Fréttablaðið - 25.11.2007, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 25.11.2007, Blaðsíða 8
8 25. nóvember 2007 SUNNUDAGUR Ferðafélag Íslands 80 ára Ferðafélag Íslands verður 80 ára 27. nóvember nk. Í tilefni af dagsins býður FÍ til afmælisveislu í sal félagsins Mörkinni 6 á milli kl. 18.00 - 20.00 þriðjudaginn 27. nóvember. Boðið verður kaffi og meðlæti í opnu húsi og tilvalið er að kíkja við og heilsa upp á góða félaga á þessum afmælisdegi félagsins. Ferðafélag Íslands www.fi .is • s.568-2533, Nánari upplýsingar fást í næsta útibúi SPRON, í þjónustuveri í síma 550 1400 eða á spron.is AR GU S / 07 -0 81 0 Athafnalán til kvenna SPRON, í samstarfi við Þróunarbanka Evrópu CEB og Norræna fjárfestingarbankann NIB, býður konum með mótaða og samkeppnishæfa viðskiptaáætlun, hagstætt athafnalán* til að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd. Fáðu aðstoð hjá viðskiptastjórum SPRON og draumurinn gæti orðið að veruleika! *Háð útlánareglum SPRON Nú er tækifærið! 1. Hvað heitir „líkfundar- maðurinn“ sem situr í gæslu- varðhaldi? 2. Hvað heitir skipið sem sökk skammt frá Suðurskautinu í fyrradag? 3. Í hvaða bæjarfélagi er að finna talandi brúnkuklefa? SVÖR Á SÍÐU 38 ÁSTRALÍA Kevin Rudd, leiðtogi ástralska Verkamannaflokksins, lýsti í gær yfir sigri stjórnarand- stöðunnar í þingkosningum sem fram fóru í fyrrinótt að íslensk- um tíma. Þegar sjötíu prósent atkvæða höfðu verið talin var Verkamannaflokkurinn kominn langleiðina með að tryggja sér 76 sæti sem þarf til að mynda ríkis- stjórn. John Howard, fráfarandi for- sætisráðherra og leiðtogi Frjáls- lynda flokksins, óskaði Rudd til hamingju með afgerandi sigur. Howard hefur gegnt embætti for- sætisráðherra síðustu ellefu árin. Ósigur Howards þykir sérstak- lega mikill í ljósi þess að útlit er fyrir að hann tapi einnig sæti sínu á þingi en það yrði í annað skipti í sögu landsins sem sitjandi for- sætisráðherra dettur út af þingi í kosningum. Kevin Rudd hefur einungis setið á þingi í níu ár sem er skammur tími á ástralskan mæli- kvarða. Hann virtist fara ögn hjá sér við fagnaðarlætin sem brutust út í heimaborg hans, Brisbane, þegar hann lýsti sigrinum yfir. Hann hefur heitið því að undir- rita Kyoto-sáttmálann og að kalla ástralska hermenn heim frá Írak en Howard hefur verið andvígur hvoru tveggja. - ve Ellefu ára valdatíð Johns Howard í Ástralíu lokið: Jafnaðarmenn fóru með sigur af hólmi FAGNAR SIGRI Kevin Rudd, formaður Jafnaðarmannaflokksins, fagnar sigri í þing- kosningum í Ástralíu. Honum til vinstri handar er eiginkona hans, Therese Rein, og sonur hans, Marcus. Rudd var ásamt fjölskyldu í heimaborg sinni, Brisbane, þegar úrslit kosninganna lágu fyrir. NORDICPHOTOS/AFP FERÐAMÁL Ferðamenn sem hingað koma eru mjög jákvæðir í garð Íslands og dvalarinnar hér. Þetta er niðurstaða könnunar sem Anna Karlsdóttir, lektor í ferða- málafræðum við Háskóla Íslands, hefur gert og Sunna Þórðar dóttir, verkefnastjóri markaðs- og ferðamála á Höfuðborgarstofu, kynntu við veitingu Njarðar- skjaldarins í Iðnó í vikunni. Samkvæmt niðurstöðum könn- unarinnar eyðir hver þeirra tæpum sex þúsund krónum á dag. Í sumar komu rúmlega 53 þúsund farþegar hingað og má því gera ráð fyrir að þeir hafi eytt tæpum 320 milljónum sé miðað við að þeir hafi staldrað við í einn dag. Að sögn Sunnu gáfu um 37 pró- sent farþega áfangastaðnum Íslandi bestu einkunn og um 32 prósent þá næstbestu. Einnig kom fram að farþeg- arnir hrífast mest af náttúrunni og sögðu þeir þjónustustigið hátt en maturinn fær síðri einkunn. „Það er eftir miklu að slægjast hjá fólki í verslun og þjónustu þegar kemur að þessum hópi,“ segir Sunna, „því ferðir með skemmtiferðaskipum er sú grein ferðaþjónustu sem er í hvað örust- um vexti ef miðað er við farþega- fjölda á heimsvísu. Sem dæmi má nefna að slíkir farþegar voru átta og hálf milljón fyrir tíu árum en voru orðnir 13,4 milljónir árið 2005.“ Könnunin var gerð sumrin 2004 til 2006 og tóku 2.283 farþegar af 32 skipum þátt í henni. - jse Farþegar skemmtiferðaskipa á Íslandi: Ánægðir með Íslandsdvölina LÖGREGLUMÁL Guðmundur Jónsson, sem oftast er kenndur við Byrgið, hefur kært þjófnað á munum úr Byrginu. Verðmæti munanna er metið á um tvær milljónir króna. Frá þessu er greint á fréttavef Vísis. Samkvæmt heimildum Vísis kom karlmaður að Efri-Brú, þar sem Byrgið var til húsa, og fékk þar afhenta muni úr læstri geymslu. Lögregla lýsti eftir manninum, sem fannst skömmu síðar á Sauðárkróki með þýfið. Þar sem bókhald Byrgisins var í molum kann að reynast erfitt að sanna hver réttmætur eigandi munanna er. - þo Guðmundur í Byrginu: Kærir þjófnað til lögreglunnar SUNNA ÞÓRÐARDÓTTIR Segir ferðalög á skemmtiferða- skipum í hvað örustum vexti innan ferðaþjón- ustu í heiminum. VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.