Fréttablaðið - 03.11.2007, Síða 18

Fréttablaðið - 03.11.2007, Síða 18
Ó lafur Davíð Jóhann- esson hefur náð frábærum árangri á löngum ferli sem þjálfari í íslensku deildinni í knatt- spyrnu og FH varð sannkallað stórveldi þegar liðið vann deildina þrjú ár í röð undir hans stjórn. Það kom því fæstum á óvart þegar stjórn Knattspyrnusam- bands Íslands réði Ólaf á dögunum til þess að taka við íslenska landsliðinu í þeim krefjandi verkefnum sem liggja fyrir á þeim bænum. Ólafur hefur jafnan getið sér orð fyrir að vera ákveðinn og beinskeyttur í viðtölum, en þó virðist alltaf vera stutt í grínið hjá honum og því beið blaðamaður Frétta- blaðsins spenntur eftir því að spjalla við samferðamenn Ólafs og heyra hvað þeir hefðu að segja um manninn sem flestir þekkja sem Óla Jó. „Hann er sérstak- ur persónuleiki og vill fara sínar eigin leiðir og á það jafnvel til að vera fremur þrjóskur. Hann er þó afar hreinn og beinn í samskiptum sínum við fólk og ég myndi segja að heiðarleiki væri hans helsti kostur,“ sagði fyrrverandi samstarfsmaður Ólafs hjá FH og annar innanbúðar- maður þar tók í sama streng. „Hann er heiðar- legur maður og nær að skapa mikið og gott traust milli sín og leikmanna sinna og stendur og fellur með þeim og það er lykillinn að góðum árangri hjá honum. Hann talar líka alltaf beint út og segja má því að hann komi til dyranna eins og hann er klæddur.“ Klæðaburður Ólafs sem slíkur varð að sérstöku umræðuefni hjá öðrum viðmælanda. „Ég get alveg tekið undir það að hann komi til dyranna eins og hans er klæddur, eins asnalega og hann klæðir sig nú gjarnan,“ sagði leikmað- ur FH-liðsins í léttum dúr og bætti við: „Hann er tvímælalaust eftirminnilegasti þjálfari sem ég hef nokkurn tíma haft og hann er alveg ótrúlega flinkur í því að skapa umhverfi þar sem menn leggja sig hundrað prósent fram og hafa á sama tíma gaman af því að spila fótbolta. Hann hefur vissulega ákveðnar skoðanir á hlutunum, en er samt alltaf til í að hlusta á hvað aðrir hafa að segja og er auðveldur í samskipt- um. Hann er ekki beint þessi jakkafatatýpa og ég hef það á tilfinningunni að honum líði ekkert sérstaklega vel þegar hann er með bindi. Hann vill miklu frekar vera í úlpunni sinni með vasana troðfulla af einhverju drasli.“ Í ljós kom reyndar í samtali við fróðari mann að hlutirnir sem Ólafur geymir í vasa sínum væru alls ekkert drasl heldur lukkugripir. „Ólafur á það til að vera hjátrúarfullur og það lýsir sér í því að hann tekur ástfóstri við ákveðna hluti, svo sem skrúfu, rör- eða spýtubút eða eitthvað slíkt sem hann geymir í úlpuvasa sínum í lengri tíma og hefur alltaf með sér á leiki,“ sagði félagi Ólafs sem var af mörgum viðmæl- endum sagður vera sérfræðingur í öllu háttalagi Ólafs. „Hann hefur líka mjög sérstakan kæk þegar hann er að undirbúa FH-liðið fyrir leiki á töflu- fundum; þá lyktar hann alltaf hressi- lega af töflutússinu þannig að menn taka eftir, af hverju veit ég ekki. Kannski finnst honum lyktin bara svona góð,“ sagði títtnefndur sér- fræðingur. Haft var á orði að alls staðar þar sem Ólafur hafi þjálfað væri hann afar vel liðinn. „Það var gríðarleg ánægja með Ólaf og hans störf hjá okkur og ég er virkilega stoltur fyrir hans hönd að hann hafi verið ráðinn landsliðsþjálfari, þó fyrr hefði verið. En auðvitað gerðum við Óla að því sem hann er í dag,“ sagði góður vinur Ólafs frá tímum hans í þjálfun austur á landi. Sumum viðmæl- endum leiddist greinilega ekki að nota tækifærið og benda á nokkra galla í fari Ólafs. „Hann getur ekki hellt upp á kaffi þegar maður kemur í heimsókn og í raun eru almenn heimilisstörf ekki hans sterka hlið. Menn geta eðlilega ekki verið bestir í öllu, en hann kann hvorki á þvottavél né eldavél og er gjörsamlega ósjálfbjarga án konunnar,“ sagði tíður gestur á heimili Ólafs og fyrrverandi samstarfsmaður kom inn á einn galla við að vinna með honum. „Hann kann náttúrlega ekki á síma og SMS og talskilaboð eru fjarri skiln- ingi hans, þannig að maður þurfti að vinna dálítið í kringum þetta.“ Rauður þráður í gegnum samtöl blaðamanns við samferðamenn Ólafs var hins vegar sá að hann sé maður sem alltaf er gaman að hafa nálægt sér og menn kunna vel að meta húmor hans og heiðarleika. Kemur til dyranna eins og hann er klæddur Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.