið þeim heilt varðandi fjármál en fylgist ekki með því hverjir taki boðinu. Milljónirnar millifærðar Starfsmenn Grunnskólans á Hólmavík þiggja ekki 1.500 króna styrk úr sveitarsjóði Strandabyggðar til að kaupa flíspeysur vegna skilyrða sveitarstjórnar um að peysurnar verði merktar skólanum. „Þá er einnig gefin sem skýring að sveitarstjórn var ekki sammála við afgreiðslu málsins sem sýni vilja og viðhorf sveitarstjórnar gagnvart starfs- mönnum, hræðslu sveitarstjórnar við almenningsumræðuna, skort á starfsmannastefnu og þakklæti til starfsmanna sem mætti koma fram í jólakortum, jólagjöfum og að árshátíð sé haldin fyrir starfsmenn með pomp og prakt,“ segir í fundargerð sveitarstjórn- ar. Hafna peysum en vilja árshátíð og jólagjafir Eiturefnakafarar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæð- inu voru kallaðir að Hraunsholti í Garðabæ í gær til að fjarlægja tvö miltisbrandssýkt kúahræ. Hræin voru fjarlægð og eru nú geymd í vatnsþéttum og vöktuðum skipa- gámi. Grafa kom niður á tvö dýra- hræ við framkvæmdir á lóðinni á fimmtudagskvöld, og var yfir- dýralækni gert viðvart. Grunur lék á að hræin væru af kúm sem drápust úr miltisbrandi árið 1941. Þá var grafið aftur yfir þau og ákveðið að fjarlægja þau morgun- inn eftir með aðstoð slökkviliðs. Gunnar Örn Guðmundsson hér- aðsdýralæknir staðfestir að um sýkt hræ hafi verið að ræða. Þau voru fjarlægð og flutt til Keflavík- ur þar sem átti að brenna þau í sorpbrennslu Suðurnesja, en hætta þurfti við það vegna þess að starfsfólk brennslunnar treysti sér ekki til þess. Í staðinn var hræjunum komið fyrir í vöktuðum og vatnsþéttum skipagámi þar til önnur lausn fyndist á málinu. Aðspurður vill Gunnar ekki gefa upp hvaða fyrir- tæki sjái um vöktun gámsins, né hvar gámurinn sé. „Við teljum að við séum búnir að hreinsa svæðið í Hraunsholti þannig að engum stafi hætta af.“ Vitað var að hræ miltisbrands- sýktra kúa voru grafin á þessu svæði. Á bæjarstjórnarfundi í Garðabæ hinn 12. desember 2005 lagði Sigurður Björgvinsson bæj- arfulltrúi fram fyrirspurn um hvaða ráðstafanir bæjaryfirvöld hygðust gera í ljósi þess að skepn- ur sem sýktar voru af miltisbrandi hefðu verið urðaðar á landinu. Gunnar Einarsson bæjarstjóri segir að í kjölfar fyrirspurnarinnar hafi verið útbúin viðbragðsáætlun um hvað skyldi gera þegar og ef hræin kæmu í ljós. Málið hafi verið kynnt lóðareigendum og verktök- um sagt hvað gera skyldi ef hræin fyndust. „Við settum þessa áætlun í gang um leið og við fengum til- kynninguna,“ segir Gunnar Einars- son. Miltisbrandssýkt hræ vöktuð í læstum gámi Eiturefnakafarar fjarlægðu miltisbrandssýkt kúahræ af lóð í Garðabæ í gær. Þau eru vöktuð í læstum og vatnsþéttum skipagámi því ekki var hægt að brenna þau. Bæjaryfirvöld vissu að sýktar kýr hefðu verið urðaðar á landinu. Einar, ertu með skilríki? Dularfullt hvarf á hljómflutningstækj- um, hljóðfæri og myndavél í Smáraskóla hefur verið vísað til lögreglu. Í kjölfar erindis fræðslustjóra Kópavogs sam- þykkti bæjarráðið á fimmtudag að leita liðsinnis lögreglu í málinu þar sem eftirgrennslan