Fréttablaðið - 25.11.2007, Blaðsíða 93

Fréttablaðið - 25.11.2007, Blaðsíða 93
SUNNUDAGUR 25. nóvember 2007 HAFA HUGMYNDIR UM NÝJA ÞULI Unnur: „Á ég ekki bara að velja Jón Baldvin? Hann er svona föðurleg týpa. Heldurðu að hann verði nokkuð fúll út í mig – fyrir að stinga upp á honum?“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ætti yrði það stofnað. Ég er fyrst og fremst forvitinn ferðalangur í bókinni en það ber tvímælalaust að bera virðingu fyrir þeim sem sjá og skynja meira en við. Ágúst: Hvað gráa fiðringinn varð- ar þá átti ég mitt gráa fiðrings ár þegar ég var 39 ára. Ég lenti nú ekki í neinum vondum ástarmál- um. En ég lenti í einhverjum rosa- legum komplexum út af því að ég var að verða fertugur og gerði líka einhverjar óraunhæfar kröfur um að hjónaband mitt og konunnar minnar ætti að vera aftur eins og þegar við vorum að byrja saman. Hún hefur sagt við mig að ég hafi verið ofsalega undarlegur þetta ár. Síðan hefur þetta bara verið fínt. En ég óttast samt að það komi annað svona ár þegar ég verð 49 ára. Unnur: Já, ég held að konur geti alveg upplifað gráa fiðringinn líka. Hann kannski birtist öðruvísi og hefur þess vegna ekki hlotið þetta nafn. En konur fara að upplifa kynlíf mikið betur með aldrinum og ég held það geti alveg hellst allt í einu yfir konur að vilja víkka sjóndeildarhringinn. Ágúst: Ég held að það sem skipti máli sé að horfast í augu við þetta og tala um þessar kenndir. Ef fólk velur að vera í sama hjónabandinu mjög lengi, þótt ég sé ekki að segja að það eigi endilega að vera þannig, þá auðvitað koma upp svona krís- ur. Og þá má rífast og vinna með þær. Mun frekar en að burðast með þetta allt í hljóði. Unnur: Ætli það sé ekki líka bara mjög algengt, fólk finnur kannski einhverjar tilfinningar af þessum toga en tilveran er svo hröð að það má ekki vera að því að spá í þær. Bloggar og bloggar ekki Nú ert þú, Ágúst Borgþór, bloggari mikill. Hvaða blogg eru í eftirlæti hjá þér? Lest þú, Unnur, eða skrif- ar blogg? Ágúst Borgþór: Blogg Egils Helga- sonar er í eftirlæti og svo finnst mér líka mjög gaman að lesa blogg fólks sem er ólíkt mér. Til dæmis hef ég mikið lesið blogg eftir ungar konur og það hjálpaði mér líka við að skrifa bókina. Ein þeirra heitir katrin.is – hún er mjög skemmti- leg. Ofsalega ólík mér en hún hefur svona spontant hugsunar- hátt sem er mjög ólíkur mér. Unnur: Já, hún er mjög skemmti- leg. Ég myndi aldrei fara að blogga nema ég fengi borgað fyrir það. Ágúst Borgþór: Það er gott mottó. Unnur: Þá skriftarorku sem ég hef reyni ég að nota í bók. En nú síðan í haust eftir að ég fór að vinna hjá Skógrækt Reykjavíkur hefur mig svolítið langað til að prófa að blogga. Fyrst fannst mér alltaf tímasóun að detta niður á blogg en núna er ég farin að kunna að lesa inn á þetta því oft fá bloggarar ein- hver komment og það skapast umræður. Og ég sem er hérna ein uppi í Heiðmörk get þá fylgst með hvað fólk er að spá og skrifa um. Ég fer mest inn á bloggin í gegn- um Moggann og þar er til dæmis kona sem heitir Jenný Anna Bald- ursdóttir og önnur sem heitir Jóna sem mér þykja mjög skemmtileg- ar. Ánægð með Egil Helgason Úr bloggi í sjónvarpssal. Hver er ykkar eftirlætis íslenska sjón- varpsþáttaröð og hvert skyldi vera eftirminnilegasta atvikið úr íslensku sjónvarpi fyrr og síðar? Og nú þegar þjóðin hefur fengið heilt sett af nýjum þulum – hvaða þjóðþekkta einstakling, sem ekki starfar við sjónvarp, mynduð þið vilja fá sem þulu? Ágúst: Næturvaktin er í uppáhaldi. Hún einhvern veginn sameinar það að vera eins og Fóstbræðra- þáttur, með rugluðu gríni, en samt nær hún líka að vera raunsæisleg og sorgleg. Og leikurinn er frá- bær. Virkilega vel lukkað. Unnur: Ég sá einmitt um daginn þegar ég horfði á Edduna hvað það er mikið sjónvarpsefni