Fréttablaðið - 14.01.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
MÁNUDAGUR
14. janúar 2008 — 13. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
GUÐRÚN KATRÍN JÓHANNSDÓTTIR
Keypti búslóðina á
„kaupa ekkert-deginum“
heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
ÁSGEIR DAVÍÐSSON
Breytir til á
Bóhem
Byggir glæsilegan sportbar
FÓLK 30
FASTEIGNIR
Virðulegt hús
í Hafnarfirði
Sérblað um fasteignir
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Britney að gifta sig
Sögð ýmist vera að
snúast til Vísinda-
kirkjunnar eða
íslam.
FÓLK 20
Paul eltur á röndum
Heather Mills hyggst
grípa hann glóð-
volgan.
FÓLK 20
Nýliðar og gamlir refir
Iðnaðarmannafélag í Hafnarfirði
40 ára.
TÍMAMÓT 16
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Allir eiga sinn uppáhaldsstað á heimilinu og Guðrún Katrín Jóhannsdóttir innkaupafulltrúi er þar engin undantekning. Hún og tíkin Beta njóta þess að kúra saman í stofusófanum.
„Ég flutti inn í nýja íbúð fyrir skömmu og hafði fram að því verið með samsafn húsgagna héðan og þaðan. Þetta er mín fyrsta íbúð og er ég auk þess fyrsti íbúinn þar sem hún er ný. Mig langaði því að fá mér ný húsgögn, valin af mér, og ákvað meðal annars að kaupa mér sófa,“ segir Guðrún og bætir við: „Ég ætlaði að fá mér tungusófa en sófinn sem mig langaði í var ekki til og úr varð að ég keypti þennan sófa sem er rúmgóður og með lausum fót-skemli sem færa má að vild og er það mjög þægi-legt.“
Kaldhæðni örlaganna réði því að d i
dag. „Það var frekar skondin tímasetning en Ikea var oft og iðulega heimsótt á þessu tímabili og naut viðskipta minna. Ég vildi frekar kaupa ódýr hús-gögn og eiga þá einhvern pening eftir fyrir hestana mína og ferðalög frekar en að eyða öllu í húsgögn og því segi ég stundum að íbúðin mín sé eins og bás í Ikea,“ segir Guðrún kímin. Tíkin Beta er mikið gæludýr og nýtur þess að lúra í sófanum hjá Guðrúnu. „Hún kemur ekki óboðin en hins vegar er hún svolítil prinsessa og fær yfirleitt að vera í sófanum. Hún á teppi sem hún liggur á,“ segir Guðrún glettin. Ljóst er að Beta litla hefur töluverð áhrif þar sem hún var Guðrúnu ofarlega í huga við val á íbúðinni. „Ég leitaði að íbúð í tvö ár sem væri með sér inngangi og garði fyrir Betu og hæfði mínum fjárhag. Síðan datt þessi íbúðupp í hendurnar á mér o þ ð
Nýjungar og notalegheit
Handklæði, tuskur og diskaþurrkur er tilvalið að fara í gegnum í byrjun nýs árs og fleygja því
sem orðið er ónýtt.
Eins getur verið gott
að athuga rúmfötin
og kaupa ný ef það
hefur ekki verið gert
fyrir jólin.
Geymslur fyllast
venjulega fljótt af alls
konar dóti og drasli
og margt af því verður
aldrei notað aftur þó
enginn tími að henda
því. Stundum er þó bara gott að sleppa takinu og hreinsa hressilega til.
Húsgögn getur verið
skemmtilegt að færa
annað slagið til ef rými
leyfir. Oft er gott að
brjóta upp vanann þó
að það sé bara tíma-
bundið, því það er ekkert mál að færa húsgögnin til baka.
Þær „mæðgur“ Guðrún Katrín og Beta láta oftar en ekki fara vel um sig í sófahorninu.
FRÉTTAB
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
ýs
in
g
as
ím
i
14. JANÚAR 2008
Fasteignasalan Ás hefur til sölu fallegt einbýlis-hús í Hafnarfirði.
F agrakinn 9 er fallegt og virðulegt hús á þrem-ur hæðum. Því hefur verið vel við haldið og er 194,7 fermetrar að stærð ásamt 41 fermetra bílskúr, alls eru þetta 235,7 fm.