bæjar- starfsmanna hafði engan árangur borið. Ekki fékkst aðgangur að greinargerð fræðslustjórans um málið þar sem Þórður Þórðarson bæjarlögmaður telur hana undanþegna upplýsingarétti sem hluti opin- berrar rannsóknar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er um að ræða tækjabúnað sem keyptur var til skólans á allra síðustu árum og er um 650 þúsund krónur að verðmæti. Hvarf þeirra kom í ljós þegar farið var yfir vörukaup í grunnskólum bæjarins. Ástæða þótti þá til að gera frekari fyrirspurnir um Smáraskóla. Fullvíst mun vera að tækin hafi komið í skólann en enginn segist vita hvenær eða hvernig þau hurfu. Þór Jónsson, upplýsingafulltrúi Kópavpogsbæj- ar, segir að málið hafi verið sent til lögreglu í gær. Á meðan það sé til rannsóknar verði ekkert um það sagt af hálfu bæjaryfirvalda. Skólastjóraskipti urðu í Smáraskóla í haust og munu hvorki nýi skólastjórinn né forveri hans hafa getað útskýrt hvað varð af tækjunum. Fréttablaðið náði í hvorugan skólastjórann síðdegis í gær. Græjur á 650 þúsund horfnar Stjórnvöld í Marokkó staðfestu í gær að þau hefðu kallað sendiherra sinn í Madríd heim í mótmæla- skyni við að spænsku kon- ungshjónin ætla sér að fara í opinbera heim- sókn til bæjanna Ceuta og Melilla, sem eru spænsk- ar hólmlendur á strönd Norður- Afríku sem Marokkóstjórn krefst yfirráða yfir. Marrokkóstjórn lýsti furðu sinni á hinni áformuðu konungs- komu og sagðist vonast til að henni yrði aflýst. Síðasta heim- sókn Spánarkonungs til Ceuta og Melilla var árið 1927. Það var Alfons XIII, afi Jóhanns Karls, núverandi konungs, sem fór í þá ferð. Sendiherrann kallaður heim Stóru flokkarnir tveir í Danmörku, hægriflokkurinn Ven- stre og Jafnaðarmannaflokkurinn, mælast með nánast hnífjafnt fylgi í skoðanakönnunum nú þegar tíu dagar eru til kosninga. Í Gallup-könnun, sem niðurstöð- ur voru birtar úr í Berlingske Tidende, er Jafnaðarmannaflokk- urinn undir forystu Helle Thorn- ing-Schmidt með rétt tæplega 25 prósenta fylgi en Venstre, undir forystu Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra, 25,7 prósent. Venstre fékk 29 prósent atkvæða í síðustu kosningum árið 2005 svo að þetta þýðir yfir tveggja pró- senta fylgistap. Talsmenn Venstre telja það þó ekki sérstakt áhyggju- efni þar sem jafnaðarmenn virðast ekki vera að auka sitt fylgi og sam- anlagt fylgi vinstriflokkanna, að meðtöldum miðflokknum Radikale Venstre, myndi ekki skila þeim nema 79 þingsætum samtals. Útlit er fyrir að flokkurinn sem lengst er til vinstri í dönsku flokkaflór- unni, Einingarlistinn, falli út af þingi þar sem hann nái ekki tveggja prósenta þröskuldinum. Alls 179 fulltrúar eiga sæti á danska þjóð- þinginu, þar af tveir frá Færeyjum og tveir frá Grænlandi. Thorning-Schmidt og Fogh Rasmussen mættust í sjónvarps- kappræðum á TV2 fimmtudags- kvöld, en stjórnmálaskýrendur eru ekki á einu máli um hvort hafi haft betur. Stjórnandi kappræðnanna, Jes Dorph, var gagnrýndur fyrir að hafa ítrekað tekið orðið af Thorning-Schmidt. Fylgi stóru flokkanna mælist hnífjafnt

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.