Fréttablaðið - 04.01.2008, Blaðsíða 82
34 4. janúar 2008 FÖSTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Árið 2007 var nokkuð gjöfult hvað tónlistarmyndir varðar. Frumsýndar
voru nokkrar áhugaverðar kvikmyndir og nokkrar stórar DVD-útgáfur
litu dagsins ljós. Það er auðvitað ekkert hægt að ganga að því sem gefnu
að tónlistarmyndir séu sýndar í íslenskum kvikmyndahúsum. Til þess er
markaðurinn of lítill, eða hugmyndaflug forsvarsmanna kvikmyndahús-
anna of takmarkað... DVD-útgáfurnar skila sér hins vegar oftast á
endanum. Ein sterkasta mynd ársins, Control, sem segir sögu Ians Curtis
og hljómsveitarinnar Joy Division, var sýnd á Kvikmyndahátíð í Reykja-
vík og olli ekki vonbrigðum. Sérlega stílhrein og áhrifamikil mynd um
magnaðan tónlistarmann. Aðrar myndir sem ég get mælt með eru
heimildarmyndin The Future in Unwritten eftir Julien Temple sem
fjallar um Joe Strummer, söngvara The Clash, og Respect Yourself/The
Stax Records Story sem rekur sögu þeirrar stórmerkilegu soul-tónlistar-
útgáfu.
Af DVD-útgáfum má nefna nýjar tónleikamyndir með Amy Winehouse
og Rolling Stones, endurbætta útgáfu á Zeppelin-myndinni The Song
Remains the Same (sem er væntanleg á markað hér á landi með íslensk-
um texta á næstu vikum), MTV Unplugged in New York með Nirvana og
tvær fínar Bob Dylan-myndir; Don‘t Look Back og The Other Side of the
Mirror. Þriðja Dylan-myndin og sennilega sú merkilegasta er I’m Not
There eftir Todd Haynes sem er einmitt frumsýnd í dag. Ég get ekki
beðið eftir því að sjá hana.
Sú mynd sem stendur samt upp úr hjá mér persónulega er Heima,
myndin um hringferð Sigur
Rósar. Algjört meistaraverk þar
á ferðinni. Tónlistin er frábær, en
þetta er líka sterk svipmynd af
Íslandi árið 2006: Af fólkinu og
landinu sjálfu. Það verður gaman
að kíkja á hana eftir svona
tuttugu ár. Sigur Rós er næm á
það sem er heillandi við Ísland.
Manni hlýnar um hjartarætur við
að horfa á myndina. Heima er
best!
Heima er best
HEIMA Kvikmynd Sigur Rósar, Heima, er
algjört meistaraverk. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Nýr vefur » Á hvað ert þú að hlusta?
„Sextán
og þú skalt sjá
mig í bíó...“
- 16, Grafík, Höf: Helgi Björnsson
> Í SPILARANUM
Jack Penate - Matinee
Radiohead - In Rainbows
Ringo Starr - Liverpool 8
Bermúda - Nýr dagur
Cat Power - Jukebox
JACK PENATE CAT POWER
Tónlistarvefurinn Rjóminn.is hefur birt
árslista sína. Að baki þeim standa þeir
sextán tónlistarspekingar sem skrifa á
vefinn. Í íslensku deildinni gerast þau undur
og stórmerki að plata Seabear frá því í
sumar, The Ghost that carried us away,
stendur uppi sem sigurvegari og sigrar plötu
Mugisons, Mugiboogie, sem hefur trónað
efst á öðrum árslistum. Reyndar munar bara
einu stigi, Seabear fær 70 stig, Mugison 69.
Plata Hjaltalín, Sleepdrunk seasons, þykir
svo sú þriðja besta og fær 60 stig.
Úrslit í erlendu deildinni eru öllu fyrir-
sjáan legri og eru samhljóða listum sem
þegar hafa birst hérlendis. Arcade Fire-
platan hlýtur afgerandi kosningu í efsta
sætið (72 stig) á meðan nýja Radiohead-
platan er önnur (49 stig). Okkervil River-
platan The Stage Names þykir Rjómverjum
svo þriðja best og fær hún 44 stig.
Seabear sigrar Mugison
BEST HJÁ RJÓMANUM Platan The Ghost that carried
us away með Seabear þykir betri en Mugison-
platan, en reyndar munar bara einu stigi á þeim.
Sindri Már Sigfússon er heilinn á bak við Seabear.
Bæjarstjórinn í Bolungarvík situr
ekki með hendur í skauti og lætur
sér ekki nægja að flytja inn Rufus
Wainwright, sem spila mun í
Háskólabíói í apríl. Nú er á leiðinni á
hans vegum (eða öllu heldur fyrir-
tækis hans, DDR) hljómsveitin
Hayseed Dixie og treður hún upp á
Nasa 24. febrúar. Miðasala er þegar
hafin á midi.is og í verslunum Skíf-
unnar og BT um allt land.
Þetta er gífurlega hress amerísk-
ur kvartett sem hefur í allmörg ár
skemmt sér og öðrum með kántrí- og
blúgrass-útgáfum af frægustu rokk-
lögum sögunnar. Útkoman kitlar
jafnt hlátur- og danstaugar áhorf-
enda. Hayseed Dixie hefur gert
fimm plötur, meðal annars eina ein-
göngu með AC/DC-lögum og aðra
með Kiss-lögum. Þá hefur sveitin
kántríklæmst á Sex Pistols og Bítla-
lögum og einnig gefið út eigin tón-
smíðar á síðustu tveimur plötum, A
Hot Piece of Grass og Weapons of
Grass Destruction.
