Fréttablaðið - 03.01.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
FIMMTUDAGUR
3. janúar 2008 — 2. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
hefst í dag!
Opið til 21
ÞURRT NORÐAUSTAN TIL - Í dag
verður suðaustan 13-20 m/s á vest-
urhluta landsins, annars 8-13 m/s.
Þurrt á Norðausturlandi, annars
víða væta, einkum sunnan til og
vestan. Hiti 5-12 stig.
VEÐUR 4
ESTRID ÞORVALDSDÓTTIR
Í sama kjólnum ára-
mót eftir áramót
Tíska Heilsa
Í MIÐJU BLAÐSINS
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Estrid Þorvaldsdóttir á sérstakan áramóta-kjól og er því aldrei í vandræðum með í hverju hún á að vera á gamlárskvöld.
„Ég hef verið í sama kjólnum á gamlárskvöld síðan aldamótin 2000,“ segir Estrid Þorvaldsdóttir, nemi í listfræði og ítölsku. „Þetta var því níunda árið í röð sem ég klæddist honum. Ég bað ömmu mína um að gefa mér hann í jólagjöf árið 1999 og mig minnir að hann sé keyptur í versluninni Kjallaranum sem var á Laugavegi,“ bætir hún við.
Kjóllinn er túrkísblár með glimmeri og kallar Estrid hann þúsaldarkjólinn enda valdi hún hann sérstaklega með aldamótin í huga. „Honum fylgir glimmer band og það eina sem ég geri ár frá ári er að færa bandið. Stundum hef ég það um hálsinn og
stundum á hausnum. Það fer allt eftir tíðarandanum,“ útskýrir Estrid. Estrid starfaði um tíma sem módel og hefur alltaf haft áhuga á tísku. „Í henni felst mikil sköpun og frelsi,“ segir Estrid. „Ég myndi segja að áður fyrr hafi ég verið hálfgerður þræll tískunnar en í dag legg ég meiri áherslu á að rækta andann, vera bein í baki og brosa. Geri maður það líta fötin betur út á manni og þá er nóg að vera í klassískum og einföldum flíkum,“ segir hún.Estrid segir galdurinn vera að brosa, bera sig vel og láta innra ljósið skína. „Það er endalaust hægt að hlaða á sig skrauti en ef maður er boginn í baki verður maður eins og ofskreytt visið jólatré,“ segir Estrid. Hún hefur að undanförnu fengist við að gera vídeóverk og mála myndir. Á stefnuskránni er að fara til Ítalíu en Estrid segist fá öll sín áhrif þaðan.
vera@frettabladid.is
Sami kjóllinn ár eftir ár
Estrid hefur verið í aldamótakjólnum síðastliðin níu gamlárskvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HÆTT AÐ REYKJA
GEGNUM SÍMA OG NET
Reyksíminn og www.
reyklaus.is skila góðum
árangri í baráttu fólks
við tóbaksnautnina.
HEILSA 4
GALDRADROTTNING
Á DREGLINUM
Emma Watson hefur þróast
úr kjánalegum krakka í
fríða fegurðardís á rauða
dreglinum.
TÍSKA 2
HALLGRÍMUR HELGASON
Málaði Guð
á Sæbraut
20 milljóna málverkið tilbúið
FÓLK 46
Sprengir fjöl-
skyldubílinn
Andri Snær Magna-
son og eiginkona
hans eiga von á
fjórða barni sínu í
mánuðinum.
FÓLK 46
SAMFÉLAGSMÁL Þrír sautján ára
piltar voru handteknir fyrir veggja-
krot á Laugavegi seint í fyrrinótt.
Þeir eru grunaðir um að hafa krotað
á um 80 verslanir og hús í grennd-
inni með stöfunum MLC en þeir
voru með úðabrúsa og önnur tól til
veggjakrots þegar lögreglan hafði
afskipti af þeim.
„Ég veit að húseigandinn hér
ætlar að kæra og ég vona að hinir
verslunareigendurnir geri það
líka,“ segir Torfi Yngvason, einn
eigenda verslunarinnar Cintamani
á Laugavegi, sem krotararnir höfðu
merkt kirfilega. „Ég geri mér ekki
alveg grein fyrir því hvað það muni
kosta að hreinsa þetta og mála, en
ef þeir þurfa að bæta tjónið fyrir
allar þær verslanir sem merktar
hafa verið með þessum hætti þá
eru þetta orðnar dágóðar fúlgur.“
Eiður Eiðsson, lögreglufulltrúi í
forvarnadeild, segir að hingað til
hafi húseigendur sem verða fyrir
barðinu á veggjakroturum verið
tregir við að kæra. „Það virðist
vera einhver ótti í fólki við að fara í
einkamál, það er kannski hrætt við
hefndaraðgerðir,“ segir hann.
Hann segir veggjakrotara verða
sífellt skipulagðari við iðjuna.
„Hér hjá lögreglunni og annars
staðar, þar sem verið er að sporna
við veggjakroti, eru menn orðnir
sérfróðir í þessu þannig að þegar
við gómum menn getum við jafn-
vel rakið nokkur krot til sama
mannsins. Það er svo spurning
hvernig tekst að sanna slíkt fyrir
dómi.“
Þorsteinn Pálmarsson hjá
hreinsunarfyrirtækinu Allt-af,
sem hefur sérhæft sig í að hreinsa
burt veggjakrot, segir að verð
fyrir hreinsun á veggjakroti á einu
húsi geti verið frá tugum upp í
hundruð þúsunda króna.
