Fréttablaðið - 14.01.2008, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 14.01.2008, Blaðsíða 56
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þráins Bertelssonar Í dag er mánudagurinn 14. janúar, 14. dagur ársins. 10.58 13.36 16.15 11.05 13.21 15.38 Hinar yndislegu pælingar sem dómsmálaráðherrann okkar birtir á blogginu sínu eru ljós í skammdeginu. Núna á laugardag- inn birti þessi höfuðsnillingur dæmisögu sem útskýrir bandarísk stjórnmál af mikilli réttsýni: REPÚBLÍKANI OG DEMÓ- KRATI voru á gangi og mættu flakkara. Repúblíkaninn gaf flakk- aranum nafnspjaldið sitt og sagði honum að koma í fyrirtæki sitt og fá vinnu. Hann tók síðan tuttugu dollara seðil úr vasa sínum og gaf flakkaranum. Demókratinn hreifst mjög af þessu og þegar þeir mættu öðrum flakkara, ákvað hann að veita honum aðstoð. Hann fór til flakkarans og vísaði honum leiðina að næstu skrifstofu félagsaðstoðar. Hann fór síðan í vasa repúblíkan- ans og gaf flakkaranum fimmtíu dollara. NÚ SKILUR ÞÚ, hver er munur- inn á milli repúblíkana og demó- krata.“ DÆMISAGA um íslensk stjórn- mál handa dómsmálaráðherranum að birta á bloggsíðu sinni gæti verið á þessa leið: Samfylkingar- maður og Sjálfstæðismaður sitja saman í ríkisstjórn. Ungsjalli sækir um dómaraembætti sem reyndari lögfræðingar væru mun hæfari til að gegna. Sjálfstæðismaðurinn tekur fjármálaráðherra úr vasa sínum og lætur fjármálaráðherr- ann skipa sjalladrenginn í embættið. Samfylkingarmaðurinn spyr óttasleginn: Hvernig ætlar þú að réttlæta þetta? SJÁLFSTÆÐISMAÐURINN svarar: Framsóknarmenn gera góðverk til að hygla sjálfum sér og hver öðrum. Það er spilling. Við Sjálfstæðismenn gerum góðverk af samúð með ráðherrabörnum, skyldmennum og vinum ráðherra og öðrum sem standa höllum fæti í samfélaginu – og svo munum við að víkja sæti á meðan. SAMFYLKINGARMAÐUR- INN segir: Auðvitað á maður að hjálpa þeim sem standa höllum fæti í samfélaginu. Það er hið háleita markmið stjórnmálanna. Úr því að við erum sammála um grundvallaratriði getum við setið saman í stjórn til eilífðar. NÚ SKILUR ÞÚ muninn á Fram- sóknarmönnum annars vegar og alvöru stjórnmálamönnum hins vegar. Framsóknarmenn eru gjör- spilltir og púkalegir en hinir síðar- nefndu eru staðfastir hugsjóna- menn sem berjast gegn því að fólk sé lagt í einelti þótt það sé svo óheppið að vera af góðum og inn- vígðum ættum og hafa réttar og innmúraðar skoðanir. Dæmisögur úr pólitík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.