Fréttablaðið - 09.01.2008, Blaðsíða 16
MARKAÐURINN 9. JANÚAR 2008 MIÐVIKUDAGUR16
H A U S
E
inn mest spennandi hluthafa-
fundur í finnskri sögu er fram
undan segja menn um komandi
hluthafafund í Elisa. Þá takast
á Novator, fjárfestingarfélag
Björg ólfs Thors Björgólfssonar, og stjórn
og ýmsir finnskir hluthafar í fjarskipta-
félaginu Elisa. Fundurinn, sem boðað er
til að kröfu Novators, verður haldinn 21.
janúar.
Hann verður haldinn í skautahöll-
inni í Helsinki. Þar má koma fyrir þús-
undum manna. Fari gólfflötur hússins
undir íshokkí geta átta þúsund manns
setið á áhorfendabekkjum. Þar eru jafn-
framt haldnir stórir rokktónleikar og ráð-
stefnur.
Novator hefur lagt til breytingar á
samþykktum félagsins og vill auk þess
fá tvo menn í stjórn. Talsmenn félagsins
segja að möguleikar þess séu vannýttir
og vilja auka möguleika þess til útrásar
og auka sveigjanleika í rekstri.
Stjórn Elisa og ýmsir hluthafar hafa hins
vegar vísað í ágætt gengi fyrirtækisins.
Engu þurfi að breyta og bæta því við að
framtíðarsýn Novators sé óskýr.
„Þetta kemur á óvart. Þeir hafa í einka-
samtölum aldrei gagnrýnt stefnuna, þvert
á móti hafa þeir hrósað okkur fyrir gott
gengi,“ sagði Pekka Ketonen, stjórnar-
formaður Elisa, í samtali við Frétta blaðið
fyrir skömmu.
Talsmenn Novators fullyrða að mánuð-
um saman hafi verið reynt að sannfæra
stjórnina um ágæti nýrrar stefnu.
GEGN FINNSKA RÍKINU OG ÞJÓÐINNI
Málið hefur vakið mikla athygli í Finn-
landi og víðar og hefur töluvert verið
fjallað um það í ýmsum fjölmiðlum.
Olli Kahkonen, hjá Greiningardeild
Landsbankans í Finnlandi, segir að áhugi
almennings í Finnlandi á málinu sé tölu-
verður. Það skýrist ef til vill af því
að mörg finnsk heimili eigi hlutabréf í
félaginu. En fram hefur komið að eignar-
aðild í fyrirtækinu er mjög dreifð. Hlut-
hafar eru yfir 237 þúsund talsins en
Novator er samkvæmt nýjustu upplýs-
ingum langstærsti einstaki hluthafinn.
Finnsk heimili eiga hins vegar tæplega
fjórðung hluta í félaginu, samkvæmt
upplýsingum á vefsíðu Elisa.
Fram kemur í finnskum fjölmiðlum að
þúsundir hluthafa hafi falið samtökum
fjárfesta umboð fyrir sig á hluthafafund-
inum 21. janúar. Samtökin hafa lýst and-
stöðu við hugmyndir Novators. Þó er enn
óvíst hversu miklu atkvæðamagni sam-
tökin munu ráða á hluthafafundinum.
„Mér finnst fínt að Novator leggi
áherslu á vöxt. Hins vegar hefur ekki
verið kynnt áætlun sem tryggir vöxtinn
með lítilli áhættu, að minnsta kosti ekk-
ert í samræmi við núverandi áætlanir
fyrirtækisins,“ segir Jarmo Leppiniemi,
formaður samtaka finnskra fjárfesta.
Þá á finnska ríkið 0,65 prósenta hlut í
fyrirtækinu og hefur snúist á sveif með
þeim sem lýsa andstöðu við hugmyndir
Novators.
Því má kannski með nokkrum rétti
segja að Björgólfur berjist bæði gegn
finnsku stjórninni og finnsku þjóðinni.
