Fréttablaðið - 19.11.2007, Side 42

Fréttablaðið - 19.11.2007, Side 42
22 19. nóvember 2007 MÁNUDAGUR Á veturna getur marg- borgað sig að ganga með vettlinga. Handa- fatnaður er gjarnan álitinn vera fremur til óþurftar en annað, ekki síst þar sem hann gerir manni erfitt fyrir að handfjatla lykla, bókmennt- ir, mat, hannyrðir og annað smálegt og nauðsynlegt. En ég spyr þá sem ekki ganga með vettlinga: haldið þið ekki að þið gætuð átt erfitt með að blaða í eftirlætisskruddunni ykkar eða að troða Júmbósamloku í trantinn á ykkur ef fingurnir hefðu allir kalið einn hörkuveturinn og dottið af? Ha? Íhugið þetta í smá- stund og aðlagið svo hugmynd ykkar varðandi hvort teljist meira vesen að vera með vettlinga á hönd- unum eða enga fingur. Vettlingar eru ekki einasta hag- nýtir í baráttunni við fingrakul heldur geta þeir líka verið fallegir. Norskir tvílitir vettlingar með stjörnumynstri gleðja augað; það sama má segja um eistneska vett- linga sem flestir eru ótrúlega lit- ríkir. Þeir ofurhugar sem setjast niður og prjóna slíkan grip eru oftar en ekki heiminum horfnir þann tíma sem tekur að ljúka verk- inu. Vettlingar eru einstaklega heill- andi handavinna sökum smæðar: maður er rétt búinn að prjóna í örstutta stund þegar manni finnst verkið hálfnað. Þá tekur því varla að hætta og því skal haldið áfram linnulaust þar til skyndilega er komin niðdimm nótt og vettlingur- inn er afgreiddur. Þá má taka sér stund til að dást að afrekinu áður en hið óumflýjanlega verður ljóst: nú er verkið fyrst hálfnað og ekk- ert annað að gera en að endurtaka allt heila klabbið speglað. Þarna er prjónaranum orðin ljós bölvun vettlingsins. Þegar einum vettlingi er lokið óskar maður þess innilega að maður væri bara með eina hönd, svo óljúft er að hefja vinnuna að nýju. Vandamálið er að væri prjónarinn einhentur legði hann tæpast stund á prjónaskap þar sem verkið krefst tveggja handa. Líkast til er best að þakka sínum sæla fyrir að handafjöldinn er ekki meiri en raun er. BÖLVUN VETTLINGSINS VIGDÍS ÞORMÓÐSDÓTTIR ER ÞAKKLÁT FYRIR TVÆR HENDUR TRYGGÐU ÞÉR ÁSKRIFT AÐ SÝN 2 Gakktu frá áskrift á Netinu og fáðu 30% afslátt af fyrsta mánuðinum. ÓDÝRARA Á NETINU 512 5100 | SYN.IS | VERSLANIR VODAFONE ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Ég kom eins fljótt og ég gat! Ég held að ég hafi stöðvað blæðinguna! Takk, pabbi. Vertu glaður að hann sé í sama húsi og við. Tvo stóra poppkornspoka, tvær júmbóstærðir af gosi og einn poka af brjóstsykri. En þarna niðri bunar alveg! Flott, Bára! Kjáni! Það blæðir ekki einu sinni! Þú lifir þetta af! Við aflimum alltaf til öryggis! Hvernig lítur þetta út? Ég skar mig á blaði! Hvað gerðist? Ég man eftir því þegar það að „fara saman í bíó“ þýddi að fólk fór á sömu mynd. Öh Við sjáumst. Smjatt smjatt Ég reyni að einbeita mér að því sem ég er bestur í.Smjatt smjatt Hver vill lita með mér? Ég er með nýja litabók, nýjan litakassa og lang- ar að deila með mér! Þetta er tímabundið tilboð! Ahh! Forðum okkur héðan!!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.