Fréttablaðið - 12.11.2007, Qupperneq 50
Enska úrvalsdeildin:
Spænska deildin
Valur gerði sér lítið
fyrir og lagði slóvenska stórliðið
Celje Piovarna Lasko að velli í
Meistaradeild Evrópu í gær, 29-28.
Valsmenn voru með frumkvæðið í
leiknum nánast allan leikinn og
var sigurinn fyllilega verðskuld-
aður.
Leikurinn einkenndist af mjög
góðum varnarleik og það sást
strax á fyrstu mínútu að Valsmenn
voru komnir til að selja sig dýrt.
Arnór Malmquist skoraði fyrsta
markið strax í fyrstu sókn Vals en
það tók Celje fjórar og hálfa mín-
útu að jafna metin. Lítið var skor-
að í byrjun og virkuðu heimamenn
taugatrekktir í sóknaraðgerðum
sínum en að sama skapi spilaði
liðið frábæra vörn. Hægt og rólega
unnu Valsmenn bug á stressinu og
var greinilegt að stórliði gestanna
var brugðið.
Celje virtist vera að ná undir-
tökunum í leiknum þegar 10 mín-
útur voru til leikhlés og staðan var
10-12. Valsmenn bitu þá hressilega
frá sér með Elvar Friðriksson sem
besta mann og náðu forystunni
fyrir leikhlé, 15-14.
Valsmenn spiluðu líklega sinn
besta handbolta á tímabilinu
fyrsta korterið í seinni hálfleik og
náðu fjögurra marka forystu, 24-
20 og 25-21. Í stað þess að keyra
áfram reyndu Valsmenn að verja
forskotið en það kann ekki góðri
lukku að stýra. Celje náði að jafna
metin, 28-28, þegar fjórar mínútur
voru eftir af leiknum en Ernir
Hrafn Arnarsson var fljótur að
koma Val aftur yfir.
Pálmar Pétursson kom inn í
markið þegar fjórar mínútur voru
til leiksloka og varði þrjú dauða-
færi og eitt vítakast áður en yfir
lauk. Pálmar sá til þess að ekki
voru fleiri mörk skoruð í leiknum
eftir að hann koma inn á fyrir Ólaf
Gíslason sem hafði komið inn á
fyrir Pálmar fyrr í leiknum.
Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari
Vals var vægast sagt kátur í leiks-
lok. „Þetta er stærsti sigur minn
sem þjálfari. Ég er mjög stoltur af
mínu liði og íslenskum handbolta.
Við náðum að hrista aðeins upp í
Evrópu með þessum úrslitum og
íslenskur handbolti sýndi hvað í
honum býr. Þetta var óvæntur
sigur en við náðum þeim mark-
miðum sem við settum okkur fyrir
leikinn. Við ætluðum að halda
þeim í 28 mörkum eða minna og
halda hraðaupphlaupum þeirra í
lágmarki. Við spiluðum góð vörn
og skoruðum sjálfir mörg mörk úr
hraðaupphlaupum,“ sagði Óskar
Bjarni með bros á vör í leikslok.
Ef hægt var að finna eitthvað að
leik Vals var það að liðinu gekk
illa að finna opin færi úr uppstillt-
um sóknum.
„Sóknin sem slík var ekki slæm
þó hún hafi ekki verið eins og hún
best getur verið. Það verður að
líta til þess að við vorum að spila
gegn mjög sterku liði. Við skoruð-
um meira úr hraðaupphlaupum í
fyrri hálfleik en í þeim seinni
þegar við hægðum á spilinu. Við
horfðum óþarflega mikið á stiga-
töfluna í seinni hálfleik og vörðum
forskotið í stað þess að byggja á
því. Við erum með ungt lið og
ættum að keyra á andstæðinga
okkar við hvert tækifæri. Það er
okkar sterkasta vopn.
Valsmenn lögðu fyrrverandi Evrópumeistara Celje Lasko að velli, 29-28, í
Vodafone-höllinni í gær. Markvörðurinn Pálmar Pétursson var hetja Vals
þegar hann hreinlega lokaði markinu á æsipennandi lokamínútum leiksins.
