Fréttablaðið - 12.11.2007, Qupperneq 45
Nú í nóvember stendur yfir
ljósmyndasýning Karls R.
Lilliendahl í Fótógrafí ljósmynda-
galleríi við Skólavörðustíg 4a í
Reykjavík.
Myndirnar eru teknar víða á
Ítalíu þar sem Karl dvaldi
síðastliðinn vetur. Yfirskrift
sýningarinnar er Uno sem er
ítalska orðið fyrir einn og er það
tilvísun í sýn ljósmyndarans á
einstaklinginn í borgarsamfélag-
inu.
Hver ljósmynd á sýningunni
segir sögu einnar manneskju.
Sýningin stendur til 1. desember.
Ítalskur einn
í Fótógrafí
Helstu smellir óperubókmenntanna eru
fleirum kunnir en hörðustu aðdáendum hins
stranga og fjölbreytta forms. Vinsæl lög úr
óperum koma víða við sögu, í allt frá bílaaug-
lýsingum til túrtappaáróðurs. Vinir óperunnar
eiga flestir sín uppáhalds sönglög og kunnir
söngvarar gera út á poppelementið í óperu-
bókmenntunum með völdum lögum úr
efnisskrá sinni. Nú hefur nýr óperustjóri
ráðist í að setja saman kvöldtónleika þar sem
nokkrir ástsælir söngvarar okkar koma fram
og flytja einsöngslög úr óperubókmenntunum.
Óperuperlurnar verða frumsýndar í Íslensku
óperunni hinn 17. nóvember og endurfluttar
23. og 24. nóvember. Hér er um að ræða kvöld-
stund í Óperunni með nokkrum af okkar
fremstu óperusöngvurum, þeim Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur sópran sem snýr nú aftur á
svið Óperunnar eftir langt hlé, Sigríði
Aðalsteinsdóttur mezzósópran, Ágústi
Ólafssyni baritón og Bjarna Thor Kristinssyni
bassa. Kurt Kopecky, tónlistarstjóri Íslensku
óperunnar, leikur undir á flygilinn í nokkrum
vel völdum og þekktum óperuaríum, en flutt
verða atriði úr óperum eftir Mozart, Verdi,
Bizet, Bellini, Delibes, Donnizetti, Gounod,
Puccini, Rossini, Tsjaíkovskí og Wagner auk
söngleikja- og óperettuatriða eftir Gershwin,
Bernstein og Lehár.
Allt er þetta fært í leikrænan búning með
fulltingi Stefáns Baldurssonar óperustjóra, en
útlit annast Þórunn S. Þorgrímsdóttir og um
lýsingu sér Björn Bergsteinn Guðmundsson.
Miðasala er hafin og má búast við að eftir-
spurn verði mikil og því rétt að tryggja sér
miða sem fyrst.
Óperuperlur á bandi
Á sýningunni Vetrarvötn Sunnan-
heiða í Gallery Turpentine sýnir
myndlistarmaðurinn Sigtryggur
Bjarni Baldvinsson á annan tug
nýrra olíumálverka. Verkin eru
unnin út frá ljósmyndum sem
listamaðurinn tók á björtum en
köldum febrúardögum á þessu
ári, af straumvötnum á Suður- og
Suðvesturlandi.
Á sýningunni má sjá afrakstur-
inn af áframhaldandi leit
Sigtryggs að kerfi í hrynjandi
náttúrunnar. Vatn er fjölbreyti-
legt í birtingarmyndum sínum og
hefur það fært listamanninn í
vinnu sinni nær hefðbundnum
landslagsmálverkum. Fljótin og
lækirnir sem hann heimsótti og
ljósmyndaði persónugerðust og
tóku hvert á sig sína mynd í
listsköpuninni. Vart þarf að taka
það fram að breytileg íslensk
veðurskilyrði, birta og vatnsmagn
höfðu líka sitt að segja um
útkomuna á verkum Sigtryggs.
Verkin á sýningunni eru að
mörgu leyti innblásin af jafn
ólíkum listamönnum og Þorvaldi
Skúlasyni, Jackson Pollock og
Roni Horn. Afrakstur vinnu
Sigtryggs með vetrarvötn,
ljósmyndir og innblástur má sjá í
Gallery Turpentine, Ingólfsstræti
5.
Landsins
vetrarvötn
SNÆFELLSJÖKULL
DRANGAJÖKULL
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
Njóttu dagsins
- taktu flugið
Aðeins nokkur skref á Netinu og þú ferð á loft
Það getur ekki verið auðveldara.
Þú bókar flugið á flugfelag.is þar sem
þú finnur ódýrustu fargjöldin og að
auki frábær tilboð.
Njóttu dagins, taktu flugið
og smelltu þér á flugfelag.is
flugfelag.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/F
L
U
3
77
33
0
5/
07