Fréttablaðið - 05.01.2008, Blaðsíða 57

Fréttablaðið - 05.01.2008, Blaðsíða 57
NÝ SÝN NÝTT FORYSTUAFL Háskólinn í Reykjavík kynnir, í samvinnu við McGill háskólann í Montreal og Henry Mintzberg, Columbia háskólann í New York og Mayo Clinic í Rochester, nýtt alþjóðlegt meistaranám fyrir brautryðjendur í heilbrigðisþjónustu. Námið hentar öllum sem starfa við nýsköpun, rekstur, þjónustu, stjórnun og forystu á sviði heilbrigðismála og lýðheilsu og er boðið upp á nám bæði heima og erlendis. Heilbrigðisþjónusta framtíðarinnar þarf brautryðjendur sem: • Sýna frumkvæði og búa yfir bestu og nýjustu þekkingu sem völ er á. • Hafa getu til að leiða saman ólík sjónarmið og komast að sameiginlegri niðurstöðu, öllum til hagsbóta. • Búa yfir þeirri áræðni og þekkingu sem þarf til að taka réttar ákvarðanir á réttum tíma. Náminu er ætlað að veita þátttakendum nýja sýn á forystu og nýsköpun í heilbrigðisþjónustu 21. aldar og stuðla að því að skipa Íslendingum í fremstu röð framsækinna þjóða á sviði heilbrigðismála og lýðheilsu. NÁM VIÐ MCGILL HÁSKÓLANN: ÞÁTTTAKENDUR FRÁ YFIR 20 ÞJÓÐLÖNDUM Vorönn 2008: Þátttakendum gefst kostur á að hefja nám við McGill háskólann í mars 2008. Hægt er að sinna fullu starfi með námi, en gert er ráð fyrir að nemendur komi saman 5 sinnum í 12 daga í senn á 16 mánaða tímabili. Henry Mintzberg, prófessor í stjórnun og forstöðumaður meistaranáms í heilbrigðisstjórnun við McGill háskólann í Montreal. Mintzberg er á nýjum lista yfir 20 helstu hugsuði heims. Á þessum lista eru m.a. Bill Gates, Alan Greenspan, Jack Welch og Michael Porter. NÁM VIÐ HÁSKÓLANN Í REYKJAVÍK: PRÓFESSORAR FRÁ MCGILL, MAYO CLINIC OG COLUMBIA KENNA VIÐ HR Haustönn 2008: Þátttakendum gefst kostur á að hefja nám í Háskólanum í Reykjavík á haustmisseri 2008 og innritast í MPH Executive nám sem er meistaranám í forystufræðum og nýsköpun á heilbrigðissviði. Kennslufyrirkomulag tekur mið af því að þátt-takendur sinni starfi samhliða náminu sem fer fram að mestu leyti hér á landi. Auk innlendra sérfræðinga kenna prófessorar frá McGill, Columbia University og Mayo Clinic. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Háskólans í Reykjavík, www.hr.is/mphe og hjá Guðjóni Magnússyni, MD, Ph.D., prófessor við kennslufræði- og lýðheilsudeild HR (gma@ru.is). „Meistaranámið okkar í heilbrigðisstjórnun er einstakt og afar metnaðarfullt. Við ætlum okkur að bylta, ekki einungis menntun í heilbrigðisstjórnun, heldur sjálfu heilbrigðiskerfinu. Það gerum við með því að kveikja stöðuga, lifandi umræðu á milli fremstu stjórnenda allra geira heilbrigðiskerfisins, alls staðar að úr heiminum.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.