Fréttablaðið - 25.11.2007, Blaðsíða 2
2 25. nóvember 2007 SUNNUDAGUR
ÓMISSANDI OG
AÐGENGILEG!
Aðgengileg uppflettibók með
skýringum á því hvernig þú
getur túlkað vísbendingar
um fortíð þína, nútíð og
framtíð í því sem fyrir ber
í vöku og draumi.
Eftir S
ímon
Jón Jó
hanns
son
höfun
d Stór
u
draum
aráðn
inga-
bókar
innar!
Hafnaði ofan í skurði
Enginn slasaðist þegar bíll fór út af
Vesturlandsvegi skammt frá Kúludalsá
í gærmorgun. Bíllinn hafnaði ofan í
skurði og skemmdist töluvert. Mikil
hálka var á veginum þegar slysið
varð. Þá aðstoðuðu björgunarsveitar-
menn fólk sem festi bíl sinn í snjó í
Kaldadal.
Óku undir áhrifum fíkniefna
Þrír ökumenn voru stöðvaðir í
nágrenni Selfoss í fyrrinótt grunaðir
um að hafa ekið undir áhrifum
fíkniefna. Einn til viðbótar var tekinn
grunaður um ölvunarakstur.
LÖGREGLUFRÉTTIR
LÖGREGLUMÁL Karlmaður var
handtekinn við skemmtistað í
Austurstræti í fyrrinótt eftir að
hafa kýlt dyravörð í andlitið.
Maðurinn hafði reynt að smygla
áfengi inn á staðinn og brást illa
við þegar dyravörðurinn meinaði
honum inngöngu. Hann var látinn
gista fangaklefa lögreglunnar.
Þá var tilkynnt um líkamsárás á
Lokastíg þar sem maður var
sleginn í höfuðið með flösku.
Hann var fluttur á slysadeild með
minni háttar áverka. Enginn var
handtekinn vegna árásarinnar.- þo
Líkamsárásir í miðborginni:
Einn kýldur og
annar sleginn
með flösku
LÖGREGLUMÁL „Við skiptum um
rúðu í einu skýlinu klukkan tíu um
morgun og það var búið að brjóta
hana aftur klukkan tólf,“ segir
Einar Hermannsson, fram-
kvæmdastjóri AFA JCDecaux á
Íslandi, sem á og rekur stóran
hluta strætóskýlanna í borginni. Á
einni viku í byrjun nóvember voru
fimmtíu rúður brotnar í nokkrum
skýlum í Hlíðahverfi. Tjónið er
metið vel á aðra milljón.
Ekki hefur tekist að hafa hendur
í hári sökudólganna, en talið er að
tveir tólf eða þrettán ára óknytta-
drengir, sem í eitt skiptið sáust
hlaupa af vettvangi, eigi sök á
flestum eða öllum skemmdunum.
Einar segir AFA vera í góðu sam-
starfi við lögregluna vegna mála
sem þessara. Hrinunni á dögunum
lauk þó ekki fyrr en starfsmenn
AFA tóku nokkra krakka í hverf-
inu tali um alvarleika málsins.
Eitt skýlið var rúðulaust allt þar
til fyrir nokkrum dögum þar sem
ekki þótti á það hættandi að setja
fyrr gler í það að nýju – svo oft
hafði það verið brotið.
Að sögn Einars eru að jafnaði
brotnar tíu til fimmtán rúður í
skýlunum í borginni á mánuði.
Hver rúða kostar tuttugu þúsund
krónur. Einar segir að starfsmenn
AFA reyni að vakta skýlin sjálfir
að einhverju leyti með því að aka
um hverfin þar sem skemmdar-
verkin eru algengust hverju sinni.
Þó hafi komið upp hugmynd um
að vakta völd skýli með öryggis-
myndavélum. Myndavélum yrði þá
beint að skýlum sem algengt er að
séu skemmd og varað við eftirlit-
inu með límmiðum í skýlunum.
Slíkt myndi þá fyrst og fremst hafa
forvarnargildi, að sögn Einars.
„Það eru hins vegar ekki rúðu-
brotin sem eru leiðinlegust,“ segir
Einar. „Veggjakrotið er langerfið-
ast.“ Einar segir eitt og hálft stöðu-
gildi hjá fyrirtækinu fara í það
eitt að þrífa krot af strætóskýlum.