Komið er inn í forstofu með skáp og korkflísum á gólfi. Eldhús er með eldri innréttingu og mósaík-flísum milli skápa en parkett er á gólfi. Snyrting er með hvítri innréttingu, parketti á gólfi og máluðum veggjum. Parkett er á gangi. Tvær stofur og borð-stofa eru á hæðinni með parketti á gólfum. Útgengt er út á svalir úr stofu.
Í risi eru þrjú góð svefnherbergi undir súð með kvistgluggum. Skápar í tveimur herbergjanna og parkett á tveimur en dúkur á einu þeirra. Á neðstu hæðinni er gott hol með ljósum flísum og skáp. Stórt tvöfalt herbergi sem mögulegt er skipta niður í tvö góð svefnherbergi. Ljósar flísar eru á gólfi. Baðherbergi er með sturtuklefa, viðarinnrétt-ingu, flísum á gólfi en panill er á veggjum. Þar er einnig klefi fyrir gufubað. Þvottahús er flísalagt. Útgengt er af jarðhæð út í lóð. Tvær geymslur fylgja eigninni. Innangengt er í bílskúr sem er full-búinn með hita og rafmagni. Þak hússins er uppruna-legt.
Verð eignarinnar er 53 milljónir króna.
Virðulegt og vel við haldið
Fagrakinn 9 er fallegt og virðulegt hús á þremur hæðum í Hafnarfirði.
LÁTTU DRAUMINN
VERÐA AÐ VERULEIKA
Hafðu í huga að það fyrsta sem væntanlegur kaupandi sér eru útidyrnar.
hurðir standi á sér.
Ást við fyrstu sýn !
Við erum 100% til staðar fyrir þig !
Við hjálpum þér 100% við flutninginn
699 6165
Þú fær
ð
FRÍA
flutning
skassa
fasteignir
EFNAHAGSMÁL „Yfirleitt eru ekki
líkur á að nokkur lífeyrissjóður
geti bætt réttindin þar sem ekki er
borð fyrir báru vegna afkomunnar
í fyrra,“ segir Hrafn Magnússon,
framkvæmdastjóri Landssamtaka
lífeyris sjóða.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna
skilaði í fyrra undir eins prósents
raunávöxtun. Þorgeir Eyjólfs son,
forstjóri sjóðsins, segir vonbrigði
að geta ekki hækkað líf eyris-
réttindi sjóðfélaga nú um áramótin
„eins og útlit var fyrir um mitt
ár“.
Haukur Hafsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfs-
manna ríkisins, stærsta sjóðsins,
vill ekki tjá sig um líklega afkomu
sjóðsins, þar sem uppgjöri sé ekki
lokið. Hann bendir hins vegar á að
réttindi sjóðfélaga þar séu lög-
bundin og verði hvorki aukin né
skert.
Helgi Hjálmsson, formaður
Landssambands eldri borgara,
segir tíðindin ekki koma sér á
óvart. „Aðalvonbrigðin eru að ríkið
sjái ekki sóma sinn í að laga þennan
grunnlífeyri,“ segir Helgi. „Í dag
er hann um 25 þúsund en okkar
skoðun er að hann eigi að fara að
minnsta kosti í áttatíu þúsund.
Framlög frá Tryggingastofnun, líf-
eyrissjóðunum og frá séreignasjóð-
unum eiga að mynda þann lífeyri
sem ætti að duga fyrir eldri borg-
ara. Ef þessar þrjár stoðir nægja
ekki á að koma viðbótarframlag
frá Tryggingastofnun,“ segir hann.
Samkvæmt nýjum tölum frá
Seðlabankanum hafa hreinar eignir
lífeyrissjóðanna hafi dregist saman
um tvö prósent, eða tæpa 33 millj-
arða króna í nóvember. Þetta er
mesta lækkun á eignum sjóðanna í
einum mánuði í tíu ár. Þetta skýrist
af lækkun á verði hlutabréfa, segir
Seðlabankinn.
