Fréttablaðið - 31.12.2007, Blaðsíða 16
16 31. desember 2007 MÁNUDAGUR
UMRÆÐAN
Áramótaávarp
I
Þau tímamót urðu í íslenskum stjórnmálum á árinu að mynd-
uð var ríkisstjórn með þátttöku
Samfylkingarinnar. Sú frjálslynda
umbótastjórn hefur einsett sér að
vinna að kraftmiklu efnahagslífi,
öflugri velferðarþjónustu, bætt-
um hag heimilanna og aukinni
samkeppnishæfni atvinnulífsins.
II
Við ríkisstjórninni blasti þegar
erfitt verkefni: Að bregðast við
minnkandi fiskistofnum með
þriðjungs niðurskurði þorsk-
kvótans á næsta fiskveiðiári. Þetta
var sársaukafull ákvörðun, en það
er til marks um styrk íslensks
efnahagslífs að þessi ótíðindi köll-
uðu ekki fram kreppu í þjóðar-
búskapnum eins og gerst hefði á
árum áður.
Áhrif samdráttarins á einstök
byggðalög eru engu að síður
umtalsverð. Því ákvað ríkisstjórn-
in að bregðast við af festu með
mótvægisaðgerðum sem geta
treyst undirstöður byggðar í land-
inu þegar til framtíðar er litið.
Ríkisstjórnin hefur nú þegar
hrint í framkvæmd áætlunum um
viðamiklar samgöngubætur,
mark vissa sókn í menntamálum
og uppbyggingu fjarskipta þjón-
ustu. Þetta er grunnþjónusta sem
landsbyggðinni er nauðsynleg til
að takast á við framtíðina.
III
Framundan eru fleiri krefjandi
verkefni, ekki síst að tryggja jafn-
vægi í efnahagsmálum.
Almenn samstaða er í þjóðfélag-
inu um markmiðið um jafnvægi
og áframhaldandi hagsæld.
Atvinnulífið og verkalýðshreyf-
ingin gera sér grein fyrir að verð-
bólga og viðvarandi spenna í efna-
hags- og atvinnulífi eru engum til
góðs. Málflutningur forystumanna
samningsaðila við gerð komandi
kjarasamninga gefur fyrirheit um
að þar verði þessi sjónarmið höfð
að leiðarljósi, en einnig leitað leiða
til að leiðrétta kjör þeirra sem
minnst hafa borið úr býtum á
undanförnum árum.
Ríkisstjórnin hefur sýnt vilja
sinn í verki með ábyrgum fjárlög-
um og aðrir hafa sýnt vilja til
samstarfs á sömu braut. Það er
sameiginlegt viðfangsefni aðila
vinnumarkaðarins og ríkisstjórn-
ar að hér skapist aðstæður til þess
að fara megi saman efnahagslegt
jafnvægi, velmegun og aukinn
jöfnuður.
IV
Þess sjást glögg merki víða í sam-
félaginu að Samfylkingin er orðin
burðarstoð í íslenskum stjórnmál-
um, sem svo margir Íslendingar
líta til um framsýna forystu á
komandi árum. Flokkurinn situr í
ríkisstjórn og er í meirihluta, einn
eða með öðrum, í mörgum stærstu
sveitarfélögum landsins.
Samfylkingin gerir sér grein
fyrir ábyrgðinni sem þessu fylgir
og mun fylgja orðum eftir með
verkum. En flokkurinn tekur ekki
við völdum til að viðhalda óbreyttu
óstandi.
Ráðherrar Samfylkingarinnar
hafa ekki setið auðum höndum. Í
utanríkisráðuneytinu er unnið að
gagngerri stefnumörkun sem
breytt heimsmynd kallar á. Þar
verður áfram byggt á traustu
samstarfi við lýðræðisþjóðir í
nágrenni okkar, en stóraukin
áhersla lögð á mannréttindi og
þróunarsamvinnu enda löngu
kominn tími til að Íslendingar
verði ábyrgir gerendur fremur
en óvirkir þiggjendur í alþjóða-
samstarfi.
Samfylkingin hefur lagt megin-
áherslu á velferðarmálin og þá
einkum umtalsverðar kjarabætur
fyrir lífeyrisþega og öryrkja,
aðgerðir í þágu barna og sókn í
jafnréttismálum. Þá er hafin löngu
tímabær vinna við heildarendur-
skoðun almannatryggingakerfis-
ins. Á næstum mánuðum verður
einnig gripið til aðgerða til að
tryggja félagsleg úrræði í hús-
næðismálum, þar sem staðan er
algerlega óviðunandi fyrir ungt
fólk og lágtekjuhópa.
Í viðskiptaráðuneytinu eru neyt-
enda- og samkeppnismál nú í for-
gangi og má vænta tillagna frá
viðskiptaráðherra um aðgerðir til
að auka neytendavernd, sam-
keppni, gegnsæi og réttlátar leik-
reglur á markaði.
Ábyrgð Íslendinga í umhverfis-
málum er mikil, bæði innan lands
og utan, sem vörslumanna ómetan-
legrar náttúru og ábyrgra þátt-
takenda í alþjóðsamstarfi. Lofts-
lagsmál og vernd verðmætra
náttúru svæða eru mikilvæg verk-
efni ríkisstjórnarinnar og er afar
brýnt að standa þar vörð um hags-
muni komandi kynslóða.
Unnið er að stefnumörkun í
orkumálum sem byggist á þeirri
meginreglu að auðlindir þjóðar-
innar skuli vera í almannaeigu og
nýtingarréttur einungis framselj-
anlegur eftir skýrum reglum.
Það fellur í hlut samgönguráð-
herra að hrinda í framkvæmd for-
gangsverkefnum í samgöngu bót-
um og fjarskiptavæðingu. Þessa
mun sjá stað víða um land á næstu
misserum enda um að ræða ein-
hver brýnustu viðfangsefni okkar
sem einnar þjóðar í einu landi.
V
Mikill meirihluti þeirra verkefna
sem getið er um í stjórnarsátt-
málanum er þegar kominn á góðan
rekspöl. Framundan eru kjara-
samningar og verkefni eins og
skilgreining á eignarhaldi náttúru-
auðlinda, mótun aðgerðaáætlunar
í loftslagsmálum, endurskoðun
landbúnaðarkerfis, úttekt á kvóta-
kerfinu – allt mikilvæg viðfangs-
efni sem munu hafa afgerandi
þýðingu fyrir Ísland framtíðar-
innar. En þessi ríkisstjórn var
mynduð til að takast á við stór
verkefni og ætlar sér að leiða þau
til farsællar niðurstöðu. Ríkis-
stjórnin hefur þegar sýnt styrk
sinn í verki og mun ekki víkja sér
undan vandasömum verkum.
Ég óska landsmönnum öllum
farsældar á nýju ári og þakka
samfylgd og stuðning á árinu sem
nú er á enda.
Höfundur er utanríkisráðherra og
formaður Samfylkingarinnar.
Réttlæti, raunsæi og jöfnuður
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR
„Ég sá það fyrst á visir.is“
Hellisheiði ófær vegna illviðris og hálku.
Visir.is er öflug frétta- og upplýsingaveita í stöðugri sókn, sem leggur metnað sinn
í að flytja fréttir líðandi stundar fljótt og örugglega til notenda. Fréttir, dægurmál,
umræða, blogg, sjónvarpsfréttir Stöðvar 2 og fréttatengdir þættir – allt er þetta
aðgengilegt á einum stað í einfaldri umgjörð og með skýrri framsetningu.
Notendur vita að hverju þeir ganga þegar þeir heimsækja vísi.
...ég sá það á visir.is