Fréttablaðið - 16.01.2008, Blaðsíða 4
MARKAÐURINN 16. JANÚAR 2008 MIÐVIKUDAGUR4
F R É T T I R
Frekar ólíklegt er að vefsamfélagið Fac-
ebook verði skráð á hlutabréfamarkað
á þessu ári, að sögn Marks Zucker-
berg, sem hefur setið í forstjórastóli
fyrirtækisins frá því hann stofnaði
Facebook-vefinn fyrir tæpum fjórum
árum.
Zuckerberg sagði í bandaríska frétta-
skýringaþættinum „60 mínútur“ á dög-
unum að svo gæti farið að fyrirtækið
íhugaði skráningu á næsta eða þarnæsta
ári. Hann útilokaði þó ekki að það
yrði dregið fram til 2011.
Fjármálasérfræðingar tóku
undir með forstjóranum á
mánudag og segja einkar
slæmar aðstæður til að setja
fyrirtæki í upplýsingatækni á markað um
þessar mundir.
Orðrómur um skráningu Facebook
hefur lengi legið í loftinu og fékk byr
undir báða vængi síðasta haust þegar
hugbúnaðarrisinn Microsoft keypti 1,6
prósenta hlut í fyrirtækinu fyrir 240 millj-
ónir dala, 15,3 milljarða íslenskra króna að
núvirði.
Sé miðað við kaupverðið þá er markaðs-
verðmæti Facebook litlir 959 milljarðar ís-
lenskra króna. - jab
Facebook ekki á markað í ár
STOFNANDINN Mark Zuckerberg, stofn-
andi og forstjóri Facebook, var tvítugur
þegar hann stofnaði fyrirtækið. Það er
núna næstum þúsund milljarða króna
virði og stofnandinn að verða 24 ára.
MARKAÐURINN/AFP
Tekjur bandarísku munaðarvöru-
verslunarinnar Saks, sem Baugur
á 8,5 prósenta hlut í, námu tæpum
3,1 milljarði dala, jafnvirði 193
milljörðum íslenskra króna, í
fyrra og jukust um 13,9 prósent
á milli ára.
Þar af jókst veltan um 0,8 pró-
sent í jólamánuðinum einum
saman. Þetta er talsvert yfir spám
markaðsaðila sem höfðu reikn-
að með samdrætti upp á 2,5 pró-
sent í skugga minni einkaneyslu
um jólin. Afkoman er sömuleiðis
umfram almenna þróun í banda-
rískri smásölu í fyrra.
Sterkur orðrómur fór á kreik
seint á síðasta ári að Baugur
myndi leggja fram yfirtökutilboð
í Saks upp á 180 milljarða króna
ýmist á milli jóla og nýárs eða í
byrjun þessa árs enda verðmiði
félagsins afar hagstæður.
Gengi bréfa í versluninni hefur
sveiflast talsvert síðan síðasta
sumar. Það féll svo á mánudag og
fór nálægt sínu lægsta gildi síð-
astliðna tólf mánuði eftir að for-
vígismenn í bandarískri smásölu
sögðu útlit fyrir að bandarísk-
ir neytendur muni halda að sér
höndum á árinu samfara erfiðara
aðgengi að lánsfé og háum vöxt-
um. - jab
Saks siglir fram úr spám
FLAGGSKIP SAKS Á 5. BREIÐGÖTU Veltan
hjá munaðarvöruversluninni Saks, þar
með talin jólasalan, var talsvert yfir
væntingum markaðsaðila í fyrra.
MARKAÐURINN/AFP
Jón Skaftason og Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skifa
Eign Existu í breska sportvöruframleiðand-
anum JJB Sports hefur rýrnað um sextíu og
fimm prósent á rétt rúmlega hálfu ári. Exista
keypti í júní á síðasta ári 14,5 prósenta hlut í
JJB fyrir tólf milljarða króna. Sá hlutur er nú
4,2 milljarða virði.
Gengi bréfa í JJB féll um rúm sex prósent
í byrjun vikunnar og hefur ekki verið lægra
í rúman áratug. JJB stóð í 96 pensum á hlut í
Kauphöllinni í Lundúnum í gær. Exista keypti
sín bréf á genginu 275.
Chris Ronnie, sem er nýtekinn við for-
stjórataumunum hjá JJB Sports, tilkynnti á
dögunum að til stæði að lækka verð verulega
í versluninni til að hreinsa til á lager fyrir-
tækisins. Ronnie þessi á 14,5 prósent í félag-
inu og keypti sinn hlut á sama tíma og Ex-
ista.
