Fréttablaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 76
40 7. desember 2007 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
MERKISATBURÐIR
1879 Jón Sigurðsson forseti
andast í Kaupmannahöfn,
68 ára að aldri.
1881 Minnisvarði um Jón Sig-
urðsson forseta er afhjúp-
aður á gröf hans í Hóla-
vallakirkjugarði í Reykja-
vík.
1936 Í Bjarneyjum á Breiða-
firði rignir skyndilega síld
og var talið að skýstrókur
hefði náð að sjúga upp
síldina er hann átti leið
yfir sjó.
1982 Charles Brooks Jr. er fyrsti
maðurinn sem tekinn
er af lífi með banvænni
sprautu í Bandaríkjunum.
1995 Geimferjan Galileo lendir
á Júpiter rúmlega sex
árum eftir að henni var
skotið á loft.
NOAM CHOMSKY MÁLVÍSINDA-
MAÐUR, HEIMSPEKINGUR OG
RITHÖFUNDUR ER 79 ÁRA Í DAG.
„Ef við trúum ekki á mál-
frelsi þeirra sem við fyrir-
lítum, trúum við ekki á það
yfirleitt.“
Chomsky er afkastamik-
ill rithöfundur og fræðimað-
ur. Af þekktustu ritum hans
má nefna; Syntactic Struct-
ure, Deterring Demcracy og
Manufactoring Consent.
Þennan dag árið 1972 hélt Apollo 17-geimferjan
til tunglsins en það var síðasti Apollo-leiðangur-
inn af sex sem farnir voru. Þetta er jafnframt í
síðasta skipti menn hafa lent á tunglinu. Næsta
mannaða ferð til tunglsins er ekki áætluð fyrr en
árið 2019.
Á leið sinni frá jörðu tók áhöfnin á Apollo 17
fræga mynd af jörðinni sem er kölluð „The Blue
Marble“, bláa marmarakúlan.
Apollo-leiðangrarnir voru farnir á árunum 1961-
1975 á vegum geimferðastofnunarinnar NASA og
var markmið þeirra að koma mönnuðum geim-
förum á tunglið. Það markmið náðist í fyrsta
skipti árið 1969 þegar þeir Neil Armstrong og
Buzz Aldrin stigu þar fæti en geimferja þeirra bar
nafnið Apollo 11. Tvö afdrifarík mistök urðu í Ap-
ollo-leiðöngrunum. Hið fyrra leiddi til þess að
þrír geimfarar fórust með Apollo 1 og í Apollo
13 leiddu sprengingar innanborðs til mikilla
skemmda en þó ekki manntjóns.
ÞETTA GERÐIST: 7. DESEMBER 1972
Síðasta mannaða geimferðin til tunglsins
Grunnskólinn á Þingeyri fagnaði 110
ára afmæli sínu í lok síðasta mánaðar.
Af því tilefni efndu nemendur skól-
ans til þemadaga þar sem þeir viðuðu
að sér upplýsingum um sögu skólans
og buðu svo bæjarbúum til afmælis-
veislu.
Borgný Gunnarsdóttir hefur lengst-
an starfsaldur við skólann, en hún hóf
þar kennslu árið 1974. Hún gekk sjálf
í skólann frá árinu 1960 og þekkir því
starfsemi hans og sögu býsna vel.
„Ég er búin að fylgjast með ýmsum
breytingum á mínum ferli og má þar
nefna lengda skólaskyldu í báða enda,
einsetningu skóla, samræmd próf
og samkennslu,“ segir Borgný, sem
kennir handmennt ásamt því að vera
bekkjarkennari og hefur einnig fylgst
með talsverðum breytingum á skóla-
húsnæðinu hin síðari ár.
Skólastarfið hófst árið 1897 og voru
það foreldrar í hreppnum ásamt hrepp-
stjóranum Jóhannesi Ólafssyni, sem
ákváðu að stofna skóla. Þá var ekkert
skólahúsnæði og fór kennslan fyrsta
árið fram í nýbyggðu heimahúsi. Svo
var kennt í stúkuhúsi í nokkur ár en
árið 1908 var ráðist í nýbyggingu.
„Lítið skólahús reis á einu sumri.
Það er enn í notkun og köllum við það
þinghúsið,“ segir Borgný og heldur
áfram: „Þá erum við að kenna í við-
byggingu við það hús sem upphaflega
var leikfimissalur. Árið 1980 var svo
mikið byggt við skólann“.
Í þemaviku í tilefni tímamótanna
unnu nemendurnir, sem í dag eru sex-
tíu og þrír talsins,ýmis verkefni tengd
sögu skólans.
„Nemendurnir settu upp tímaás þar
sem meðal annars kom fram hvenær
húsið var byggt og í hvaða húsum var
kennt. Þá unnu þau ýmsar tölfræði-
upplýsingar um nemendafjölda og
gerðu sér í hugarlund hvernig fram-
tíðar kennsluhættir yrðu. Svo hringdu
þau í eldri nemendur sem höfðu út-
skrifast með ákveðnu árabili til að at-
huga hvað þeir væru að gera í dag. Þau
könnuðu hvort nemendurnir hefðu
farið í framhaldsskóla og hvaða störf-
um þeir gegndu í dag,“ útskýrir Borg-
ný, sem segir að allir hafi haft sérstak-
lega gaman af einum fyrrverandi nem-
enda sem fannst í þessu grúski.
