Fréttablaðið - 09.01.2008, Qupperneq 4
MARKAÐURINN 9. JANÚAR 2008 MIÐVIKUDAGUR4
F R É T T I R
„Við erum að fara yfir þetta með
viðskiptavinum okkar núna og
getum ekkert sagt opinberlega um
sinn,“ segir Ingólfur Bender, for-
stöðumaður Greiningar Glitnis.
Greiningardeildir bankanna
eru að vinna að yfirlitum yfir það
hvaða hlutabréf fólki er ráðlagt
að kaupa, halda í eða selja.
Ásgeir Jónsson, forstöðu maður
Greiningardeildar Kaupþings,
segir að von sé á yfirliti frá deild-
inni á næstu dögum. Sama segir
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu-
maður Greiningardeildar Lands-
bankans. „Það er hins vegar svo
að það getur breyst á hálftíma
hvort við ráðleggjum að kaupa
eða selja í fyrirtækjum.“
Samkvæmt yfirliti Landsbank-
ans fyrir þriðja ársfjórðung taldi
Landsbankinn vænlegt að fólk
keypti í tíu prósentum fyrirtækja,
héldi í eign sína í 38 prósentum
fyrirtækja og seldi hluti í 27 pró-
sentum fyrirtækja. Ekki var lagt
mat á fjórðung fyrirtækja í Kaup-
höllinni. - ikh
Ingimar Karl Helgason
skrifar
„Kvótaniðurskurðurinn mun hafa veruleg áhrif á
þessu ári,“ segir Björn Arnaldsson, hafnarstjóri í
Snæfellsbæ. Þar eru þrjár hafnir: Í Ólafsvík, á Rifi
og Arnarstapa.
Björn segir að höfnin verði af 20 til 25 milljónum
króna í tekjur á þessu ári, einkum vegna kvótanið-
urskurðar. „Hingað til höfum við alltaf verið réttu
megin við núllið.“
Miklar framkvæmdir verða í höfnum Snæfells-
bæjar á árinu. Samkvæmt fjárhagsáætlun bæjarins
á að verja yfir 230 milljónum króna til framkvæmda.
Þar af greiðir hafnarsjóður rúmar 50 milljónir. „Við
ákváðum að leggjast ekkert í þunglyndi,“ segir
Björn. Byrjað hafi verið á framkvæmdunum í fyrra
og ekkert vit sé í öðru en að halda þeim áfram í ár.
Meðal annars á að búa til yfir 600 metra langan
grjótgarð við höfnina á Rifi og smíða trébryggju í
Ólafsvík.
„Ég held að við stöndum þokkalega og hafnar-
sjóðurinn stendur vel,“ segir Runólfur Guðmunds-
son, formaður hafnarstjórnar í Grundarfirði. Hann
segir að þrátt fyrir þriðjungsniðurskurð á þorsk-
kvótanum hafi ekki dregið úr umsvifum Grundar-
fjarðarhafnar. Útgerðarmenn í plássinu hafi bæði
keypt og leigt kvóta. „Svo var hér sett upp frysti-
geymsla, eða frosthótel, sem fylltist í raun fáum
klukkustundum eftir að hún var opnuð, svo hér urðu
til ný atvinnutækifæri,“ segir Guðmundur, sem
einnig nefnir saltgeymsluna á staðnum í þessu sam-
hengi. „Við erum bara nokkuð bjartsýnir fram á
næsta ár.“
Erla Friðriksdóttir, bæjar- og hafnarstjóri
í Stykkishólmi, segir að verulega hafi dregið úr
umsvifum hafnarinnar síðan skelin hrundi fyrir
fjórum árum. Hún telur að þótt þorskaflinn hafi
verið skertur um þriðjung, dragi ekki svo mjög úr
umsvifum hafnarinnar í Hólminum. „Menn hafa líka
gegnum tíðina landað annars staðar, svo kannski
munar ekki svo mikið um þetta.“
Hundraða milljóna
hafnarframkvæmdir
Kvótaskerðingin hefur mikil áhrif á umsvif hafna landsins.
Ákveðið hefur verið að halda áfram með framkvæmdir við
HÖFNIN Í STYKKISHÓLMI Mun minni umsvif hafa verið eftir að skelfiskveiðin hrundi. Kvótaniðurskurðurinn hefur ekki svo mikil áhrif,
segir hafnarstjóri.
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA,
hefur að eigin frumkvæði hafið
frumathugun á því hvort norsk
lög um kynjakvóta í stjórnum
skráðra fyrirtækja standist Evr-
ópurétt.
Rannsóknin er í fullum gangi,
en hún hófst í hitteðfyrra, sam-
kvæmt upplýsingum sem Mark-
aðurinn fékk hjá Eftirlits-
stofnuninni í gær. Óvíst er hve-
nær henni lýkur.
Lög sem skylda skráð hluta-
félög til þess að hafa að lágmarki
fjóra af hverjum tíu stjórnar-
mönnum af hvoru kyni gengu
í gildi í Noregi fyrir tveimur
árum.
Samkvæmt athugun norsku
ríkisstjórnarinnar voru þá sex-
tán prósent stjórnarmanna konur.
Frestur félaga til að gera úr bætur
rann út nú um áramótin.
Íslensk félög sem skráð eru í
Noregi hafa lagað stjórnir sínar
að nýjum lögum.
Samkvæmt athugun Rann-
sóknar seturs vinnuréttar og jafn-
réttismála við Háskólann á Bif-
röst, sem birt var um mitt síðasta
ár, var engin kona í stjórn 70 af
100 stærstu fyrirtækjum lands-
ins. Þá skipuðu konur 32 af ríf-
lega 400 stjórnarsætum og hafði
þá dregið úr hlutfalli kvenna í
stjórnum frá árinu 2005.
