Fréttablaðið - 12.11.2007, Blaðsíða 12
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Sannur sjálfstæðis-
maður
Brækur skipta máli
Frekja og ósmekklegheit
Ætlar að búa sig undir áramótaskaupið
Skógarvörðurinn í Hall-
ormsstaðarskógi ætlar að
gera tilraun með að kynda
barnaskólann á Hallorms-
stað með viðarkurli eins
og tíðkast sums staðar
erlendis. Kurlið yrði þá sett
á tank og færi svo sjálf-
krafa í brennsluketil sem
hitar upp vatnið. Vandinn er
samkeppni við niðurgreidda
orku. Skólinn fær svokall-
aða afgangsorku á lægra
verði en Skógræktin getur
boðið upp á. Þess vegna er
tilraunin ekki hafin enn.
„Hugmyndin er sú að nýta grisj-
unarvið úr fyrstu grisjun til að
kynda hús en oft eru lítil verð-
mæti í henni. Við erum að reyna
að koma því á koppinn strax á
næsta ári að barnaskólinn hér
verði kyntur með viðarkurli. Þetta
verður sjálfvirk kynding, í staðinn
fyrir olíu verður kurlið sett á tank
og fer svo sjálfkrafa í brennslu-
ketil. Eldurinn hitar síðan vatnið
sem fer á húsið,“ segir Þór Þor-
finnsson, skógarvörður á Hall-
ormsstað.
Kurlkyndingin á Hallormsstað
er liður í samstarfsverkefni Finna,
Skota og Íslendinga en Þór segir
að erlendis sé kurl notað til að
kynda heilu borgirnar. „Hnífurinn
í kúnni núna er orkuverðið. Við
keppum við niðurgreidda orku,
svokallaða afgangsorku, sem skól-
arnir fá og verðum að bjóða upp á
sama verð til að vera samkeppnis-
fær. Við erum að vinna í því að
geta setið við sama borð og þurf-
um að eiga fund með ráðamönnum
í iðnaðarráðuneytinu til að finna
flöt á því. Flest annað er tilbúið,“
segir hann.
Þór er skógarvörður á Austur-
landi og hefur því umsjón og eftir-
lit með jörðum Skógræktar ríkis-
ins í fjórðungnum. Hann segir
starfsemina margslungna, að reka
skóglendi, hirða um skógana og
grisja, opna skógana og gera þá
aðgengilega fyrir almenning með
gönguleiðum, tjaldsvæðum og
grillsvæðum og taka á móti ferða-
mönnum og bjóða til dæmis upp á
leiðsöguferðir.
„Þessa dagana erum við að
grisja skóg og vinna timbrið í borð
og planka, girðingarstaura og
arinvið og annað sem fellur til. Á
næstu vikum förum við í jólatrén.
Við fellum stór og smá tré, svo-
kölluð torgtré sem fara mest-
megnis á torg í fjórðungnum og
svo eru heimilistré seld hér á
Skólinn kyntur með viðar
N1 VERSLANIR
F
í
t
o
n
/
S
Í
A