Fréttablaðið - 04.01.2008, Blaðsíða 56
4. JANÚAR 2008 FÖSTUDAGUR20 ● fréttablaðið ● heilsa og lífsstíll
EPLI innihalda andoxunarefn-
in catechins og quercetin.
Neysla þeirra minnk-
ar líkur á hjartasjúk-
dómum og krabba-
meinum. Þessi efni
hvetja einnig til
collagenmyndunar
sem fær húð okkar til
að líta betur út.
Vísindamenn hafa öldum saman
reynt að skilja af hverju við þurfum
svefn, án þess að komast að end-
anlegri niðurstöðu. Sumir telja að
svefn sé líkamanum nauðsynleg-
ur til að jafna sig eftir dagserfiði.
Sannleikurinn er sá að átta tíma
svefn sparar líkamanum ekki nema
50 kaloríur, eða eins og fæst í einni
ristaðri brauðsneið.
Hins vegar er
vitað að svefn
hefur áhrif
á heilastarf-
semi og svefn-
leysi getur truflað
málgetu, minni
og skapandi
og sjálfstæða
hugsun.
Svefn skiptist í nokkur stig. REM-
svefn (draumsvefn eða blik-svefn)
og NREM-svefn (annar svefn).
NREM-svefn skiptist síðan í fjög-
ur stig: svefnrof, lausan svefn og
tvö stig af djúpum svefni. Eftir
það tekur við REM-svefn. Heilinn
er mjög virkur á því stigi þótt við
séum meðvitundarlaus; lokuð
augun hreyfast hratt og öndun og
blóðþrýstingur eykst. Ferlið endur-
tekur sig nokkrum sinnum á nóttu
þegar REM-svefni lýkur.
Einstaklingar þurfa misjafnlega
mikinn svefn og eins þarf eini og
sami einstaklingurinn mismikinn
svefn eftir aðstæðum. Sumum
nægir að sofa fimm tíma, á meðan
aðrir þurfa sína ellefu tíma. Mann-
skepnan sefur að meðaltali í 7
tíma og 45 mínútur.
Jim Horne við Loghborough-há-
skóla er með einfalt svar við þessu.
„Svefninn sem við þurfum á að
duga svo við verðum ekki syfjuð á
daginn.“
Við sofum einn þriðja
af ævinnni. Napó-
leon, Florence
Nightingale og
Margaret That-
cher sváfu í að-
eins fjóra tíma
á nóttu. Thom-
as Edison taldi
svefn tíma-
sóun.
Randy Gardner setti met í svefn-
leysi þegar hann gerði sérstaka
rannsókn árið 1965 og svaf ekki
samfleytt í ellefu daga. Gardner
upplifði ofskynjanir á fjórða degi
og fékk síðan þá ranghugmynd
að hann væri frægur fótboltamað-
ur. Þótt ótrúlegt megi virðast var
hann hins vegar við ágæta heilsu
á síðasta degi. Til marks um það sá
hann enn við vísinda-
mönnum í kúluspili.
Dýrin þurfa mismikinn
svefn. Kyrkislöngur sofa
að meðaltali í 18 tíma.
Tígrisdýr sofa í 15,8
tíma, kettir í 12,1
tíma, simpansar í
9,7 tíma, sauðfé
í 3,8 tíma, afrísk-
ir fílar í 3,3 tíma
og gíraffar í 1,9
tíma.
Tekið af vefsíðu
bbc.co.uk.
Staðreyndir
um svefn
Holl hráefni
JARÐARBER inni-
halda mikið af mik-
ilvægum stein-
efnum, svo sem
járni og kalki. Þau
eru hitaeiningasnauð
en innihalda nokkuð af
A-, B- og C-vítamíni.
SELLERÍ innihalda 3-n butyl
phtalide sem er æða-
útvíkkandi efni og einn-
ig þekkt fyrir að lækka
stresshormónið catachol-
amine. Hefur einnig bólgueyð-
andi eiginleika, er vatnslosandi
og ríkt af kalíum og C og A vítam-
íni. Það er kólesteról-frítt og lágt í
natríum. Er þá fátt upptalið.