Fréttablaðið - 09.01.2008, Síða 15
MARKAÐURINN 15MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2008
S K O Ð U N
S A G A N Á B A K V I Ð . . . . . . B J Ö R G Ó L F J Ó H A N N S S O N , V E R Ð A N D I F O R S T J Ó R A I C E L A N D E R G R O U P
Við leitum að laghentum, hressum og stílvissum pörum með
brennandi áhuga á innanhússhönnun. Þrjú pör verða valin úr hópi um-
sækjenda og gefst þeim kostur á að taka þátt í spennandi hönnunarkeppni
í nýjum þætti sem fengið hefur nafnið Hæðin og verður frumsýndur á Stöð 2
í mars.
Keppnin gengur út á hvaða par innréttar fallegasta húsið í nýju raðhúsi
á Arnarneshæðinni.
Pörin verða að uppfylla eftirfarandi kröfur:
Vera orðin 20 ára
Vera í langtímasambandi
Vera í fullri vinnu
Geta sinnt verkefninu meðfram vinnu sinni frá febrúar til apríl
Sérlega vegleg verðlaun eru í boði fyrir fallegasta húsið.
Um er að ræða einstakt tækifæri fyrir áhugafólk um hönnun til að láta
reyna á hæfni sína og láta ljós sitt skína skært.
Skráning fer fram á stod2.is og visir.is
og stendur yfir til 18. janúar.
NÝ
ÁSK
ORU
N Í H
ÖNN
UN
NÝT
T Í Í
SLE
NSK
U S
JÓN
VAR
PI
Björgólfur Jóhannsson tekur við
starfi forstjóra Icelandair Group
af Jóni Karli Ólafssyni hinn 15.
janúar næstkomandi.
Um er að ræða ákveðin straum-
hvörf í sögu Icelandair Group,
enda hefur Jón Karl stýrt félag-
inu gegnum ólgusjó liðinna ára,
ásamt því að gegna starfi for-
stjóra Icelandair, stærsta dóttur-
félagsins.
Ekki er langt síðan Icelandair
var keypt út úr FL Group-sam-
stæðunni. Lesa má úr tilkynn-
ingu til Kauphallarinnar um for-
stjóraskiptin að þau séu liður
í áherslubreytingum nýrra eig-
enda, sem gjarnan eru kenndir
við Samvinnutryggingar og hafa
margir verið virkir í starfi Fram-
sóknarflokksins. Því má segja
að með forstjóraskiptunum séu
tengslin við FL Group og Hannes
Smárason endanlega rofin.
Björgólfur Jóhannsson er því
í senn fulltrúi gamalla og nýrra
tíma. Hann á að baki fjölskrúð-
ugan feril í sjávarútvegi, og er
núverandi formaður Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna.
Björgólfur er menntaður við-
skiptafræðingur frá Háskóla Ís-
lands og starfaði um tíma sem
endurskoðandi. Þaðan lá leiðin
til Útgerðarfélags Akureyr-
inga, þar sem hann starfaði um
fimm ára skeið sem fjármála-
stjóri. Árið 1996 tók Björgólfur
við framkvæmdastjórastöðu hjá
Samherja, sem hann gegndi til
ársins 1999 er hann gerðist fram-
kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar.
Björgólfur hefur verið forstjóri
Icelandic Group frá því í mars
2006.
Þegar tilkynnt var um for-
stjóraskiptin lét Björgólfur hafa
eftir sér: „Fyrirtækið er afar
sterkt fjárhagslega og býr yfir
frábæru starfsfólki sem verður
gaman að kynnast og vinna með
að áframhaldandi uppbyggingu.“
Ljóst er því að vistaskiptin leggj-
ast vel í Björgólf, þótt hann sé
vanari að fara sjóleiðina. - jsk
Úr fisknum í flugið
Partístuð
Mér líður eins og unglingi á ný,
kominn í partíið endalausa aftur
sem ég stundaði á háskólaárun-
um og ekki útlit fyrir að ég ætli að
sofna á næstu mánuðum.
Þótt ég sé vissulega ekki
sligaður af ábyrgð og svefnlaus-
um nóttum er ég fjölskyldu maður
og því ekki í partíi í raun og veru.
Auðvitað er ég að tala um partíið
á hlutabréfamarkaðnum á sker-
inu. Er svoleiðis búinn að raka
haug af monníi út af bókunum
úti til að setja í íslensku bréfin á
meðan þau falla að því er virðist
endalaust. Já, stuðboltinn ég er
í fullu svíngi á meðan aðrir eru
farnir heim úr partíinu og pott-
þétt að drepast úr þynnku í ein-
hverju tjaldinu í Laugardalnum
ásamt fjölskyldunni og tengda-
mömmu eftir að hafa veðjað ofan
af sér húsið, bílinn, hundinn og
páfagaukinn.
Þetta þykist ég auðvitað sjá af
öllum heimagerðu kortunum sem
ég fékk í ár. Aðeins eitt með gull-
bryddingum. Sem reyndar var
brandari frá mér til konunnar. En
nóg um það.
Pjéningaspékúlantar nota alls-
kyns tuggur þegar þeir tala um
dýfu á markaðnum eins og núna.
Nota frasa, sem reyndar eru svo-
lítið farnir að súrna, á borð við
„fallandi hnífur sem enginn þorir
að grípa“. Ég gef ekki mikið fyrir
þetta enda lítið sirkusfífl og læt
mér ekki koma til hugar að grípa
fallandi hnífa. Enda mestar líkur
á að skera sig í lófunum áður en
handfanginu er náð.
Miklu frekar kýs ég að kalla
þetta græna tíð á mörkuðum,
brunaútsölu og rífandi tækifæri
fyrir menn eins og mig sem finnst
gaman að moka ofan af monní-
hrúgunni og koma sér aftur vel
fyrir í íslenskum félögum eftir
að hafa selt sig út með bullandi
plús um svipað leyti og leigubíl-
stjóri nokkur spurði mig í sumar
hvort hann ætti að kaupa í Ex-
istu. En fallandi hnífur? Ég bara
botna ekkert í þessu. En ef maður
sker þá... tja, þá bara setur maður
plástur á sárið og gleymir því.
Spákaupaðurinn á horninu
S P Á K A U P M A Ð U R I N N