JJB varð fyrir miklu áfalli þegar ljóst
varð að enska knattspyrnulandsliðið kæmist
ekki í Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu
næsta sumar, en treyjur enska landsliðsins
hafa vanalega rokið út kringum stórkeppn-
ir af því tagi. Ronnie hefur látið hafa eftir
sér í fjölmiðlum að aldrei hafi verið pantaðar
færri enskar landsliðstreyjur til sölu í versl-
unum JJB, og notaði tækifærið til að gagn-
rýna „máttlitla“ hönnun á nýjum varabún-
ingi enska liðsins. Reiknað er með að afkoma
JJB á síðari helmingi breska fjárhagsársins
versni nokkuð frá því á sama tímabili í fyrra
þegar hagnaður nam 3,4 milljörðum króna.
Exista og Ronnie stóðu saman að kaupum á
29 prósenta hlut Dave Whelan, sem á sínum
tíma setti JJB Sports á laggirnar. Whelan
þessi er stjórnarformaður og sér um dag-
legan rekstur hjá enska úrvalsdeildarliðinu
Wigan Athletic.
Hlutur Existu rýrnað
um átta milljarða
Eftir stendur rúmur þriðjungur fjárfestingar Existu í JJB
Sports. Búist er við að hagnaður dragist saman á árinu.
Stjórnvöld á Fiji-eyjum eru sökuð
um að beita tollyfirvöldum til
að stöðva útflutning á átöppuðu
drykkjarvatni á flöskum undir
merkjum Fiji Water. Vatnið frá
Fiji er umsvifamikið á bandarísk-
um vatnsmarkaði í Bandaríkjun-
um og einn af helstu samkeppnis-
aðilum Icelandic Glacial, vatns
frá fyrirtæki feðganna Kristj-
áns og Jóns Ólafssonar og banda-
ríska drykkjarvöruframleið-
andans Anheuser Busch
þar í landi.
Fjölmiðlar á eyjunum
segja að ríkisstjórn Fiji-
eyja sjái ofsjónum yfir
hagnaðinum sem vatns salan
skili til bandarísks móður-
félags Fiji Water í Banda-
ríkjunum. Það skili sér ekki
til eyjanna nema að örlitlu leyti.
Jitoko Tikolevu, yfir maður tolla-
mála á Fiji-eyjum, segir í samtali
við fréttaveituna Pacnews, tals-
verðu muna. Móður félagið greiði
fyrirtækinu á Fiji-eyjum fjóra
dali, 257 íslenskar krón-
ur, fyrir kassa af vatni
sem kosti 50 dali út úr
búð í Bandaríkjunum.
Bandarísk stjórn-
völd hafa þegar
sent stjórnvöld-
um á Fiji-eyjum skila-
boð þar sem gjörn-
ingurinn geti stefnt
fjárfestingum banda-
rískra fyrirtækja á
eyjunum í voða. - jab
Vatnsrisa kippt út af
markaðinum
Stjórnendur bandarísku risaversl-
anakeðjunnar Wal-Mart tilkynntu
í byrjun vikunnar að þeir ætluðu
að opna fjórar meðalstórar versl-
anir í Phoenix á næstunni. Versl-
anirnar verða helmingi minni en
risabúðir Wal-Mart sem finna
má víða í Bandaríkjunum. Nýju
verslanirnar verða reknar undir
merkjum Marketside.
Viðbrögð Wal-Mart eru gagn-
ger viðbrögð við samkeppni frá
breska stórmarkaðnum Tesco,
sem nam land í vesturheimi seint
á síðasta ári. Verslanir Wal-Mart
eru yfirleitt geysistórar en Tesco
minni, sem væntingar eru um að
höfði betur til þeirra bandarísku
neytenda sem kjósa fremur að
kaupa í matinn í minni verslunum
en þeim risastóru.
Talsmaður Wal-Mart sagði
stjórnendur keðjunnar ávallt
opna fyrir nýjungum. Hann neit-
aði hins vegar að tjá sig um frétt-
ir þess efnis að þessar minni út-
gáfur af versluninni muni verða
opnaðar víðar um land, að sögn
Associated Press-fréttaveitunnar.
- jab
Wal-Mart bregst við
bresku innrásinni
JÓN ÓLAFSSON
HESKEY MEÐ JJB Á MAGANUM Enska úrvalsdeildarliðið Wigan leikur
með auglýsingu frá JJB á búningum sínum. Fjárfesting Exista í JJB hefur
rýrnað um sextíu og fimm prósent. FRÉTTABLAÐIÐ/NORDIC PARTNERS
Nýjar höfuðstöðvar
TM Software
Erum flutt í Urðarhvarf 6
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 7
2
2
5
7
Urðarhvarf 6 | 203 Kópavogur | Sími 545 3000 | Fax 545 3001 | info@tm-software.comwww.tm-software.com