Fréttablaðið - 13.12.2007, Page 41
[ ]Jólapakkar geta verið mikið fyrir augað ef vel er gert. Gaman er að láta hugmyndaflugið reika og útbúa fallega og skemmtilega jólapakka.
Öll sjö ára börn í Melaskóla fá stjörnu að gjöf
frá Sigurði Guðmundssyni tæknifræðingi þegar
þau heimsækja eldri borgarana á Aflagranda.
Í Melaskóla hefur skapast sú hefð að sjö ára bekkur
heimsæki félagsmiðstöð eldri borgara á Aflagranda
á aðventunni. Fréttablaðið fékk að fylgjast með slíkri
stund einn daginn er hófst á því að Magdalena Thor-
oddsen, fyrrverandi blaðamaður, sagði börnunum frá
bernskujólum sínum á Patreksfirði. Börnin röðuðu
sér á gólfið kringum hana og hlustuðu andaktug.
Þegar hún lýsti því að jólagjafirnar sem hún hefði
fengið sem barn hefðu einkum verið spil og snúin
kerti heyrðist þó raulað í hópnum „kert‘og spil,
kert‘og spil, í það minnsta kert‘og spil. Að sjálfsögðu
var það svo sungið fullum hálsi af öllum á eftir.
Næst var komið að hinum níræða Sigurði Guð-
mundssyni að gefa hverju barni stjörnu sem hann
hafði sjálfur gert. „Ég var á spítala þegar ég var 13
ára og þá var þar strákur sem kenndi mér að búa til
svona stjörnu,“ útskýrði hann og fræddi börnin
aðeins um sína skólagöngu. Þar kom fram að hann
þurfti að labba 45 mínútur í skólann daglega einn
veturinn. Að sögustund lokinni var sest að borðum
þar sem börnin gæddu sér á kakói og kökum.
Þessar samverustundir Melaskólabarna og eldri
borgara komust á í kringum aldamótin síðustu.
Sigurður er búinn að gefa ótal stjörnur gegnum árin
þannig að þær prýða orðið fjölda jólatrjáa í Vesturbæ
Reykjavíkur. gun@frettabladid.is
Hvítar stjörnur á hvert jólatré
Stjörnuna lærði Sigurður að búa til þegar hann lá á spítala
sem unglingur.
Börnin eru sæl og glöð með stjörnuna frá Sigurði sem hefur búið til í kringum hundrað þetta árið. „Þetta er mín dægradvöl,“
segir hann. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Auglýsingasími
– Mest lesið
Hlýlegar jólagjafir
HEIMATILBÚNAR JÓLAGJAFIR HITTA
OFTAST Í MARK.
Hugurinn er það sem gildir þegar
kemur að því að gefa jólagjafir og
ef gjafirnar eru heimatilbúnar efast
enginn um umhyggjuna að baki
þeim. Heimaprjónaðir vettlingar
eru til dæmis jólagjöf sem hlýjar
flestum jafnt um hjartarætur og
hendur. - eö
Rauðarárstíg 1 • sími 561-5077
opið laugardag 10:00-18:00
sunnudag 13:00-17:00
Mini hafrafitness
Holtagarðar & Smáralind & Kringlunni
Nú er Jói Fel byrjaður að undirbúa jólin.
Leggjum mikinn metnað í að vera með
ferskt og gómsætt bakkelsi á boðstólnum
fyrir viðskiptavini okkar.