Manchester United er
komið á topp ensku úrvalsdeildar-
innar eftir leikina sex sem fóru
fram í gær. Chelsea er nú fimm
stigum á eftir United eftir aðeins
jafntefli á móti Everton á heima-
velli.
Cristiano Ronaldo skoraði bæði
mörk Manchester United í fyrri
hálfleik í 2-0 sigri á Blackburn.
Ronaldo skoraði fyrra markið með
skalla eftir hornspyrnu Ryan
Giggs en það síðara eftir sendingu
frá Carlos Tevez.
Þetta var níundi sigur Manchest-
er í síðustu 10 leikjum og færir
liðinu þriggja stiga forskot á Ars-
enal sem á reyndar tvo leiki inni.
Þann fyrri leikur liðið strax í kvöld
þegar lærisveinar Arsene Wenger
sækja Reading heim.
„Við erum með gott og ungt lið
sem er að þroskast saman og við
erum að spila vel. Það er mikið
hugrekki í okkar leik og þetta lítur
vel út. Við eigum góða möguleika
á að vinna eitthvað í vetur,“ sagði
Alex Ferguson, stjóri Man. Utd
eftir leikinn. Næstu leikir eru á
móti botnliðunum Bolton, Fulham
og Derby og því ætti United ekki
að tapa mörgum stigum á næst-
unni þótt liðið sé án manna eins og
Wayne Rooney og Paul Scholes.
Tim Cahill tryggði Everton stig
á Stamford Bridge með því að
jafna leikinn með glæsilegri hjól-
hestaspyrnu á 88. mínútu. Didier
Drogba hafði komið Chelsea yfir
17 mínútum fyrr.
„Þetta var einn af okkar bestu
leikjum. Við spiluðum flottan fót-
bolta, bjuggum til fullt af færum
en þeir skora síðan úr eina færi
sínu. Ef við höldum áfram að spila
svona þá erum við á réttri leið,“
sagði Avram Grant, stjóri Chel-
sea. „Við vorum alltaf inni í þess-
um leik og vorum baráttuglaðir og
ákveðnir að fá eitthvað út úr þess-
um leik. Þetta er það sem Cahill
gerir svo vel fyrir okkur,“ sagði
David Moyes, stjóri Everton.
Tottenham vann sinn fyrsta
sigur í þrjá mánuði og þann fyrsta
undir stjórn Juande Ramos þegar
liðið vann 4-0 stórsigur á Wigan.
Jermaine Jenas (2 mörk) og Aaron
Lennon komu Spurs í 3-0 í fyrri
hálfleik og eftir það var ljóst í
hvert stefndi. Dimitar Berbatov
átti stóran þátt í undirbúningi
allra markanna.
„Þetta var miklu betra. Það er
gott að skora fjögur mörk en ekki
síður mikilvægt að ná að halda
hreinu. Ef við náðum að byggja
upp góða vörn þá hef ég ekki
áhyggjur af sókninni með menn
eins og Berbatov, Keane, Lennon
og Jenas í okkar liði,“ sagði Gus
Poyet, aðstoðarstjóri Tottenham,
og hann segir Berbatov ekkert að
vera á leiðinni frá liðinu. „Hann er
orðinn mjög þreyttur á þessum
sögusögnum. Við höfum talað um
þetta við hann og hann segist vera
ánægður og ef hann spilar eins og
í dag þá erum við mjög ánægðir
líka,“ bætti Poyet við.
Skaut United upp í toppsætiðSTÓRSKEMMTILEGRÓMANTÍSK GAMANMYND
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
FRUMSÝND 16. NÓVEMBER!
af
he
nd
ir
hj
á
BT
S
m
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
SMS
LEIKUR
SENDU SMS JA WFF Á NÚMERIÐ
1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
Vinningar eru Bíómiðar fyrir tvo, D
VD myndir, varningur tengdur my
ndinni og margt fleira!
Meistaradeildin í handbolta:
Evrópuk. kvenna í handb.:
Iceland Express kvenna:
Ítalski körfuboltinn
Ítalski fótboltinn