Fréttablaðið - 13.12.2007, Síða 26

Fréttablaðið - 13.12.2007, Síða 26
26 13. desember 2007 FIMMTUDAGUR nám, fróðleikur og vísindi ´80-´81 ´85-´86 ´90-´91 ´95-´96 ´00-´01 ´05-´06 61 ,1 % 47 ,8 % 37 ,5 % 42 ,4 % 29 ,3 % 46 ,7 % HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS Birna Varðardóttir er nemandi í áttunda bekk í Ingunnarskóla í Grafarvogi. Í Ingunnarskóla eru prófin í janúar og því er skóladag- urinn hefðbundinn fram í miðja næstu viku. „Fljótlega verðum við með kynn- ingu þar sem við kynnum foreldrum og systkinum það sem við höfum verið að gera í hverju fagi fyrir sig í skólanum í vetur. Svo er bara verkefnavinna fram undan,“ segir Birna. „Við erum alltaf í hópa- verkefnum eða einstaklings- verkefnum í samfélagsfræði, náttúrufræði og fleiri fögum. Þar erum við að vinna plaköt og svo erum við að taka upp í Windows Movie Maker og erum að gera alls konar þætti, powerpoint og svo gerum við náttúrulega ritgerðir.“ Íslenskan er uppáhalds- fag Birnu. „Ég hef svo mikla tilfinningu fyrir málinu og mér finnst gaman að skrifa ritgerðir og skáldsögur. Ég er komin á undan í íslensku þannig að ég er í öðru námsefni en hinir í bekknum. Ég er í málfræði og síðan skilum við reglulega staf- setningu og ritgerðum. Flestir, sem ég er með, eru í áttunda bekkjar námi en ég er í níunda og tíunda bekkjar námi. Á næsta ári tek ég bókmenntir og fleira og útskrifast síðan ári fyrr úr grunnskóla.“ Birna er langhlaupari hjá Bootcamp og FH. Hún æfir fimm til sex sinnum í viku og hefur sett stefnuna á að hlaupa hálft maraþon í mars. Hún á besta tíma telpna 13-14 ára í 10 kílómetra hlaupi árið 2007. Hún segist alveg hafa tíma til að æfa svona mikið með skólanum. Þetta sé bara spurning um að skipuleggja sig. Áður hafi hún æft skauta og sund en núna hafi hún fundið sig í hlaupun- um. „Hitt sportið átti ekki alveg við mig en nú er ég komin á flottan stað,“ segir hún. Kjarni málsins > Hlutfall tvítugra einstaklinga sem eru stúdentar. Ágústa Guðmarsdóttir sjúkraþjálfari lauk nýverið meistaraverkefni um vinnu- umhverfi leikskólastarfs- manna í Reykjavíkurborg. Í ljós kom að margt mátti betur fara, enda hávaðinn mikill, vinnuhæð of lág og byrðar þungar. „Í ljós kom að hávaði var mjög mikill; meiri en miðað er við að hann sé að hámarki í verksmiðj- um,“ segir Ágústa. Í tíu mælingum af fjórtán fór meðaltalshávaðinn yfir 85 desibel (dB). Hvell hljóð mega ekki mæl- ast hærri en 110 desibel, en 13 af 14 mælingum fóru í 112-125 dB. „Þetta þýðir að starfsmenn á leik- skólum eru alltaf að vinna í hávaða. Við skoðuðum því ýmsa möguleika á úrbótum, svo sem hljóðeinangrandi plötur í loftin, lampa sem sýna hversu mikill hávaði er í herberginu og dúka á borð,“ segir Ágústa. Hún athugaði einnig byrðar leikskólakennara, sem reyndust of þungar, og vinnu- hæð þeirra, sem reyndist of lág. „Við tókumst á við þann vanda með fræðslu um líkamsbeitingu og nýjum vinnutækjum, svo sem vinnustólum á hjólum, hærri vinnuborðum og stólum fyrir börnin.“ Starfsmenn leikskólanna svör- uðu spurningum um heilsu sína, vinnuumhverfi, félagsleg sam- skipti og andlega og líkamlega líðan. „Í ljós komu allt of mikil álags- einkenni til dæmis frá hrygg, hálsi og herðum. Um sjötíu prósent starfsmanna fundu til í einu eða fleiri svæðum í líkamanum. Kjara- viðræður leikskólakennara árið 2001 höfðu einnig áhrif á starfs- umhverfið, því þá sömdu þeir um hærri laun gegn því að sjá um fleiri börn. Ég held að það hafi verið stærstu mistök sem gerð hafa verið, því fleiri börn auka tímapressu og hávaða.