Hins vegar jókst hrein eign sjóð-
anna um ríflega tvö hundruð millj-
arða króna frá nóvember 2006 til
sama mánaðar í fyrra. Þetta er
fjórtán prósenta aukning milli ára,
en mun hægari aukning en árið
2006; þá nam hún ríflega fimmt-
ungi. - ikh/fb
Lífeyrissjóðir auka
ekki greiðslur á árinu
Framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða telur að lífeyrissjóðir geti ekki
bætt réttindi félaga sinna vegna slæmrar afkomu í fyrra. Formaður Landssam-
bands eldri borgara vill að ríkið hækki grunnlífeyrinn í áttatíu þúsund.
HEILBRIGÐISMÁL „Jú það er rétt, flensan er komin.
Eitt tilfelli af inflúensu A hefur þegar verið greint
og annað af inflúensu B. Þetta byrjar með örfáum
tilfellum en ætti að ná hámarki í febrúar,“ segir
Haraldur Briem sóttvarnalæknir.
Inflúensan er árlegur faraldur sem stafar af
inflúensuveiru og berst auðveldlega á milli manna.
Algengt er að fólk liggi lengi í rúminu og veiran
getur lagst illa á fullorðið fólk og þá sem eru með
aðra sjúkdóma fyrir.
„Við hvetjum þá sem eru yfir sextugu til að láta
bólusetja sig, og einnig starfsmenn heilbrigðisstofn-
ana,“ segir Haraldur.
Í ár stendur landlæknisembættið fyrir aukinni
fræðslu um flensuna og á vefnum www.influensa.is
má nálgast gagnlegar upplýsingar um veiruna.
„Þegar inflúensan gengur eykst álag á spítölunum.
Við hvetjum fólk til einfaldra aðgerða eins og að þvo
sér um hendurnar og fara ekki veikt í vinnuna,“
segir Haraldur. - þo
Árlega inflúensan er komin til landsins og nær væntanlega hámarki í febrúar:
Fræðsla um flensuna á netinu
Áframhaldandi frost norðan-
lands en hlýnar sunnantil. Snjó-
koma norðan- og vestanlands en
slydda syðra.
VEÐUR 4
Arnór úr leik?
Arnór Atlason
verður líklega
ekki með á EM
vegna meiðsla.
Mikil meiðsl hrjá
landsliðið.
ÍÞRÓTTIR 24
SKAUTAÐ Á TJÖRNINNI Félagarnir Ketill, Bjössi, Steini og Dagur skautuðu fimlega á Reykjavíkurtjörn í gær. Veðrið var eins og það
gerist best á þessum árstíma og því tilvalið að stunda skemmtilega útivist með góðum vinum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÍÞRÓTTIR Íslenska landsliðið í hand-
knattleik sigraði Tékka með
tveggja marka mun í vináttulands-
leik liðanna sem fram fór í Laugar-
dalshöll í gær.
Tékkar áttu fremur slakan leik
og enginn glæsibragur var heldur
yfir frammistöðu íslenska liðsins,
sem var undir í fyrri hálfleik 11-
10. Strákarnir okkar náðu svo for-
ystu í síðari hálfleik og fóru með
sigur af hólmi, 32-30.
Ólafur Stefánsson var marka-
hæstur leikmanna íslenska liðsins
og skoraði 6 mörk.
Á morgun fer fram síðari leikur
liðanna, sem er jafnframt síðasti
leikur íslenska landsliðsins fyrir
EM. - hbg / sjá síðu 24
Landsliðið í handknattleik:
Sigur á Tékkum
í slökum leik
MARK Snorri Steinn Guðjónsson skoraði
þrjú mörk í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LÖGREGLUMÁL Fjórir slösuðust
þegar tveir fólksbílar rákust
saman á Reykjanesbraut, á móts
við álverið í Straumsvík, laust
fyrir klukkan hálf sjö í gær-
kvöldi.
Þrennt var í öðrum bílnum en
ökumaðurinn einn í hinum
bílnum. Voru þau öll flutt með
sjúkrabíl á slysadeild til aðhlynn-
ingar en þau voru ekki talin
alvarlega slösuð.
Bílarnir skemmdust mikið og
voru báðir óökufærir. Þurfti
kranabíl til að flytja þá af
vettvangi en ekki þurfti að loka
Reykjanesbrautinni vegna
slyssins. - ovd
Árekstur á Reykjanesbraut:
Fjórir fluttir á
slysadeild
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
Mánudagur
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í ágúst–október 2007
Lestur meðal 18–49 ára
á höfuðborgarsvæðinu*
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
40%
69%