Fréttablaðið - 15.01.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 500015. janúar 2008 — 14. tölublað — 8. árgangur
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Það eru ekki margir krakkar sem harðneita að
borða pulsur með öllu og drekka ekki gos. Úlfur
Árnason, átta ára nemandi í þriðja bekk í Mela-
skóla, er hins vegar ekkert hrifinn af pulsum og
drekkur ekki gos. Hinir krakkarnir í bekknum eru
ekki alveg eins duglegir að sögn Úlfs.„Sumir er dál
ömmu sinni því mamma hans borði ekki lambakjöt.
Úlfur nefnir líka fiskrétt sem kannski ekki allir
krakkar væru hrifnir af. „Keilusteik! Ég man ekki
hvar ég smakkaði hana fyrst en einu sinni keyptum
við pínu keilusteik og þá fannst mér hún sv óð
vildi alltaf vera að bo ði
Nammi dálítið vont
FRÉTTA
B
LAÐ
IÐ
/A
U
Ð
U
N
N
Úlfur Árnason gleymir nammi-dögunum.
LÉTT Á FÆTI
Góða skó er nauðsynlegt að eignast áður en farið er að stunda líkamsræktar-stöðvarnar.
HEILSA 2
LÆRIR UM
LÍKAMANN
Margrét Guðmundsdóttir lærir alls konar nudd í Nuddskóla Íslands.
NÁM 3
Umbo›s- og sölua›iliBirkiaska ehf.sími: 551 9239www.birkiaska.is
Birkiaska
Heilsusetur Þórgunnu • Egilsgötu 30 101 Rvk
heilsusetur.is • sími 896-9653 • prema@mmedia.is
Laugardaginn 26. janúar næstkomandi frá kl 11:00 til 15:00
• Punktanudd, indverst höfuðnudd• Ilmolíunudd
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
Þriðjudagur
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í ágúst–október 2007
Lestur meðal 18–49 ára
á höfuðborgarsvæðinu*
36%
B
la
ð
ið
/2
4
s
tu
n
d
ir
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
38%
68%
B
la
B
l
VEÐRIÐ Í DAG
ÚLFUR ÁRNASON
Neitar að borða pulsur
og drekkur ekki gos
heilsa nám
Í MIÐJU BLAÐSINS
Fræðandi ferða-
lag um tímann
Amtsbókasafnið á
Akureyri er 180 ára.
TÍMAMÓT 18
ÞRIÐJUDAGUR
SKOÐUN Sigurður Líndal laga-
pró fessor gagnrýnir Árna
Mathiesen, settan
dómsmálaráðherra,
harðlega fyrir að
skipa Þorstein
Davíðsson í embætti
héraðsdómara, í
grein í Fréttablað-
inu í dag.
„Þegar gengið er
jafn gróflega í
berhögg við álit
nefndarinnar og
naumast liggur
annað fyrir frá settum dómsmála-
ráðherra en orðafar sem hæfir
götustrákum er eðlilegt að menn
leiti skýringa á háttsemi ráðherr-
ans jafnt sennilegum sem ósenni-
legum,“ skrifar hann meðal annars.
Sigurður segir að innan
Sjálfstæðisflokksins megi finna
„ofsatrúarhópa“ þar sem „vald-
boðið eitt er haft að leiðarljósi …“.
Hann bætir við: „Ég hélt reyndar
að þessi ofstækisöfl hefðu ekki
náð til forystu flokksins í Valhöll
en hér hefur mér skjátlazt.“
- bs/ sjá síðu 16.
Sigurður Líndal átelur ráðherra:
Ofstækisöfl í
forystu flokksins
SIGURÐUR
LÍNDAL
35.695 ÍSLENDINGAR
FENGU VINNING Í FYRRA!
SÖLVÍNA KONRÁÐS
Viðbrögð Bjarkar
skiljanleg
Sökuð um að ráðast á ljósmyndara
FÓLK 30
LH HESTAR
Landsmót afkvæmahesta
Sérblað frá Landssambandi
hestamannafélaga
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
ÍÞRÓTT • MENNING • LÍFSSTÍLL
lh hestar
Óvenju margir stóðhestar standa nú vel hvað afkvæmi varðar.