“ „Það er ekki nóg að senda starfs- menn í sjúkraþjálfun og til lækna, því þá eru bara færri eftir á leik- skólanum, sem veldur streitu og samviskubiti. Fyrirbyggjandi aðgerðir eru vænlegri til árangurs en viðgerðarþjónusta.“ Ágústa segir ýmsar úrbætur hafa verið gerðar en margt megi þó gera betur og mikilvægt er að fylgja eftir þeim árangri sem náðst hefur. eva@frettabladid.is Hávaðasamir leikskólar ÁGÚSTA GUÐMARSDÓTTIR Starfsmenn leikskóla vinna stöðugt í hávaða sem veldur streitu í starfi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR HÁVAÐAMÆLIR Hávaðamælir sýnir hversu mikill hávaði er inni í herberginu. Gult ljós táknar 80 desibel og rautt tákn- ar 85 desibel. NEMANDINN: BIRNA VARÐARDÓTTIR GRUNNSKÓLANEMI Nú er ég komin á flottan stað FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V Ö LU N D U R Nýr orðleikur kemur út fyrir jólin. Hallgrímur Axelsson verkfræðingur þýddi Orðaskak úr ensku. „Spilið gengur út á að búa til íslenskt orð. Þetta er ekki krossgáta í anda Scrabble, heldur býr hver til sitt orð. Aðrir geta síðan rænt orðinu og breytt því,“ segir Hallgrímur. Orðaskak er upphaflega bandarískt spil en hefur komið út í mörgum löndum víðs vegar um heiminn og hlotið ófá verðlaun. „Börnum frá átta ára gengur mjög vel að spila spilið. Ég hef spilað með yngri börnum en þá skipt- um við gjarnan í lið og höfum einn stálpaðri krakka með.“ Hallgrímur segir kostinn við spilið vera að það þjálfi fólk íslensku máli og svo sé ákveðin spenna í því, þeir sem séu útsjónarsamir að smíða íslensk orð vinni gjarnan spilið. Fjölskyldufyrirtæki Hallgríms, Orðaskipti, gefur spilið út. Hallgrímur starfaði áður sem verktaki en söðlar nú um. „Ég á þrjá syni sem eru með í þessu. Vonandi munum við gefa fleiri spil út. Það er til barnaútgáfa af þessu spili sem við gefum vonandi út á næsta ári.“ Hallgrímur segir viðmiðunarverð Orðaskaks út úr búð vera tæpar fimm þúsund krónur og það sé nú fáanlegt í fjölmörgum verslunum víða um land. - eb Nýr orðaleikur kemur út fyrir jólin: Fjölskylda gefur út Orðaskak HALLGRÍMUR AXELSSON Leikreglur Orðaskaks eru þannig að allir leikmenn draga einn staf. Sá fyrsti setur sinn staf í borðið og reynir að búa til orð. Ef það er hægt er það sett á plastskinnu og sá sami heldur áfram meðan hann getur búið til ný orð. Næsti leikmaður getur rænt orðinu og býr hann þá til nýtt orð úr stöfunum. Sá vinnur sem fyrstur getur myndað sex orð. Stjórnun innan heilbrigðisþjónust- unnar er ný námsleið í diplómu- og meistaranámi í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri. Að námsleiðinni standa heilbrigðisdeild og viðskipta- og raunvísindadeild. Námið hefst á vorönn 2008. Mögulegt er að ljúka 15 eða 30 eininga diplómunámi og 60 eininga meistaranámi í heilbrigðisvísindum með áherslu á stjórnun innan heilbrigðisþjónustunnar. Umsækjendur þurfa að hafa lokið BS-námi á sviði heilbrigðisvísinda og er umsóknarfrestur til 2. janúar. ■ Háskólinn á Akureyri Nýtt nám í stjórnun í heilbrigðisþjónustu Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tekur í dag skóflustungu að nýbyggingu Sæmundarskóla við Gvendargeisla í Grafarholti. Sæmundarskóli var áður hluti af Ingunnarskóla en varð sjálfstæður grunnskóli í janúar síðastliðnum. Í dag stunda 