„Þetta virðist vera skýrt merki um
þjóðernishyggju sem verður til þess að
hluthöfum er mismunað. Það er ekki
gáfulegt að mismuna þeim sem ekki tala
finnsku, ekki síst í ljósi þess að helmingur
félagsins er í erlendri eigu,“ sagði Björ-
gólfur Thor um viðbrögð Finna í viðtali
við Helsingin Sanomat.
Orri Hauksson, talsmaður Novators í
Finnlandi, segir að einkum hafi verið rætt
við erlenda fjárfesta, en þeir ráði yfir
helmingi hlutafjár í Elisa.
ÚTRÁS FRÁ FINNLANDI
En um hvað snýst málið? Frá því að
Novator eignaðist hlut í Elisa, í ársbyrjun
2005, virðist reksturinn hafa gengið ágæt-
lega ef marka má ummæli Pekka Keton-
en í Fréttablaðinu. Þá hefur gengi hluta-
bréfa í félaginu yfirleitt verið á leiðinni
upp á við síðan. Var í kringum 12 í árs-
byrjun 2005 og stendur í tæpum 22 þegar
þetta er skrifað.
Orri Hauksson hefur sagt að í Elisa
liggi miklir vannýttir möguleikar, sem
ekki verði séð að nýtist við núverandi
skipulag.
„Þarna er mikið af óinnleystum verð-
mætum í félaginu. Við viljum að félagið
geti nýtt sér Finnland sem stökkpall til
frekari útrásar, en það getur illa gerst við
núverandi skipulag þess. Til þess þarf að
auka sveigjanleikann.“
Björgólfur Thor Björgólfsson segir í
viðtalinu við Helsingin Sanomat að eina
markmið sitt sé að auka virði hlut hafanna.
Því hafi viðbrögð Finna komið sér veru-
lega á óvart.
Orri Hauksson hefur einnig sagt að
Novator vilji einnig fá fulltrúa í stjórn
Elisa þar sem ljóst sé að nú sé munur
á stefnu stjórnarinnar og stærsta hlut-
hafans.
„Ég fæ ekki séð að við eigum að breyta
skipulagi félagsins ef við vitum hvorki
hver framtíðarsýn Novators er né hvernig
slíkri sýn yrði hrint í framkvæmd,“ sagði
Ketonen við Fréttablaðið og bætti því við
því við að núverandi áætlanir Elisa pöss-
uðu ekki vel við hugmyndir Novators.
TÓM TJARA
Meðal þess sem fram hefur komið í Finn-
landi er að Novator vilji sameina Elisa
öðru félagi á vaxandi markaði í Mið-
og Austur-Evrópu. Þetta útspil sé fyrsta
skrefið á lengri vegferð. Novator eigi tvö
fjarskiptafyrirtæki í Póllandi og hyggi á
sameiningar.
Björgólfur blæs á þetta í viðtalinu við
Helsingin Sanomat. „Orðið misskilningur
dugar ekki til að lýsa þessu,“ segir Björg-
ólfur. „Fullyrðingar um þetta eru tóm
tjara.“ Ekki standi til að sameina Elisa og
pólsku félögin.
Fram kemur í Financial Times fyrir
fáum vikum að núverandi stjórnendur
Elisa séu gagnrýndir fyrir að hafa glatað
tækifærum til útrásar til Rússlands og
Eystrasaltslandanna.
„Þeir haga sér eins og skriffinnar,“
var haft eftir Björgólfi í blaðinu og vís-
aði hann til stjórnar Elisa. Félagið væri
rekið þannig að það stæði í stað. Stjórnin
ráðlegði hluthöfum nú að rugga ekki
bátnum. „En það er kominn tími til að
taka í taumana,“ segir Björgólfur Thor.
BARIST UM BRÉFIN TIL SÍÐASTA DAGS
Finnsku tryggingafélögin og lífeyris-
sjóðirnir, sem eiga næststærsta hlut-
inn í Elisa á eftir Novator, hafa und-
anfarið aukið hlut sinn í félaginu. Þá
hefur Novator aukið hlut sinn undan-
farna daga, samkvæmt heimildum Mark-
aðarins. Aukningin mun þó ekki vera
teljandi.
Ljóst er því að hörð barátta um fram-
tíð félagsins er þegar hafin, ekki aðeins í
fjölmiðlum, heldur einnig í kauphöllinni.
Olli Kahkonen segir að síðasti dagur-
inn til að kaupa hlutabréf í félaginu til
að öðlast atkvæðisrétt á fundinum hafi
verið í gær. Þá hafi þúsundir Finna veitt
samtökum fjárfesta þar í landi umboð til
að fara með atkvæði sitt á fundinum.
HVAÐ GERIST 21. JANÚAR?
Viðmælendur Markaðarins fara varlega
í að spá fyrir um niðurstöðu hluthafa-
fundarins. Helming atkvæða á fundinum
þarf til að leysa stjórnina frá störfum og
kjósa nýja, en til að ná fram breytingu á
samþykktum félagsins, eins og Novator
leggur til, þarf samþykki fulltrúa fyrir
tvo þriðju hlutafjár.
Orri Hauksson segir að fundurinn verði
sennilega sá mest spennandi í Finnlandi í
lengri tíma. Menn séu bjartsýnir en hann
vill ekki spá fyrir um útkomu. „Form og
tímasetningar á því hvað við gerum eru í
sjálfu sér ekkert trúaratriði.“ Aðalmálið
sé að hluthafar njóti góðs af fyrirtækinu.
Þá bætir Orri því við að þótt átök hafi
verið um málið, sé það jákvætt að vitund
hluthafanna, sem lengi hafi verið óvirkir,
hafi aukist. Björgólfur Thor segist ekki
vilja spá í niðurstöðuna fyrir fram, í við-
talinu við Helsingin Sanomat, hann ætli
hins vegar alls ekki að missa af fund-
inum.
Ketonen vildi lítið um þetta spá
þegar fréttablaðið ræddi við hann fyrir
nokkrum vikum.
Jarmo Leppiniemi segir komandi fund
mjög spennandi en telur að Novator
verði undir í átökunum.
Olli Kahkonen bendir á að nýlega hafi
verið gerð skoðanakönnun sem sýni að
meirihluti smærri hluthafa sé andsnúinn
hugmyndum Novators. „En um niðurstöðu
hluthafafundarins verður erfitt að spá.
En víst er að þetta verður sennilega mest
spennandi hluthafa fundur sem haldinn
hefur verið hér á landi.“
Vetrarstríð Novators við Finnana
Novator vill breyta næststærsta fjarskiptafélagi Finna og halda í útrás frá Finnlandi. Hugmyndir hans mæta andstöðu sem hann
skýrir með þjóðernishyggju. Finnar telja hugmyndir hans óskýrar og vilja ekki breyta því sem vel gengur. Ingimar Karl Helgason
fer yfir átökin um finnska fjarskiptafélagið Elisa.
T Í M A R Ö Ð
2005: Novator eignast hlut í Elisa.
júní 2006: Hlutabréf í Elisa taka að hækka í verði.
apríl 2006 - febrúar 2007: Novator hefur frumkvæði að viðræð-
um við stjórn Elisa um breytingar á skipulagi félagsins.
apríl - nóvember 2007: Miklar umræður við stjórn um framtíð
fyrirtækisins
31. október 2007: Stjórn Elisa hafnar tillögum Novators form-
lega.
22. nóvember 2007: Novator krefst hluthafafundar.
nóvember 2007: Stjórnarformaður Elisa segir kröfu Novators
um fundinn koma á óvart. Sú fullyrðing kemur Novator á óvart.
