Fréttablaðið - 05.01.2008, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
LAUGARDAGUR
5. janúar 2008 — 4. tölublað — 8. árgangur
hús&heimili
Íslenskur viður
er vel nothæfur í
húsgagnasmíði
að sögn Gulleiks
Lövskar hús-
gagnahönnuðar.
FYLGIR FRÉTTA-
BLAÐINU Í DAG
hús&heimiliLAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008● HÖNNUÐUR
Gulleik og gítarstóllinn● HEIMILIÐ
Baðherbergi nútímans● DRAUMAHÚS
Flash-dance íbúð við East River
Myndu setja Ólaf Ragnar í jóga
STEINN ÁRMANN OG SOLLA Á GRÆNUM KOSTI
SETJAST Á RÖKSTÓLA
28
VIÐSKIPTI „Bankinn þarf að
fjármagna sig jöfnum höndum á
alþjóðlegum skuldabréfamarkaði
og með áframhaldandi aukningu
innlána,“ segir Halldór J. Kristj-
ánsson, bankastjóri Landsbank-
ans. Bankamenn segjast almennt
geta komist af í heilt ár eða
lengur án þess að sækja sér fé
annað. Alls þurfa þeir að inna af
hendi sem nemur um 600 milljörð-
um króna, vegna langtímaskuld-
bindinga sem gjaldfalla á árinu.
- ikh / sjá síðu 12
Langtímaskuldir bankanna:
600 milljarðar
gjaldfalla í ár
LÖGREGLUMÁL Sömu menn og réðust
á Hannes Þ. Sigurðsson, landsliðs-
mann í knattspyrnu, aðfaranótt 22.
desember á efri hæð Hverfisbars-
ins fótbrutu mann inni á salerni
veitingahússins Apóteksins aðfara-
nótt 30. desember.
Fórnarlamb árásarinnar, sem er
karlmaður á 29. aldursári, var í tvo
daga á sjúkrahúsi eftir árásina en
hann þurfti að gangast undir skurð-
aðgerð vegna alvarlegra áverka á
ökkla. Liðbönd slitnuðu auk þess
sem hann margbrotnaði. Hann hlaut
einnig áverka í andliti og á líkama.
Báðar árásirnar hafa verið kærð-
ar til lögreglu og hefur hún nú málin
til rannsóknar. Árásin á Hannes
náðist á eftirlitsmyndavél.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er Davíð Smári Helenar-
son, sem hefur ítrekað komið við
sögu lögreglu vegna ofbeldisbrota,
grunaður um að hafa haft sig mest í
frammi í báðum árásunum. Hann
hefur verið kærður til lögreglu
fyrir báðar árásirnar.
Hinn 30. ágúst í fyrra kom hann
fram í sjónvarpsviðtölum bæði í
Kastljósþætti RÚV og Íslandi í dag
á Stöð 2, eftir árás hans á dómara í
leik Dynamo Gym 80 og Vatnalilj-
anna í utandeildinni í knattspyrnu. Í
viðtali við Helga Seljan, fréttamann
RÚV, sagði hann meðal annars: „Ég
verð greinilega að gera eitthvað í
mínum málum, það er alveg aug-
ljóst […] Þetta er bara endapunkt-
ur.“ Áður hafði hann tekið fram sér-
staklega að hann vildi biðja
dómarann „afsökunar, alveg bara
endalaust“. Dómarinn, Valur Stein-
grímsson, rifbeinsbrotnaði.
Lögreglan staðfestir að skýrslu-
tökur hafi farið fram vegna árás-
anna beggja en verst frekari frétta.
Málin eru litin alvarlegum augum
enda um tilefnislausar árásir að
ræða.
Árásin á Apótekinu átti sér stað
um fjögurleytið að nóttu. Fórnar-
lambinu var haldið inni á salerninu
og ýtt ítrekað inn aftur, að því er
vitni hafa greint frá, þegar það
reyndi að fara út. Gestur á staðnum
kom manninum til hjálpar og kall-
aði til dyraverði. - mh / sjá síðu 4
Fótbrutu mann á
salerni Apóteksins
Sömu menn og börðu landsliðsmanninn Hannes Þ. Sigurðsson illa á Hverf-
isbarnum skömmu fyrir jól fótbrutu mann inni á salerni á Apótekinu viku
seinna. Þekktur ofbeldismaður er grunaður um að hafa haft sig mest í frammi.
OPIÐ LAUGARDAG KL:11-16
20% afsláttur
í næstu verslun
Opið 10–18 í dag
VEÐRIÐ Í DAG
Dæmir hunda-idol
Unnur Birna Vilhjálms-
dóttir er einn dómara í
hundahæfileikakeppni
sem fram fer í dag.