Hayseed Dixie kemur hingað á klakann
> ÞRJÁR NÝJAR PLÖTUR
Jack White er upptek-
inn maður um þess-
ar mundir því hann er
að vinna að minnst
þremur nýjum plöt-
um. Ein af þessum
plötum er önnur plata
hljómsveitar hans, The
Raconteurs. White vill
ekki staðfesta að eitt
af umræddum verk-
efnum sé sólóplata frá
honum en mikið hefur
verið skrafað um að ein
slík sé í farvatninu.
Aðdáendur Weezer fengu skemmtilegan
glaðning við árslok en þá sendi Rivers
Cuomo, aðalspíra sveitarinnar, frá sér safn-
plötuna Home sem inniheldur uppáhalds
demó-upptökurnar hans. Steinþór Helgi
Arnsteinsson renndi í gegnum gripinn.
Sögusagnir um sjöttu hljóðversbreiðskífu hinnar
svölu nördasveitar Weezer hafa lengi verið á kreiki.
Síðasta plata, Make Believe, kom út árið 2005 og
þótti langversta plata Weezer til þessa. Aðdáendurn-
ir studdu samt sem áður vel við bakið á sínum mönn-
um og hafa meðal annars haldið uppi síðunni
albumsix.com þar sem ýmsar vangaveltur hafa
verið reifaðar um komandi skífu, misviturlegar þó.
Boð um nýja safnskífu frá Cuomo bárust síðan
seint á síðasta ári en virðast ekki hafa nein áhrif á
komandi breiðskífu. Svo virðist sem Cuomo hafi
einfaldlega þurft að gera upp einhverja þætti í
fortíðinni áður en hann gæti að fullu einbeitt sér að
nýju plötunni. Samt sem áður er enginn uppgjörs-
tónn yfir plötunni, hvað þá uppgjafartónn. Reyndar
er ekkert svo skrítið að maður sem hefur samið hátt
í þúsund lög vilji koma einhverju frá sér.
Lög úr rokkóperu og hvaðeina
Platan samanstendur af heimaupptökum og demóum
úr fórum Cuomos, uppáhalds að eigin sögn. Lögin
eru frá árunum 1992 til 1997 (ef undan er skilinn
örlítill hljóðbútur frá 1984) en langflest laganna eru
frá árunum 1992-1995 eða tólf talsins. Það umrædda
tímabil markar einmitt tímann frá Bláu plötunni,
fyrstu skífu sveitarinnar, að plötu númer tvö,
Pinkerton, sem kom út árið 1996. Pinkerton þykir í
dag helsta afrek Weezer en platan galt afhroð þegar
hún kom út á sínum tíma, bæði hjá gagnrýnendum
og kaupendum. Til marks um uppreisn æru
Pinkerton breytti Rolling Stone þriggja stjörnu dómi
sínum frá árinu 1996 í fimm stjörnu dóm árið 2004.
Alls eru fimm lög á plötunni sem upprunalega
tilheyrðu rokkóperunni Songs from the Black Hole
en hana ætlaði Cuomo að gefa út eftir útgáfu Bláu
plötunnar. Lögin urðu hins vegar grunnurinn að
Pinkerton.
Afskræming nútímans
Eitt það merkilegasta við safnplötuna er að þar er
ekki að finna nein lög frá árinu 1998 til 2002, eða allt
frá laginu Crazy One, sem samið var í desember
1998. Það var einmitt á þessum tíma sem Cuomo
fann hvað mest fyrir þunglyndi og hafðist við í
húsnæði þar sem hann hafði dregið fyrir alla glugga
þannig að engin birta kæmist inn.
Í raun er eingöngu að finna þrjú lög á Home sem
eru yngri en frá árinu 1998. Langforvitnilegast
þeirra er This Is the Way frá síðasta ári. Lagið er
unnið úr Let Me Love You með Mario og samkvæmt
texta í umslagi plötunnar (Cuomo skrifar athuga-
semdir við hvert einasta lag plötunnar og eru þær
mjög skemmtilegar aflestrar) átti lagið að vera á
komandi breiðskífu. Laginu var hins vegar kippt út
fyrir lagið Daydreamer sem á víst að vera „epískt
og sinfónískt sex mínútna lag“.
Tout Ensemble ekki næsta plata
Home er plata sem er ekki eingöngu fyrir hörðustu
aðdáendur Weezer, en þannig vill oft verða með
safnplötur af þessu tagi. Þvert á móti bætir Home
mörgu við glæstan feril Rivers Cuomo og Weezer.
Á þessu ári er síðan væntanleg ný plata. Eina sem
hefur verið staðfest í þeim efnum er reyndar aðeins
það að ekki er enn kominn staðfestur útgáfudagur
og platan mun ekki(!) heita Tout Ensemble.
Beint úr kassettuskúffunni
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI
FLOTTUR Rivers Cuomo er heilinn á bak við eina ferskustu
hljómsveit síðasta áratugar, Weezer. Ný plata með uppáhalds
heimaupptökum og demóum Cuomos kom út fyrir stuttu en
ný hljóðversskífa er væntanleg frá Weezer á árinu.
HAYSEED DIXIE Kitlar hlátur- og
danstaugar og kántríklæmist á
frægustu rokklögum sögunnar.