Mál drengjanna þriggja er
komið til rannsóknardeildar lög-
reglunnar. - jse / sjá síðu 6
Piltar valda tjóni fyrir
milljónir á Laugavegi
Þrír piltar grunaðir um að krota á 80 hús á Laugavegi voru handteknir í fyrri-
nótt. Hreinsun á veggjakroti getur kostað frá tugum upp í hundruð þúsunda.
VIÐSKIPTI Forstjóri OMX Kaup-
hallar Íslands hvetur til þess að
tekin verði til endurskoðunar sú
hefð að hafa hér bankastofnanir
lokaðar á fyrsta virka degi árs
hvers.
Kauphöllin hér var lokuð í gær
eins og bankarnir. Annars staðar
í heiminum gengu markaðsvið-
skipti sem önnur sinn vanagang.
Sigurjón Þ. Árnason, banka-
stjóri Landsbankans, segir lokun
bankanna líklega eiga rætur í því
að áður hafi þurft lengri tíma til
að handreikna vexti. Hann segir
að þennan dag mæti fólk til
vinnu í bönkunum, en dagurinn
sé alla jafna notaður til tiltekar
og undirbúnings.
Sigurjón segir að rætt hafi
verið um að leggja hefðina af, án
þess að nokkuð hafi verið í því
gert.
- óká / sjá síðu 20
Tiltektardagur bankamanna:
Hefð sem rætt
er um að breyta
Eiður Smári á ný í
byrjunarliðinu
Eiður Smári
lék með
Barcelona í
jafnteflisleik
í konungs-
bikarnum í gær.
ÍÞRÓTTIR 42
Kaffibarsmyndir á bók
Ljósmyndir Einars Snorra og Eiðs
Snorra af fastagestum Kaffibarsins
verða gefnar út í Bandaríkjunum.
FÓLK 38
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
Fimmtudagur
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í ágúst–október 2007
Lestur meðal 18–49 ára
á höfuðborgarsvæðinu*
41%
B
la
ð
ið
/2
4
s
tu
n
d
ir
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
38%
68%
B
SLYS Tvö hross fengu raflost og
drápust á bænum Enniskot í slysi í
fyrradag sem hefði getað endað mun
verr. Kristmundur Ingþórsson bóndi
var að aka með heybagga á dráttarvél
til að gefa hrossunum þegar hann
áttaði sig skyndilega á því að hann
hafði ekið með framgaffalinn, sem
hann hafði híft upp, á rafmagnslínu.
Línan hafði fokið úr festingunni á
nálægum staur og hékk um það bil
tvo metra frá jörðu.
„Það var éljagangur svo ég sá ekki
að ég hafði ekið á línuna og spennt
hana nokkuð,“ segir Kristmundur.
„Þegar ég áttaði mig á því setti ég í
bakkgírinn og þá fann ég mikið högg
og fann þá nokkuð til í hendinni en
sennilega hef ég fengið straum frá
gírstönginni. Það næsta sem ég sé er
að hrossin voru farin að skjögra um.
Þau hafa örugglega fengið straum frá
jörðinni. En svo sá ég tvö fyrir aftan
mig sem lágu hreyfingarlaus í
jörðinni.“
Kristmundur hafði heybagga aftan
á dráttarvélinni og höfðu hrossin tvö
ætlað að gæða sér á heyinu en fengið
straum sem varð þeim að bana.
„Ég áttaði mig á því að ég yrði að
bakka frá strengnum sem ég og gerði
þótt bæði framdekkin hefðu
sprungið.“ - jse
Tvö hross drápust en bóndi bjargaði sér úr lífsháska:
Ók dráttarvélinni á rafmagnslínu
KRISTMUNDUR MEÐ SPRUNGNU DEKKIN
Það voru engir smá kraftar sem leystust úr
læðingi þegar Kristmundur ók á rafmagns-
línuna. MYND/HUNI.IS
LEITARMENN AÐ STÖRFUM Í ELLIÐAÁM Leitin sem stóð fram á kvöld í gær var afar víðtæk en um 130 björgunarsveitarmenn tóku
þátt í henni. Leitarmenn sjást hér slæða ána en einnig voru fjörur voru gengnar, leitað úr lofti og í kafi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LEIT Björgunarsveitarmenn sem
leituðu Jakobs Hrafns Jökuls-
sonar fundu lík norðan við
smábátahöfnina í Elliðavogi í
gærkvöld. Jakobs, sem er nítján
ára, hefur verið saknað síðan að
morgni nýársdags. Lögreglan
hafði ekki staðfest að um lík hans
væri að ræða þegar Fréttablaðið
fór í prentun.
Um 130 björgunarsveitarmenn,
sem meðal annars komu frá
Akranesi, Suðurnesjum og
Árborg, tóku þátt í leitinni að
drengnum. Hún beindist helst að
svæðinu í kringum Elliðaár og
hverfum þar í kring. Þyrla
Landhelgisgæslunnar fór í
leitarflug og kafarar tóku þátt í
leitinni. Auk þess notuðu björgun-
arsveitarmenn leitarhunda.
Jakob sást síðast við skemmti-
staðinn Broadway í Ármúla um
hálfsex á nýársdagsmorgun. Talið
er að hann hafi verið á leið heim
til sín í Árbæjarhverfið. - sþs / jse
Leit að nítján ára dreng:
Fundu lík við
smábátahöfn