Landsmótið 2008 verður mót af-kvæmahesta ef fram fer sem horfir. Að vísu er aðeins einn hestur sem þegar hefur áunnið sér rétt til heið-ursverðlauna fyrir afkvæmi, Kor-mákur frá Flugumýri, sem einnig átti þann rétt á LM2006 og er nú með 119 stig og 61 dæmt afkvæmi. En hvorki fleiri né færri en fimm hestar eiga möguleika á vori kom-anda, þar af eru fjórir synir Orra frá Þúfu.
Heitastur er Hróður frá Refs-stöðum, sem nú er með 125 stig í
kynbótamati og 46 dæmd afkvæmi; hann vantar aðeins fjögur og er hátt yfir mörkum. Roði frá Múla er rétt yfir lágmörkum með 119 stig en vantar ekki nema fimm af-kvæmi, á 45 dæmd. Sær frá Bakka-koti er með 129 stig og 36 afkvæmi og Markús frá Langholtsparti 127 stig og 37 afkvæmi. Sveinn-Herv-ar frá Þúfu á einnig möguleika, er með 119 stig og 36 dæmd afkvæmi.Þá má ekki gleyma Dyn frá Hvammi, með 118 stig og 46 dæmd afkvæmi, en hann hefur ekki verið sýndur til fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi og frekar er reiknað með að eigendur hestsins velji þáf
Sex stóðhestar hafa áunnið sér rétt til fyrstu verðlauna fyrir af-kvæmi eins og staðan er núna í kynbótamatinu.
Dynur hefur verið nefndur en síðan eru þeir Huginn frá Haga, 119 - 16, Víkingur frá Voðmúlastöðum, 118 - 36, Töfri frá Kjartansstöðum, 118 - 25, Smári frá Skagaströnd, 114 til 30, og Tývar frá Kjartansstöðum, 113 - 41. Þá eru nokkrir yngri stóð-hestar heitir í fyrstu verðlaunin. Aron frá Strandarhöfði er með 122 stig og 11 dæmd afkvæmi, vantar aðeins fjögur, Þyrnir frá Þórodds-stöðum 117 19 S
Landsmót afkvæmahesta
Glúmur frá Stóra-Ási, sonur Hróðurs frá Refsstöðum. Hróður hefur sannað sig sem afburða kynbótahestur. MYND/JENS EINARSSON
Ný stjórn var kjörin á framhalds-aðalfundi Hrossaræktarsamtaka Austurlands á dögunum. Nýja stjórn skipa þeir Jósef Valgarð Þorvaldsson formaður, Gunnar Jónsson varaformaður, Jónas Hallgrímsson gjaldkeri, Ragnar Magnússon ritari og Sigurhans Jónsson meðstjórnandi. Jósef Val-garð, eða Valli á Víðivöllum eins og hann er kallaður, var lengst af formaður HrAust en formanna-skipti urðu í hittifyrra þegar Guð-röður Ágústsson á Hryggstekk bauð sig fram gegn honum. Á síð-asta aðalfundi hafði Jósef Valgarð betur með einu atkvæði.