„Krakkarnir komust að því að for-
seti Íslands, Herra Ólafur Ragnar
Grímsson, byrjaði sína skólagöngu í
skólanum tíu ára gamall. Þetta fannst
þeim mjög merkilegt,“ segir Borg-
ný og nefnir einnig sundkennsli fyrri
ára. „Þeim fannst líka mjög áhugavert
að komast að því að nemendum hefði
verið kennt að synda í sjónum hér í
kring. Þau fundu myndir af brosandi
börnum með kollana upp úr ísköldum
sjónum og fannst þau heldur hugrökk
en hér er nú komin fínasta sundlaug og
íþróttaaðstaða,“ segir hún.
Daginn sem haldið var upp á afmæl-
ið gerði vonskuveður í bænum en þó
kom mikill fjöldi gesta. „Þau voru öll
mjög fræðandi og skemmtileg enda
eru þetta yndislegir krakkar. Og ég
held að þau séu bara ánægð með skól-
ann sinn,“ segir Borgný.
vera@frettabladid.is
GRUNNSKÓLINN Á ÞINGEYRI: 110 ÁRA AFMÆLI FAGNAÐ Í VONSKUVEÐRI
Fyrsti skólabekkur forsetans
ÞEMAVIKA Á TÍMAMÓTUM „Krakkarnir unnu söguverkefni í tilefni afmælisins og eitt það sem kom mest á óvart var að sundkennslan fór fram í
sjónum fyrr á árum,“ segir Borgný Gunnarsdóttir, sem hefur lengstan starfsaldur við skólann. MYND/HALLDÓR SVEINBJÖRNSSON BB
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ást-
kærs eiginmanns, föður, tengdaföður og
afa,
Gunnars Páls Ívarssonar,
Norðurfelli 7.
Jónína Ragnarsdóttir
Andrea Margrét Gunnarsdóttir
Katrín Sylvía Gunnarsdóttir Gunnþór Jónsson
Gunnar Páll Torfason
Heimir Páll Ragnarsson
Ástkær systir okkar,
Margrét K. Bjarnadóttir,
Egerisvej 41, Skive, Danmörku,
lést 19. nóvember sl. á líknardeild sjúkrahússins í Skive.
Útför hennar var gerð frá Egeriskirkju, Skive,
24. nóvember.
Halldóra Bjarnadóttir
Svandís Bjarnadóttir
Guðrún Bjarnadóttir
Ingimar Bjarnason
AFMÆLISBÖRN
JÓHANNA
VILHJÁLMS-
DÓTTIR
sjónvarps-
kona er 37
ára í dag.
ÓLAFÍA
HRÖNN
JÓNSDÓTTIR
leikkona er
45 ára í dag.
JÓHANN
ÁRSÆLSSON,
fyrrverandi
alþingis-
maður, er 64
ára í dag.
GUÐMUND-
UR HALL-
VARÐSSON,
fyrrverandi
alþingis-
maður, er 65
ára í dag.
Síðastliðið sumar var gerð
samnorræn könnun þar
sem erlendir ferðamenn
voru spurðir um væntingar
sínar til borganna sem þeir
heimsóttu auk hreinleika.
Reykjavík mældist hreinust
þeirra borga sem tóku þátt
og í ljós kom að bæði væntu
ferðamenn þess að Reykja-
vík væri hrein borg og að-
spurðir eftir að heim var
komið reyndist borgin hafa
verið enn hreinni en þeir
höfðu gert sér hugmyndir
um.
Hins vegar reyndist Kaup-
mannahöfn vera óhreinust
að mati aðspurðra.
Auk Reykjavíkur og
Kaupmannahafnar tóku þátt
Stokkhólmur, Osló, Hels-
inki, Tallinn, Riga, Vilnius,
Århus, Malmö, Uppsalir,
Bergen, Tampere og Turku.
Höfuðborgarstofa er full-
trúi Reykjavíkurborgar í
verkefninu og hefur kynnt
Reykjavík undir yfirskrift-
inni Pure Energy.
Sjá nánari upplýsingar
www.reykjavik.is
Reykjavík hreinust
HREIN OG FÍN Að mati aðspurðra erlendra ferðamanna er Reykjavík
einstaklega hreinleg og aðlaðandi borg.
Skíðavertíðin er hafin af
fullum krafti í Hlíðarfjalli á
Akureyri. Fjallið var opnað
í fyrsta sinn í vetur fyrir al-
menningi í gær klukkan 17 og
þá var boðið upp á lyfturnar
Fjarkann, Auði og Stromp-
lyftu. Aðrar lyftur verða opn-
aðar á næstu dögum eftir því
sem snjóalög leyfa.
Opnunin er að öllu leyti
að þakka hinu öfluga snjó-
framleiðslukerfi í fjall-
inu. Það er rekið með stuðn-
ingi Vina Hlíðarfjalls, sem
er hópur fyrirtækja sem
vilja með starfssamningn-
um renna styrkum stoðum
undir rekstur skíðasvæðisins
í Hlíðarfjalli.
Um helgina og næstu daga
verður hefðbundinn opnun-
artími og gert er ráð fyrir
góðu skíðatímabili yfir hátíð-
arnar. Sjá allar nánari upp-
lýsingar: www.hlidarfjall.is
Hlíðarfjall opið
SKÍÐAVERTÍÐIN HAFIN Norðan-
menn og aðrir gestir geta komist
á skíði í Hlíðarfjalli um jólin.