Kostnaður við það sé um fjögur
hundruð þúsund krónur í hverjum
mánuði. AFA er skuldbundið sam-
kvæmt samningi til að halda skýl-
unum hreinum og í skikkanlegu
ástandi. stigur@frettabladid.is
Ný rúða brotin eftir
tvær klukkustundir
Óknyttaunglingar brutu á einni viku fimmtíu rúður í strætóskýlum í Hlíða-
hverfi. Tjónið er vel á aðra milljón. Rúða var brotin í einu skýli tveimur tímum
eftir að hún var sett í. Komið hefur til tals að vakta skýlin með myndavélum.
LOKS LAG Nýtt gler var sett í skýli við Miklubraut í vikunni, en það hafði staðið
glerlaust um hríð svo vel gustaði um gesti þess. Ekki þótti hættandi á að laga
skýlið fyrr þar sem það var iðulega skemmt strax að lokinni lagfæringu.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
AFA JCDecaux á Íslandi á og rekur
hin svokölluðu dönsku strætóskýli
í borginni. Skýlin eru græn að lit og
að stórum hluta úr gleri.
■ Á höfuðborgarsvæðinu eru um
200 slík skýli.
■ Í hverju skýli eru sjö rúður.
■ Hver rúða kostar 20.000 krónur.
■ Að jafnaði eru brotnar tíu til
fimmtán rúður í mánuði.
DÖNSKU SKÝLIN
Ferðalög, nýtt mánaðarlegt
fylgirit Fréttablaðsins um ferða-
mennsku, kemur í fyrsta sinn út
í dag. Anna Margrét Björnsson,
ritstjóri Ferðalaga, segir
blaðinu ætlað að vera skemmti-
leg og lífleg
lesning fyrir
fólk með
ævintýraþrá.
„Í fyrsta
tölublaðinu
er sjónum
beint að
sjarmerandi
hverfum í
stórborgum –
NoLita í New
York og
Shoreditch í
London. Svo er líka fjallað um
bestu skíðasvæðin og svölustu
búðirnar fyrir jólainnkaupin,
meðal annars.“ Þá segir hún
einnig mikilvægt að verðandi
ferðalangar fái góð ráð frá
heimafólki á hverjum stað til að
forðast „hinar týpísku túrista-
gryfjur“. - sh
Nýtt fylgirit
um ferðalög
NEW YORK SÉÐ MEÐ AUGUM SILJU MAGG KAUPMANNAHÖFN ÞÓRIS SNÆS SIGURJÓNSSONAR
SHOREDITCH ER HEITASTA HVERFIÐ Í LONDON PÓSTKORT FRÁ ÍRAN OG BAHAMA-EYJUM
LEYNISTAÐIR
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
DESEMBER 2007
STRENDUR,
TINDAR OG
HVAR Á AÐ VERSLA, SNÆÐA, DJAMMA OG NJÓTA LÍFSINS?
HELSTU VIÐBURÐIR
Í DESEMBERMÁNUÐI
Í NEW YORK OG LONDON
KÓRALRIF
PRÓFAÐU FRUMLEG JÓL Í ÁR
BESTU
BREKKURNAR
SKÍÐAFÍKLAR LEYSA
FRÁ SKJÓÐUNNI
FERÐALÖG Forsíða
fyrsta tölublaðsins
LÖGREGLUMÁL Lögregluyfirvöld
vissu af því að Tomas Malakauskas,
sem dæmdur var fyrir aðild sína að
líkfundarmálinu svokallaða árið
2004, væri væntanlegur til lands-
ins. Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins var honum hleypt inn í
landið til að unnt væri að fylgjast
með ferðum hans og athöfnum.
Malakauskas hlaut árið 2004
tveggja og hálfs árs fangelsisdóm
fyrir aðild sína að málinu. Honum
var vísað úr landi þegar hann losn-
aði og hefur síðan verið í endur-
komubanni. Sérsveit Ríkislögreglu-
stjóra handtók hann á þriðjudag. Í
fórum hans fundust um 100 grömm
af amfetamíni. Hann var úrskurð-
aður í gæsluvarðhald til 30. nóvem-
ber og verður ákærður fyrir fíkni-
efnabrot og að virða ekki
endurkomubann.
Lögregluyfirvöld á Suðurnesjum
komust á snoðir um það að Mala-
kauskas væri á leið til landsins og
funduðu þá um málið með fulltrúm
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu. Hann kom svo til landsins fyrir
rúmum hálfum mánuði.