Jósef Valgarð
formaður á ný
Magnús Kjartansson hefur tekið að sér að stjórna Brokkkórnum næsta eina og hálfa árið í fjarveru Gróu Hreinsdóttur sem stjórnað hefur kórnum um árabil. Fyrsta æfing með Magga er annað kvöld kl 20.00 í Fáksheimilinu. Mikil og stór verkefni eru fram undan hjá kórnum og má þar nefna söng á Landsmóti hestamanna næsta sumar. Í Brokkkórnum er hresst fólk af báðum kynjum og á öllum aldri, en ennþá er pláss fyrir góðar raddir. Sjá www.123.is/brokk
Maggi Kjart-ans stjórnar Brokkkórnum
„Ég hefði sett Þórarin Eymunds-son í topp tíu ef ég hefði tekið þátt í valinu,“ segir Samúel Örn Er-lingsson, íþróttafréttamaður með meiru.“ Margir hestamenn voru ósáttir við val á íþróttamanni árs-ins og þeim finnst hestaíþrótt-irnar fá litla athygli. Samúel Örn bendir á að flest íþróttafólk ulifi þ ð
Hefði sett Þór-arin í topp tíu
Íslandsmót í hestaíþróttum verð-ur haldið í tvennu lagi á þessu ári eins og undanfarin ár. Hesta-mannafélagið Fákur tók að sér að halda bæði mótin og fyrsta áætlun var sú að halda þau á sömu helgi, en á hvort á sínum velli. Stjórn LH sendi fyrirspurn til Fáks og bað um rökstuðning fyrir breyttu fyrirkomulagi. Eftir að hafa farið yfir málið aftur var tekin sú ákvörðun að halda mótið í tvennu lagi. Íslandsmót fullorðinna verð-ur því haldið 24. til 27. júlí, eins og til stóð, en Íslandsmót barna 14. til 17. ágúst. Stjórn LH hefur stað-fest beiðni frá Fáki um nýja dag-setningu.
Íslandsmótið í tvennu lagi
ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008
SjónvarpskonanBrynja Þorgeirssér um Meistaradeild VÍSBLS. 6
Samúel Örn Erlingsson.
MYND/JENS EINARSSON
Sonurinn heitir Illugi
Gunnarsson
Sonur Katrínar Jak-
obs dóttur og Gunn-
ars Sigvaldasonar er
alnafni þingmanns-
ins Illuga Gunnars-
sonar.
FÓLK 30
FÓLK Kvikmyndatökumaðurinn og
leikstjórinn Egill Örn Egilsson
hefur verið tilnefndur til æðstu
verðlauna kvikmyndatökumanna
í Bandaríkjunum. Egill Örn er
kvikmyndatökumaður í sjón-
varpsþáttunum CSI:Miami, sem
notið hafa mikill vinsælda vestan
hafs sem og hér á landi.
Þetta er annað árið í röð sem
Egill hlýtur þessa tilnefningu og
hann var að vonum glaður þegar
Fréttablaðið náði tali af honum.
„Í huga kvikmyndatökumanna
eru þetta stærri og virtari
verðlaun en Óskarinn sjálfur eða
Emmy.“ Egill er líkt og aðrir í
sjónvarpsiðnaðinum í verkfalls-
fríi en verkfall handritshöfunda
hefur sett alla framleiðslu úr
skorðum í Bandaríkjunum.
- fgg/sjá síðu 30
Íslendingurinn í CSI:Miami:
Meðal bestu í
Hollywood
Hver er stefnan?
Sigmar B. Hauksson er ekki
bjartsýnn á framtíð Framsóknar-
flokksins ef Guðni Ágústsson er
sammála Bjarna Harðarsyni.
UMRÆÐAN 16
SNJÓKOMA EÐA ÉL Í dag verða
norðaustan 10-15 m/s á Vestfjörð-
um, annars hægari vindur. Snjó-
koma eða él víða um land. Hiti við
frostmark með ströndum sunnan
og vestan til, annars frost 1-8 stig,
kaldast til landsins.
VEÐUR 4
HUGVIT Efnablanda unnin úr þorsk-
innyflum drepur fuglaflensuveiru
af H5N1-stofni. Ensímblanda sem
íslenska fyrirtækið Ensímtækni
ehf. þróaði var notuð við tilraun
hjá veirurannsóknastofu í Lond-
on, sem bar þennan athyglisverða
árangur. Kom í ljós að efnabland-
an drap fuglaflensuveiruna í 99
prósent tilvika án þess að skaða
heilbrigðar frumur.