21. janúar 2008: Hluthafafundur í Elisa þar sem tekist verður á
um tillögur Novators
E L I S A Í T Ö L U M
Fjöldi Finna 5.200.000.000
Fjöldi viðskiptavina Elisa 3.930.800
Fjöldi hluthafa í Elisa 237.000
Fjöldi starfsmanna Elisa 3.229
Fjöldi SMS-skeyta sem send voru af við
skiptavinum Elisa á þriðja ársfjórðingi 2007 382.000.000
Fjöldi mínútna sem viðskiptavinir Elisa
töluðu í símann á þriðja ársfjórðingi 2007 1.428.000.000
Fjöldi landa sem Elisa starfar í 2
Fjöldi stjórnarmanna í Elisa 6
Árið sem Elisa var stofnað 1882
Tekjur Elisa í evrum árið 2006 1.520.000.000
Markaðsvirði í evrum um miðjan dag í gær 3.577.276.175
Fjöldi frétta á Google News sem fjalla um
þátt Novators í Elisa undanfarnar vikur 88
H V E R J U V I L L N O V A T O R B R E Y T A ?
Endurnýjun í stjórn:
■ fá tvo fulltrúa
■ þarf einfaldan meirihluta
Breyting á samþykktum:
■ félaginu skipt í rekstrar- og fjárfestingarhluta
■ þarf tvo þriðju hlutafjár til samþykktar
D J Ú P A R R Æ T U R
■ Elisa er næststærsta fjarskiptafyrirtæki Finnlands og er þar
rótgróið. Saga þess er rakin aftur á nítjándu öld, en það var
stofnað árið 1882.
■ Félagið var skráð á hlutabréfamarkað árið 1997. Helsti
markaður þess er heimamarkaðurinn í Finnlandi þar sem
félagið býður bæði fastlínu símaþjónustu og GSM-þjón-
ustu, auk þess sem unnið er að uppbyggingu 3G-þjónustu.
Þá hefur fyrirtækið verið með starfsemi í Eistlandi. Þess
má geta að eistneska er skyld finnsku, en málin eru óskyld
öllum öðrum Evrópumálum að ungversku frátalinni.
■ Verðmæti hlutabréfa í félaginu hafa næstum tvöfaldast
síðan Novator eignaðist hlut í því.
S T Æ R S T U H L U T H A F A R N I R
1 Novator Finland Oy 11,48%
2 Ilmarinen Mutual Pension Insurance Company 4,90%
3 Varma Mutual Pension Insurance Company 1,80%
4 Ajanta Oy 1,25%
5 OP-Delta Equity Fund 0,85%
6 Nordea Bank Suomi Oyj 0,74%
7 Helsinki-borg 0,67%
8 Prime Minister’s Office 0,65%
9 State Pension Fund 0,63%
10 Etera Mutual Pension Fund 0,57%
11 Eläke-Fennia Mutual Pension Insurance Company 0,41%
12 Sampo Suomi Osake Equity Fund 0,29%
13 Nordea Fennia Equity Fund 0,22%
14 Säästöpankki Kotimaa Equity Fund 0,20%
15 OP-Focus Special Equity Fund 0,18%
16 ABN Amro Finland Equity Fund 0,18%
17 Gyllenberg Finlandia Equity Fund 0,18%
18 City of Vantaa 0,16%
19 Nordea Pro Suomi Equity Fund 0,14%
20 OMX Helsinki 25 Special Equity Fund 0,14%
BJÖRGÓLFUR THOR
BJÖRGÓLFSSON Vill auka
hagnað hluthafanna. Vill
breyta skipulagi fyrirtækisins
og gera það sveigjanlegra.
JARMO LEPPINIEMI Finnst
hugmyndir Novators óskýrar.
Treystir heldur núverandi stjórn
fyrir framtíð fyrirtækisins.
Finnland
Svíþjóð
Noregur
Danmörk
Pólland
Litháen
Lettland
RússlandEistland
Nú þegar með starfsemi
Sækist eftir starfsemi