Jón Bjartmarz, yfirlögregluþjónn
hjá Ríkislögreglustjóra, segir að
þegar grunsemdir hafi vaknað hjá
greiningardeild embættisins um að
Malakauskas væri á landinu hafi
þegar verið hafin leit að honum,
sem lauk á þriðjudag. Jón segir sér
ekki hafa verið kunnugt um að
honum hafi verið hleypt vísvitandi
til landsins.
Lögregluyfirvöld funduðu um væntanlega komu líkfundarmanns til Íslands:
Lögreglan vissi af komu Malakauskas
LÍKMENN Malakauskas hylur andlit sitt
við réttarhöld. Með honum á myndinni
eru Jónas Ingi Ragnarsson og Grétar
Sigurðarson, sem einnig voru dæmdir.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
NEW YORK Það stefnir í að morð-
tíðni í New York verði með
minnsta móti þetta ár en hinn 18.
nóvember höfðu 428 morð verið
framin í borginni. Til saman-
burðar voru þau 511 á sama tíma í
fyrra. Ef fram fer sem horfir
stefnir í lægstu morðtíðni í fjóra
áratugi en hæsta tíðnin til þessa
var árið 1990 þegar 2.262 morð
voru framin.
Samkvæmt heimildum The New
York Times voru einungis 35
morð, af þeim 212 sem hafa verið
upplýst á þessu ári, framin af
ókunnugum. Flest voru afleiðing
átaka á milli glæpagengja eða ætt-
ingja. - ve
Glæpum fækkar í New York:
Aldrei færri sem
falla fyrir morð-
ingjahendi
NEW YORK Framin hafa verið rúmlega
400 morð í borginni það sem af er ári.
EINAR HERMANNSSON
NOREGUR, AP Talsmenn hjálpar-
samtaka hafa gagnrýnt norska
herinn fyrir að útbúa lækna og
annað heilbrigðisstarfsfólk, sem
fer til friðargæslustarfa í Afgan-
istan, með þungum hervopnum á
borð við vélbyssur.
Samkvæmt Genfarsáttmálanum
er heilbrigðisstarfsfólk, sem starf-
ar undir merki Rauða krossins,
ekki álitið vera þátttakendur í
átökum og má aðeins bera létt
vopn til sjálfsvarnar, svo sem
skammbyssu.
Norski herinn hefur staðfest að
þar til fyrir skemmstu hefði lækn-
um og sjúkraliðum sem störfuðu
með norska friðargæsluliðinu
stundum verið falið að manna
þungar vélbyssur er þeir voru
fluttir á milli staða í brynvögnum.
John Inge Ögländ, talsmaður
norska liðsaflans í Afganistan,
sagði að starfsreglur friðargæslu-
liðsins hefðu nú verið hertar og
þessi háttur alveg bannaður.
„Enginn sem ber árásarvopn má
bera Rauða kross-band um arm-
inn,“ sagði Trygve Nordby, fram-
kvæmdastjóri Rauða kross Nor-
egs. „Þetta er mjög alvarlegt brot
á Genfarsáttmálanum.“ - aa
NORSKAN FRIÐARGÆSLAN Norski herinn hefur staðfest að þar til fyrir skemmstu hafi
læknum og sjúkraliðum verið falið að manna þungar vélbyssur.
Norska friðargæsluliðið í Afganistan sagt hafa brotið Genfarsáttmálann:
Læknar látnir manna vélbyssur
DANMÖRK Rómantíkin réð ríkjum
hjá dönsku pari sem var meðal
þeirra 154 farþega skemmtiferða-
skipsins Explorer sem sökk á
föstudag. Skipið rakst á ísjaka
skammt frá Suðurskautslandinu,
fylltist af sjó og lagðist á hliðina.
Pilturinn bar upp bónorðið í
björgunarbátnum og sagði konan
já. Á fréttavef Jyllandsposten
segir að pilturinn hafi ætlað sér
að bera upp bónorðið um kvöldið
og því verið með trúlofunarhring-
ana í vasanum þegar farþegunum
var smalað í björgunarbátana.
Farþegar og áhöfn skipsins
sluppu ómeidd úr óhappinu og er
fólkið komið á þurrt. - þo
Strand Explorer-skipsins:
Bónorð í björg-
unarbátnum
Jón Ingi, verður þetta alveg
sjúklegur tónlistarvefur?
„Við verðum nú vonandi lækningin
frekar en sjúkdómurinn!“
Innan skamms verður opnaður alhliða
tónlistarvefur með því frumlega nafni
musick.is. Jón Ingi Stefánsson stendur að
baki síðunni.
SPURNING DAGSINS