Fréttablaðið - 17.01.2008, Blaðsíða 53
FIMMTUDAGUR 17. janúar 2008 35
Ekki eru þær margar sem bera kvenmannsnafn-
ið Ilmur á Íslandi, eða sautján talsins samkvæmt
upplýsingum frá Þjóðskrá. Listamaðurinn Ilmur
Stefánsdóttir er ein þeirra, en hún segist hafa verið
með þeim fyrstu sem hlutu það nafn hérlendis og
það hafi bæði vakið athygli og verið aðhlátursefni.
„Ég held að ég hafi verið önnur í röðinni af
þeim sem voru skírðar Ilmur. Fyrir var Ilmur dótt-
ir Árna Björnssonar þjóðháttafræðings, en þaðan
fengu foreldrar mínir hugmyndina,“ útskýrir Ilmur
og segist einnig vita til þess að vættur í gamalli ís-
lenskri sögu heiti þessu nafni, sem þýði hreinlega
góð lykt.
Ilmur segir að nafnið hafi í gegnum tíðina oft
orðið tilefni til ýmissa brandara á hennar kostn-
að. Til dæmis hafi vinum hennar þótt einstaklega
gaman að því að reyna að reyta hana til reiði með
því að snúa út úr merkingu þess. „Ég var til dæmis
margsinnis kölluð Fýla,“ rifjar hún upp hlæjandi en
þvertekur þó fyrir að það hafi átt við nein rök að
styðjast. „Svo var ég bara svo ánægð með nafnið
mitt að þetta sló mig nú sjaldnast út af laginu.“
Annars segist Ilmur almennt ekki vera móttæki-
leg fyrir bröndurum af þessu tagi, nema í þeim til-
vikum þegar þeir hitti sérstaklega vel í mark. „Eins
og þegar við maðurinn minn fórum í brúðkaup
eins vinar okkar,“ segir hún. „Þar heilsaði gamall
vinur mannsins míns upp á okkur og spurði hvort
ég væri konan hans Vals. Því næst las hann af
nafnspjaldinu mínu og þóttist ruglast svo útkoman
varð Limur í stað Ilmur. Þá hló ég og hristist eins
og tittlingur.“ - rve
NAFNIÐ MITT: ILMUR STEFÁNSDÓTTIR
Tilefni ýmissa brandara
Ilmur segir að Olga Guðrún hafi nefnt söguhetju
bókarinnar Búrið eftir sér þótt þær hafi aldrei þekkst
persónulega.
FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL BERGMANN
MERKISATBURÐIR
1850 Skólasveinar Lærða skólans gera
hróp að rektor skólans, Svein-
birni Egilssyni.
1912 Robert Falcon Scott kemst á
Suðurpólinn, mánuði á eftir
keppinauti sínum, Roald
Amundsen.
1914 Eimskipafélag Íslands er stofnað
í Reykjavík.
1929 Teiknimyndasjóarinn Stjáni blái
eftir Elzie Crisler Segar sést í dag-
blaði í fyrsta sinn.
1975 Sjö manns farast er þyrla hrapar
á Kjalarnesi.
1991 Ólafur V Noregskonungur and-
ast, áttatíu og átta ára að aldri,
og sonur hans Haraldur V tekur
við krúnunni.
1995 Yfir sex þúsund manns látast
þegar jarðskjálfti af stærðar gráð-
unni 7,2 á Richter skekur Kobe í
Japan.
ÖRUGG FJÁRFESTING — TRYGGÐUR HÖFUÐSTÓLL
Sölutímab
il
17. -24. ja
n.
Kynntu þér málið á kaupþing.is, í síma 444 7000,
eða komdu við í næsta útibúi.
ICEin 0708
sex mánuði
11% á tímabilinu
sem jafngildir 23% á ársgrundvelli
OMXI15
17. - 24. janúar
EURin 0708
sex mánuði
15% á tímabilinu
sem jafngildir 32% á ársgrundvelli
gengi evrunnar
17. - 24. janúar
Nú getur þú tekið þátt í að fjárfesta á hlutabréfamarkaðnum eða í gengi mynta án þess
að eiga á hættu að tapa höfuðstól og átt möguleika á góðri ávöxtun.
tveimur nýjum reikningum, ICEin 0708 og EURin 0708,
Nýjung
Bundið í
6 mánuð
i
FAGNAR SEXTUGSAMÆLI
í bernsku
í lítilli íbúð á Lynghaganum svo ég
hef víða verið. Það er svona þegar
fólk er í leiguhúsnæði, þá er ekki
eins mikil festa og annars. En þetta
voru allt ágætir staðir og ég á bara
góðar minningar frá þeim,“ segir
hann. „Til dæmis held ég ágætu
sambandi enn við vini sem ég eign-
aðist á Selfossi.“
Talið berst að sjónvarpsleik-
ritinu Allt gott, sem er unnið upp
úr smásögu eftir Davíð og fjallar
um barnaafmæli á Selfossi. Skyldi
hann vera að skrifa eitthvað spenn-
andi núna? „Ég er alltaf að skrifa
en ekki í neinum loftköstum. Bara
fyrir mig og skúffuna. Hvað maður
dregur upp úr henni síðar verður
bara tíminn að sýna,“ svarar hann
og segir enga útgáfu fyrirhugaða í
tilefni sextugsafmælisins. „Ég hef
aldrei gefið neitt út í tilefni tíma-
móta en ég gaf út fyrra smásagna-
safnið mitt þegar þakið fór að leka
heima. Það voru svo sem ákveðin
tímamót!“
Eins og þjóðin eflaust man
veiktist Davíð af tvenns konar
krabbameini fyrir fáum árum.
Því er hann spurður um heilsufar-
ið. „Heilsan er ágæt. Læknarnir
fylgjast vel með mér og reglu-
bundið. Það voru fjarlægðir alls
konar hlutir úr skrokknum á mér
og ég er með miklu færri líffæri
en ég var með þegar ég hélt upp á
fimmtugsafmælið. Það er eins og
gengur.“
Að lokum. Vonast hann eftir ein-
hverju sérstöku í afmælisgjöf?
„Ég verð bara að viðurkenna að
ég er ekkert farinn að hugleiða
það og þarf ekki á neinu sérstöku
að halda. Vona að það verði ekk-
ert stórvægilegt. Ég hlakka bara
til að hitta gamla samferðamenn í
gegnum lífið. Ég hef víða verið og
víða komið við þannig að ég þekki
marga og langflesta að góðu einu.“
gun@frettabladid.is
DAVÍÐ SEXTUGUR Davíð fékk leyfi
borgaryfirvalda til að halda upp á
afmælið í Ráðhúsinu og er þakklátur
fyrir það.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N