sem fer framhjá mér þar sem ég er ekki með Stöð 2. En mér finnst Egill Helgason mjög góður og ég fagna því að fá hann í Ríkissjónvarpið. Sterkur sjónvarpsmaður og virki- lega gaman að sjá hann koma inn. Ég var mjög hissa fyrst á því að hann ætti að vera með bókmennta- þátt, hélt það ætti frekar að vera einhver bókmenntafræðingur, en mér finnst hann gera þetta mjög skemmtilega og hann er með þenn- an sjónvarpssjarma sem er svo nauðsynlegur. Ágúst Borgþór: Eftirminnilegasta atvikið er svo þegar ríkisstjórnin var sprengd í beinni útsendingu árið 1988. Mig minnir að það hafi verið þannig að Jón Baldvin og Steingrímur Hermannsson hafi komið og rekið hnífinn í bakið á Þorsteini Pálssyni – en kennt Þor- steini um þetta allt saman. Þetta var mjög óvenjulegt, og sérstak- lega á þessum tíma, þegar allt var svona stilltara og fjölmiðlum hald- ið svolítið í skefjum af stjórnmála- mönnum. Jón Baldvin var svo óþekkur, hann átti svo erfitt með að haga sér eftir bókinni. Unnur: Það er alltaf brennt inn í huga minn þegar menn fóru fyrst til tunglsins. Ég sá það í sjónvarpi og sjónvarp var þá líka frekar nýtt. Ágúst Borgþór: Árið 1969? Þú átt nú ekkert að muna neitt eftir því. Unnur: Er það ekki? Ég var 14 ára. Ágúst Borgþór: Varstu 14 ára? Hvað ertu að segja? Unnur: Haha! Er ég svona ung- leg? Ágúst Borgþór: En að velja þulu segirðu. Þorgerður Katrín væri náttúrlega frábær. Unnur: Á ég ekki bara að velja Jón Baldvin? Hann er svona föðurleg týpa. Heldurðu að hann verði nokkuð fúll út í mig – fyrir að stinga upp á honum? Ágúst Borgþór: Nei, nei. Ég held það væri mjög gott að fá ábúðar- fulla stjórnmálamenn í þetta. Já, já, já, já Að kækjum. Eruð þið með ein- hverja kæki og hvaða kækjum takið þið helst eftir? Ágúst: Ég á það til að líta undan þegar ég tala við fólk. Ég var rosa- lega feiminn sem krakki en svo breyttist ég í algjöra andstæðu. En það virðist eima af því og birtast í þessu. Er það kækur að reima aldrei skóna sína? Unnur: Alltaf þegar ég er mjög ánægð fara litlu puttarnir mínir út í loftið. Ágúst: Áttu að upplýsa svona lagað? Unnur: Kannski ekki, en vinir mínir hafa tekið eftir þessu og bent mér á þetta og þetta er orðið svona frekar opinbert. Ágúst Borgþór: Í tali finnst mér mjög áberandi að fólk byrjar allar setningar á „hérna“. Unnur: Og „heyrðu“. Ágúst: Færeyingar kölluðu okkur oft já-ara. Af því við sögðum alltaf já, já, já, já, já, já. Unnur: Svo tölum við Íslendingar svolítið mikið á innsoginu og jánk- um á innsoginu: (dregur inn and- ann): Jáhhh! Ég er búin að flokka þetta sem þjóðareinkenni. Vinir mínir í Kaliforníu bentu mér á þetta fyrst og fóru að hlæja þegar ég sagði yes á innsoginu en þeir þekktu marga Íslendinga sem töl- uðu svona. Að lokum. Ef þið mættuð bæta einni spurningu inn í viðtalið – handa hvort öðru – hver yrði hún og hvert yrði svarið? Unnur: Hvað finnst þér mikilvæg- ast í lífinu? Ágúst Borgþór: Maður getur ekki verið frumlegur þegar maður fær svona spurningu. Börnin. Unnur: Sammála. Ágúst Borgþór: Ég er ekki með svona merkilega spurningu. Unnur: Komdu með hana. Ágúst: Það er hvort þú sért að fara að sigla eitthvað? Unnur: Nei. Ég seldi skútuna fyrir tuttugu árum. En maður veit aldrei. Mér finnst orðið skemmti- legast að vera á Íslandi og heima hjá mér. Ég reyni að ferðast sem minnst núorðið. Fréttablaðið stendur fyrir samkeppni á bestu ljósmynd af friðarsúlunni eftir Yoko Ono í Viðey. Myndin má sýna súluna frá hvaða fjarlægð eða sjónarhorni sem er. Myndirnar skulu sendar á fridarsula@frettabladid.is fyrir 1. desember næstkomandi. Í boði eru þrír glæsilegir Canon vinningar frá Nýherja og verða vinningsmyndirnar birtar í helgarblaði Fréttablaðsins 8. desember, á dánardegi John Lennon.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.