192 börn nám í bráðabirgðahúsnæði skólans en nýja byggingin mun rúma um 420 nemendur. Gert er ráð fyrir að skólahúsið verði tilbúið í byrjun ársins 2010. Íbúar í eystri hluta Grafarholts eiga skólavist í Sæmundarskóla. Athöfnin hefst klukkan 14.30 og að sjálfsögðu munu nemendur aðstoða borgar- stjórann við moksturinn. ■ Sæmundarskóli Skóflustunga að nýbyggingu Árni Björnsson þjóðháttafræðingur heldur fyrirlestur í Aðalstræti 16 á Land- námssýningunni, klukkan þrjú á laugardaginn, um jól í heiðnum sið. Staðurinn hæfir umræðuefninu vel því fastlega má gera ráð fyrir því að þar hafi verið haldin jól í heiðni. Áætlað er að fyrirlestur Árna taki um klukkustund en þá tekur Ari Trausti Guð- mundsson jarðeðlisfræðingur við og fræðir fólk um landnám Íslands, eldgos og aldursgreiningar. Þá les hann úr skáldsögunni Land þagnarinnar en sögumaður þar er einmitt eldfjallafræðingur. Því næst les Bjarni Gunnarsson úr nýútkominni ljóðabók sinni, Blóm handa pabba. Aðgangur að fyrirlestrinum og upplestrun- um er ókeypis og öllum heimill. ■ Landnámssýning í Reykjavík Jól í heiðni, eldgos og blóm handa pabba Grunnskólakennarar í Reykjavík, sem vilja efla þekkingu sína á jafnréttisfræðslu, geta á næsta ári sótt sér símenntun á því sviði. Þetta var samþykkt á fundi menntaráðs í vikunni. Í greinargerð meirihluta menntaráðs segir meðal annars að jafnréttisfræðsla í skólum sé afar mikilvæg og er vísað því til stuðnings í rannsókn sem gerð var fyrr á árinu sem sýndi að bakslag hafði orðið í jafnréttisbaráttunni þar sem hugmyndir ungmenna um jafnréttismál, sem og náms- og starfsval, eru nú mun íhaldssamari en var fyrir um áratug. Lagt er til í samþykktinni að slík símenntun verði metin til eininga og að kennsluafsláttur verði veittur að námskeiðum loknum. Námskeiðin hefjast strax næsta haust. ■ Menntasvið Reykjavíkur: Jafnréttisfræðsla efld í grunnskólum Tillaga sem nefnist Bræðingur varð hlutskörpust í samkeppni sem Mosfellsbær efndi til um hugmyndafræði og hönnun Krikaskóla í Mosfellsbæ. Höfundar tillögunnar voru Einrúm arkitektar, Arkiteó, Suðaustanátta, VSB, Helgi Grímsson, Andri Snær Magnason og Sigrún Sigurðardóttir. Í umsögn dómnefndar sagði meðal annars að skólastefnan væri kenningarlega vel undirbyggð og setti skóla og einstaklinga í eftirtektarvert samhengi við samfélagið, með áherslu á að litlar pollagallamanneskjur í litlum skóla geta breytt heimsmynd mannanna. Gert er ráð fyrir að Krikaskóli verði fyrir um 200 börn og að skólastarf hefjist þar á skóla- árinu 2007 til 2008. Áformað er að nýtt húsnæði skólans verði tekið í notkun í upphafi skólaárs 2009 til 2010. ■ Bræðingur í Krikaskóla í Mosfellsbæ Pollagallamanneskjur breyta heiminum Eftir Ólöfu frá Hlöðum liggur mikið safn verka, jafnt birtra sem óbirtra. Á þessu ári eru 150 ár liðin frá fæðingu skáld- konunnar og í tilefni þess flytur Helga Kress, prófessor í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands, opinberan fyrirlestur um ævi og verk Ólafar á vegum Hugvísindastofn- unar og Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum. Fyrirlest- urinn verður fluttur í Hátíðasal Háskóla Íslands í dag klukkan tólf um hádegi og nefnist hann „Hugsað, skrifað, elskað, ort“: Um ævi og verk Ólafar Sigurðardóttur frá Hlöðum. ■ Skáldkonan Ólöf frá Hlöðum Nokkur smákvæði og fjöldi óbirtra verka
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.