FÓLK 50
Hlegið án
ástæðu á nýju ári
Fyrsti hláturjógatími ársins.
TÍMAMÓT 26
LÖGREGLUMÁL Götuhópur fíkni-
efnadeildar lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu tók í gær 77
e-töflur, tíu grömm af kókaíni og
fjármuni sem grunur leikur á að
séu ágóði af fíkniefnasölu.
Það var um miðjan dag í gær að
götuhópurinn fór í húsleit í
austurborginni, að fengnum
úrskurði. Einn karlmaður var
handtekinn á staðnum og færður
til yfirheyrslu hjá lögreglunni.
- jss / sjá síðu 8
Götuhópur fíkniefnalögreglu:
Tók 77 e-töflur
og söluágóða
ÞURRT SUÐVESTAN TIL Í dag
verður yfirleitt norðaustlæg átt, 5-15
m/s hvassast með ströndum nyrðra
og eystra og á Vestfjörðum. Rigning
eða slydda en þurrt og skýjað með
köflum suðvestan til. Hiti 0-7 stig,
mildast við suðausturströndina.
VEÐUR 4
Tap gegn
Pólverjum
Íslenska hand-
boltalandsliðið
tapaði fyrsta
leik æfinga-
mótsins í
Danmörku í
gær.
ÍÞRÓTTIR 46
VEL BÚNIR INNI SEM ÚTI Vegfarendur um Austurstrætið geta oft verið vitni að asa og afslöppun í sömu andránni líkt og þessi
mynd ber með sér. Þó betur viðraði í gær en undanfarna daga voru afslappaðir sem og hraðskreiðir vegfarendur vel búnir enda
tekur því varla að venja sig af höfuðfatnaði, hönskum og þykkri yfirhöfn því kuldaboli er í kortum Veðurstofu Íslands og er gert
ráð fyrir að hann bíti með 7 stiga frosti næstkomandi miðvikudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SJÁVARÚTVEGUR „Þetta er ágætis síli en ekki stærsta
gerð, eins og er yfirleitt í byrjun,“ segir Finnbogi
Böðvarsson, skipstjóri á Þorsteini ÞH-360, sem fann
fyrstu loðnu vetrarins fimmtíu mílum norður af
Hraunhafnartanga í gærdag. Skítabræla er á
miðunum og of snemmt að meta hversu mikið af
loðnu er á ferðinni. Það er þó góðs viti að sögn
Finnboga að Börkur NK-122 var nýkominn á svæðið
og búinn að kasta á loðnutorfu þrjátíu mílum austar.
Finnbogi segist hafa dregið flottrollið í stuttan
tíma og fengið um hundrað tonn. „Það var ágætt
enda ekki gott að fá meira en það í þessu leiðinda
veðri.“ Hann segir að veðurspáin lofi góðu fyrir
helgina. „En þessi slatti sem við fengum dugir í
vinnsluna í bili.“
Tvö önnur loðnuskip, Aðalsteinn Jónsson SU 11 og
Ingunn AK-150, eru væntanleg á miðin. Hafrann-
sóknaskipið Árni Friðriksson leggur af stað til
mælinga og leitar eftir helgi. Fyrir réttu ári lögðu
bæði skip Hafrannsóknastofnunar úr höfn í það sem
var kallað „örvæntingarfulla leit“ að loðnunni.
Sjávarútvegsráðuneytið gaf út bráðabirgðaloðnu-
kvóta í október upp á 205 þúsund tonn og þar af
koma rúmlega 120 þúsund tonn í hlut íslenskra
loðnuskipa. Heildarveiði íslenskra skipa var 308
þúsund tonn árið 2007. - shá
Fjölveiðiskipið Þorsteinn ÞH-360 fann loðnu fyrir norðan land í gær:
Loðna fundin við Kolbeinsey
LOÐNA Fyrsta loðna vetrarins er fundin.
LÖGREGLUMÁL Par var handtekið í
gærkvöldi eftir að maðurinn
ógnaði starfsmönnum í Laugar-
dalshöll með hnífi og keyrði síðar
utan í tvo bíla. Lögreglan naut
aðstoðar sérsveitar ríkislögreglu-
stjóra við handtökuna, sem var
við Meðalholt.
Manninum var gert að yfirgefa
tónleika Bubba Morthens þar sem
hann var í annarlegu ástandi.
Hann trylltist og sparkaði í rúðu
svo hann skarst á fæti, ógnaði þá
starfsmönnum og yfirgaf
tónleikana á bíl með lagskonu
sinni. Maðurinn var færður á
slysavarðstofu til aðhlynningar.
Málið er í rannsókn - shá
Sérsveitin kölluð út:
Dró upp hníf á
Bubbatónleikum