Björgvin G. Sigurðsson við-
skiptaráðherra hefur sagt að
lagasetning í þessum efnum hér-
lendis yrði þrautalending. „Fyrst
beri að skoða allar aðrar leiðir að
því sjálfsagða markmiði að jafna
hlut kvenna og karla í stjórnum
íslenskra fyrirtækja.“ - ikh
ESA skoðar lögmæti
kynjakvóta í stjórnum
Hannes Smárason, fyrrverandi
forstjóri FL Group, hefur skrif-
að undir starfslokasamning við
félagið, að því er fram kemur á
Vísi. Ekkert hefur komið fram
um efni samningsins, en búast
má við að hann verði gerður
opin ber á fundi hinn 12. febrúar
næstkomandi þegar ársuppgjör
FL Group verður kynnt.
Hannes lét af störfum sem
forstjóri FL Group nú fyrir ára-
mót í kjölfar hrókeringa innan
félagsins. Gengi bréfa í FL
Group stendur nú í rétt rúmum
tólf krónum á hlut í Kauphöll Ís-
lands. - jsk
Gengið frá málum Hannesar
„Það er komin
gróf mynd af
þessu, en við
þurfum ná-
kvæma mynd.
Það eru einhverjar vikur í
þetta ennþá,“ segir Krist-
inn Hallgrímsson, formaður
skilanefndar Eignarhaldsfélags-
ins Samvinnutrygginga.
Ákveðið var á fundi full-
trúaráðs Eignarhaldsfélagsins
í fyrrasumar að slíta félaginu
og stofna upp úr því Fjárfest-
ingafélagið Gift. Þessu fylgir að
eigendur Eignarhaldsfélagsins,
þeir sem áður tryggðu hjá Sam-
vinnutryggingum,
fá hluti í Gift. Enn
er þó óvíst hversu
mikið hver eign-
ast.
Í fyrstu átti það að liggja
fyrir í haust hversu mikið hver
fengi en síðan var því frestað
til áramóta. Nú er ljóst að málið
frestast að minnsta kosti fram í
annan mánuð ársins.
Talið er að um 50 þúsund ein-
staklingar og lögaðilar eignist
hlut í Gift, en ljóst er að stærstu
hluthafarnir í félaginu verða
Samvinnusjóðurinn og Samband
íslenskra samvinnufélaga. - ikh
Enn beðið eftir Gift
Heildarvelta á millibankamark-
aði með gjaldeyri nam tæplega
4,97 milljörðum króna á síðasta
ári og hefur aldrei verið meiri.
Er það þrettán prósenta aukning
frá árinu 2006.
Fram kemur í Morgunkornum
Glitnis að ljóst sé að samhliða
fjölgun þátttakenda í gjaldeyris-
viðskiptum og nánari tengslum
við alþjóðlega gjaldeyrismark-
aði, aukist velta á innlendum
gjaldeyrismarkaði. Sá fyrirvari
er þó sleginn að heildaraukning
veltu á gjaldeyrismarkaði sé lík-
lega mun meiri, enda taki töl-
urnar einungis til viðskipta með
gjaldeyri á millibankamarkaði.
- jsk
Mikil aukning
gjaldeyrisviðskipta Ráðleggja um sölu hlutabréfa
Greiningardeildir bankanna útfæra ráðleggingar til viðskiptavina á nýju ári.
Hluthafafundur Stork N.V. í Hol-
landi heimilaði á föstudag sölu
Stork Food Systems til Marel
Food Systems. Með heimildinni
var brautin jafnframt rudd fyrir
yfirtöku London Acquisition, sem
að standa breski fjárfestingar-
sjóðurinn Candover, íslenska
fjárfestingafélagið Eyrir Invest
og Landsbanki Íslands, á því sem
eftir stendur af hollensku iðn-
samstæðunni.
Í tilkynningu Stork um sam-
þykktina kemur fram að hún sé
því háð að yfirtakan verði lýst
skilyrðislaus, en til þess þurfa
meðal annars 95 prósent hluthafa
að samþykkja yfirtökutilboðið,
sem hljóðar upp á 48,4 evrur á
hvern hlut í Stork. Yfirtökutilboð-
ið rennur út 14. þessa mánaðar.
Í lok nóvember síðastliðinn
gaf stjórn Stork því blessun sína
að selja frá samstæðunni hluta
starfseminnar og lýsti stuðningi
við yfirtöku London Acquisition.
Þá lá þegar fyrir stuðningur tæp-
lega áttatíu prósenta hluthafa.
Yfir takan á Stork N.V. er metin
á 1,5 milljarða evra, eða sem
nemur hátt í 140 milljörðum ís-
lenskra króna. - óká
Hluthafar Stork heimila sölu
Stork Food Systems verður selt Marel með samþykki hluthafa Stork.
FORSTJÓRARNIR SAMAN Hörður
Arnarson, forstjóri Marel Food Systems og
Theo Hoen, forstjóri Stork Food Systems, á
kynningarfundi Marels vegna yfirtökunnar á
Stork í nóvemberlok. MARKAÐURINN/GVA
FORTÍÐ EÐA NÚTÍÐ? Stjórn Stöðvar tvö
árið 1990. Í miklum meirihluta stjórna
stærstu fyrirtækja landsins sitja engar konur.
Ekki er víst að lög sem skylda fyrirtæki til að
hafa lágmarkshlutfall af hvoru kyni í stjórn
standist Evrópurétt.
ÁSGEIR JÓNSSON EDDA RÓS KARLSDÓTTIR INGÓLFUR BENDER