Fréttablaðið - 09.01.2008, Síða 24
9% 17,2% 600Lækkun úrvalsvísitölunnar frá ára-mótum. Lækkun á bréfum Exista fyrstu þrjá viðskiptadaga ársins. milljarðar eru heildarfjárhæðin sem fellur á gjalddaga hjá íslensku bönkunum á árinu.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Það vakti nokkra undrun að Jón
Karl Ólafsson, fráfarandi for-
stjóri Icelandair, skyldi látinn
taka pokann sinn. Svo virðist
sem núverandi eigendur hafi
ekki verið ánægðir með störf
hans eða þá að menn hafi ekki
náð að ganga og tala í takt.
Reynsla Jóns Karls á rekstri
flugfélaga er nokkur og hann er
góður talsmaður skráðs félags.
En það voru engar biðraðir í
starf hans samkvæmt heimild-
um Markaðarins. Talað var við
að minnsta kosti sjö einstaklinga
o g þeim boðinn stóllinn
áður en Björgólfur
Jóhannsson sagði já.
Skiljanleg ákvörðun
hjá Björgólfi enda
stendur Icelandair
illa og björgunar-
leiðangurinn haf-
inn.
Leitin mikla
Nokkur geðshræring greip um
sig þegar Kaupþing sendi lykil-
mönnum Fjármálaeftirlitsins
rauðvín um jólin. Forstjóri
eftir litsins ánafnaði starfs-
mannasjóðnum flöskurnar og
verður líklega haldið gott partí
á næstunni þar sem veigarnar
verða teygaðar. Þessir heilögu
Kínamúrar eru auðvitað nauð-
synlegir til að koma í veg fyrir
hagsmunaárekstra. Þrátt fyrir
að Fjármálaeftirlitið megi ekki
þiggja rauðvínsflösku frá fjár-
málafyrirtækjum þá er það svo
að fjármálafyrirtækin standa
straum af rekstri eftir-
litsins á hverju ári. Það
mun varla hafa áhrif á við-
horf starfsmanna FME til
skjólstæðinga stofnunar-
innar enda má segja það
hreina og beina skatt-
heimtu. Og varla renn-
ur króna af þeirri fjár-
mögnun til kaupa á rauð-
víni eða öðrum veigum í
ferðum starfsmanna eða
uppákomum.
Gott partí
Búast má við miklu fjöri á hlut-
hafafundi Elisa 21. janúar þar sem
Björgólfur Thor Björgólfsson
og Orri Hauksson munu þurfa
að kljást við þjóðarsál Finna til
að breyta þessu rótgróna síma-
fyrirtæki. Margir hluthafar eiga
seturétt og ef til vill mun blása
köldu í átt að Íslendingum enda
fundurinn haldinn í skautahöll-
inni í Helsinki. Eftir að prúð-
búnir hluthafar og ný stjórn
ganga út úr höllinni tekur enn
fjörugri fundur við. Þá verður
einhvers konar kynlífsráðstefna
haldin í skautahöllinni undir
nafni Sexhibition. Fólk úr þeim
geira kemur þá saman og ræðir
sameiginlega hagsmuni iðnaðar-
ins. Varla munu þessir hópar
skarast mikið og vonandi truflar
kynlífsráðstefnan ekki þjóðarsál
Finna eins mikið og Íslendinga
þegar fólki var úthýst af Hótel
Sögu í fyrra.
Ræða kynlíf
eftir símafund
Félags- og tryggingamálaráðuneyti
Opið málþing innflytjendaráðs og félags- og tryggingamálaráðuneytis
11. janúar 2008, klukkan 9.30–16.30 í Borgartúni 6
Fjallað verður um framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í málefnum innflytjenda.
Innflytjendaráð kallar eftir sjónarmiðum og hugmyndum frá sem flestum.
10.00–11.00
Inngangserindi
Hrannar Björn Arnarsson, formaður innflytjendaráðs
Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitafélaga
Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs Reykjavíkur
11.00–12.30 Málstofur – fyrri hluti
Löggjöf sem hefur áhrif á innflytjendur
Margrét Steinarsdóttir, lögfræðingur í Alþjóðahúsi
Paul Nikolov, varaþingmaður Vinstri hreyfingarinnar –
græns framboðs
Atvinnumál
Halldór Grönvold, deildarstjóri félagsmáladeildar
Alþýðusambands Íslands
Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs
Samtaka atvinnulífsins
Fjölmenning í spegli fræðanna
Rannsóknir Háskóla Íslands kynntar
Hanna Ragnarsdóttir, lektor í Kennaraháskóla Íslands
Þóroddur Bjarnason, prófessor í
félagsfræði við Háskólann á Akureyri
Upplýsingamiðlun – til innflytjenda og
um innflytjendur
Margrét Ásgeirsdóttir, forstöðumaður Bæjar- og
héraðsbókasafnsins á Selfossi
Ólöf Garðarsdóttir, deildarstjóri mannfjöldadeildar
Hagstofu Íslands
Ari Klængur Jónsson, verkefnastjóri Fjölmenningarseturs í
upplýsingamiðlun
13.30–15.00 Málstofur – seinni hluti
Nærsamfélagið og sveitarfélög
Edda Ólafsdóttir, félagsráðgjafi á Þjónustumiðstöð
Miðborgar og Hlíða
Helga Jónsdóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar
Aðalsteinn Á. Baldursson forstöðumaður og Snæbjörn
Sigurðarson, verkefnastjóri á Skrifstofu stéttarfélaganna á
Húsavík
Fordómar, fjölmiðlar og fræðsla
Guðrún Pétursdóttir, félagsfræðingur og
framkvæmdastjóri InterCultural Iceland
Amal Tamimi, fulltrúi fræðsludeildar Alþjóðahúss
Karl Blöndal, aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins
Menntun – Auður í krafti innflytjenda
Hulda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Mímis-símenntunar
Ólafur Grétar Kristjánsson, deildarsérfræðingur í
menntamálaráðuneyti
Atli Lýðsson, fræðslustjóri hjá Eflingu-stéttarfélagi
Framtíð barna
Hulda Karen Daníelsdóttir, kennsluráðgjafi hjá
Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða
Brian Daniel Marshall, doktorsnemi í Háskólanum í
Reykjavík
Sesselja Guðmundsdóttir, sviðsstjóri ung- og
smábarnasviðs hjá Miðstöð heilsuverndar barna
Að málþingi loknu mun Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra tilkynna um styrkveitingar úr
þróunarsjóði innflytjendamála og er það í fyrsta sinn sem styrkir eru veittir úr sjóðnum.
Ráðstefnustjórar eru Barbara Gunnlaugsdóttir, formaður Félags Pólverja á Vestfjörðum, og Haukur
Guðmundsson, skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneyti.
Þátttökugjald er 1.500 krónur. Hádegisverður og kaffi er innifalið.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfangið linda.ros.alfredsdottir@fel.stjr.is
Nánari upplýsingar um dagskrá er að finna á heimasíðu félags- og tryggingamálaráðuneytis,
www.felagsmalaraduneyti.is