Jón Bragi Bjarnason, prófessor
við Háskóla Íslands og forstjóri
Ensímtækni, segir hafa komið í
ljós að ensímið dræpi fugla-
flensuveiruna á innan við fimm
mínútum. „Það sem er síðan
mikil vægt er að blandan drepur
ekki frumur manna eins og
margt af því sem er notað til að
drepa veirur, og efnið er það
skilvirkt að það telst sótthreins-
andi. Það eru meiri kröfur en
gerðar eru til lyfja í þessu sam-
hengi.“
Jón Bragi segir að komið hafi í
ljós að ensímblandan dræpi
einnig inflúensuveirur. „Þetta
gæti því verið gagnlegt í vopna-
búrinu til að berjast gegn þeim,
sérstaklega þeim nýju sem litlar
varnir hafa verið þróaðar gegn.“
- shá
Íslensk ensímblanda drepur fuglaflensuveiruna í 99 prósentum tilvika:
Þorskensím drepur fuglaflensu
ALÞINGI Frumvarp til laga um varn-
armál hefur verið samþykkt af rík-
isstjórn og þingflokkum Samfylk-
ingarinnar og Sjálfstæðis flokks.
Markmið þeirra eru öðru fremur að
afmarka valdheimildir stjórnvalda
sem varða varnarmál, greina á milli
varnartengdra og borgaralegra
verkefna sem við koma öryggis-
gæslu og innra öryggi ríkisins og
auðvelda lýðræðislegt eftirlit með
varnartengdri starfsemi.
Mælt verður fyrir frumvarpinu á
fimmtudaginn að sögn Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráð-
herra. Hún segir fulla sátt innan
ríkisstjórnarinnar um lögin. Heildar-
kostnaður vegna Varnarmálastofn-
unar, sem verður með höfuðstöðvar
á öryggissvæðinu á Keflavíkur-
flugvelli, er áætlaður um 1,3 millj-
arðar á ári.
Samkvæmt efnisatriðum frum-
varpsins mun íslenska ríkið starf-
rækja Varnarmálastofnun, undir
yfirstjórn utanríkisráðherra, sem
sér meðal annars um rekstur
íslenska loftvarnakerfisins, það er
fjarskiptastöðva og ratsjárstöðva
Atlantshafsbandalagsins, hérlendis.
„Haldið verður utan um allt sem
tengist veru okkar í NATO með sér-
tækum hætti í Varnarmálastofn-
unni, þannig að hún tengist ekki
almannavörnum eða löggæslu með
neinum hætti. Ég hef þá sýn að
ráðuneyti eigi að vera stefnumark-
andi og þess vegna tel ég verkefn-
unum er tengjast her æfingum og
varnarmálum almennt betur fyrir
komið hjá Varnarmálastofnun,“
segir Ingibjörg Sólrún.
Jón Gunnarsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, segist ekki að
öllu leyti sammála efnisatriðum
frumvarpsins en á því sé þó hægt
að byggja. „Ég hef haft efasemdir
um rekstur ratsjáreftirlitsins og
einnig umsjón með heræfingunum
nokkrum sinnum ári. Þetta tel ég
tiltölulega tilgangslaust innan sér-
stakrar stofnunar. En það á eftir að
koma reynsla á þessi mál og ef það
kemur í ljós að skynsamlegra sé að
haga málum með öðrum hætti
verður hægt að gera breytingar á
lögunum.“ - mh
Stjórnarflokkarnir
ná saman um varnir
Ríkisstjórnarflokkarnir hafa náð saman um frumvarp til laga um varnarmál.
Verkefni tengd NATO og ratsjáreftirliti heyra undir Varnarmálastofnun.
Strákarnir á réttri leið
Íslenska hand-
boltalandsliðið vann
góðan fimm
marka sigur á
Tékkum í loka-
leiknum fyrir EM
í Noregi.
ÍÞRÓTTIR 26
VEL GERT PABBI Strákarnir okkar fara með sigurbros á vör til Noregs í dag eftir frækilegan sigur á Tékkum í gær. En þó þetta séu
strákarnir okkar eiga systurnar Helga Soffía og Stefanía Þóra meira í þeim en flestir aðrir. Helga Soffía hælir hér Ólafi Stefánssyni
föður sínum fyrir vasklega framgöngu meðan lítill stúfur leggur Sigfúsi Sigurðssyni línurnar fyrir næsta leik. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI