Fréttablaðið - 25.11.2007, Side 37
…eða með öðrum orðum hefur þú áhuga á
að star fa á a lþjóðlegum vettvangi?
ВЫ ЗАИНТЕРЕСОВАНЫ РАБОТАТЬ
В МЕЖДУНАРОДНОЙ КОМПАНИИ?
Actavis Group hf. Dalshrauni 1 220 Hafnarfirði s 535 2300 f 535 2301 @ actavis@actavis.com w www.actavis.com
Actavis er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu hágæðasamheitalyfja. Hjá Actavis starfa um 11 þúsund einstaklingar í 40 löndum,
sem eru reiðubúnir að taka áskorunum með það að markmiði að koma Actavis í fremstu röð samheitalyfjafyrirtækja.
Actavis leitar að metnaðarfullum einstaklingum til starfa sem eru tilbúnir að takast á við krefjandi verkefni.
Actavis leitast við að ráða starfsfólk sem:
• sýnir metnað í hverju því sem það innir af hendi
• sýnir viðskiptavinum fyrsta flokks þjónustulund
• leggur áherslu á samvinnu, því í sameiningu komumst við lengra
en við getum ein
• ber virðingu fyrir auðlindum sínum og sýnir hagkvæmni í daglegum störfum
• hefur nægan sveigjanleika til að geta gripið tækifærin sem því gefast
• sýnir framsækni og lætur hlutina gerast
Nánari upplýsingar veita Guðrún Lind Halldórsdóttir á starfsmannasviði, ghalldorsdottir@actavis.com
og Gunnar Þór Pétursson lögfræðingur, gtpetursson@actavis.com.
Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is, undir Störf í boði fyrir 2. desember n.k.
Lögfræðisvið Actavis Group leitar eftir lögfræðingi
Actavis Group leitar að lögfræðingi til starfa í höfuðstöðvum félagsins á Íslandi. Hjá Actavis starfa um 40 lögfræðingar víða um
heim og felur starfið í sér mikil samskipti við ýmis dótturfélög Actavis og aðra lögfræðinga innan félagsins.
Starfið felur í sér samningagerð, tengsl og samskipti við lögmannsstofur sem og verkefni tengd kaupum og sölu á fyrirtækjum
(M&A). Einnig er um að ræða innleiðingu á stefnumálum fyrirtækisins og ýmis verkefni og lagaleg álitaefni tengd vinnurétti,
félagarétti, samkeppnisrétti o.fl.
Starfið gerir kröfur um mjög góða enskukunnáttu, frjóa hugsun, nákvæmni og sveigjanleika. Viðkomandi þarf að vera fær um að
veita skýra ráðgjöf og taka skjótar ákvarðanir. Ákjósanlegt er að viðkomandi hafi a.m.k. tveggja ára starfsreynslu frá lögmannsstofu
eða alþjóðlegu fyrirtæki.
www.toyota.is
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 2-8
200 Kópavogur
Sími: 570-5070
Komdu og keyrðu með okkur
Toyota Kópavogi er umboðsaðili
Toyota bifreiða, vara- og aukahluta
á höfuðborgarsvæðinu. Starfsmenn
fyrirtækisins byggja gildi sín og viðmið
í starfi á The Toyota Way: Stjórnunar-,
þjónustu- og mannauðsstefnu Toyota.
Gagnkvæm virðing og náin samvinna
eru hornsteinar í daglegri starfsemi
Toyota Kópavogi. Hverri áskorun er
tekið fagnandi hendi og leita
starfsmenn stöðugt leiða til að tryggja
áframhaldandi framfarir í öllu því sem
við kemur starfsemi fyrirtækisins og
þjónustu gagnvart viðskiptavinum þess.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
4
00
85
1
1/
07
Vegna aukinna umsvifa óskum við eftir að ráða í eftirtalin störf:
Toyota í Kópavogi leitar eftir einstaklingi, í ofangreind störf, sem er
metnaðargjarn, samviskusamur og jákvæður, með ríka þjónustulund og lipur
í mannlegum samskiptum. Í boði er spennandi framtíðarstarf hjá framsæknu
fyrirtæki sem hefur á að skipa metnaðarfullu og samhentu starfsfólki.
Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá á netfangið atvinna@toyota.is merkt
viðkomandi starfi. Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 3. desember nk.
Nánari upplýsingar veitir Anna Lára Guðfinnsdóttir á netfanginu anna@toyota.is
TOYOTA Í KÓPAVOGI
Hraðþjónusta
Starfssvið:
- Smurþjónusta bifreiða og minni viðgerðir
Hæfniskröfur:
- Próf í bifvélavirkjun og/eða starfsreynsla
af smurstöð
- Reynsla af minni viðgerðum æskileg
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Mikil þjónustulund
Vinnutími: 08:00 - 17:00
Standsetning nýrra bíla
Starfssvið:
- Þrif og standsetning nýrra bíla
Hæfniskröfur:
- Reynsla af þrifum á bílum æskileg
- Vandvirkni og nákvæmni
- Góð þekking á bílum kostur
Vinnutími: 08:00 – 18:00
Verkstæðismóttaka
Starfssvið:
- Móttaka viðskiptavina
- Innbókanir á verkstæði
- Reikningagerð
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
- Góð þekking á bílum er nauðsynleg
og viðgerðarþekking kostur
- Góð grunnfærni á tölvur
Vinnutími: 07:30 - 18:00