Fréttablaðið - 17.01.2008, Blaðsíða 63
46 17. janúar 2008 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
„Bernal lenti í síðustu viku og verður
fram til 8. apríl en þá förum við til
Mexíkó með sýninguna,“ segir leik-
stjórinn og leikarinn Gísli Örn
Garðarsson. Eins og Fréttablaðið
hefur greint frá mun mexíkóska
stórstirnið Gael Garcia Bernal leika í
uppfærslu Vesturports á Tillsammans og
eru æfingar nýhafnar. Leikarinn mun því
væntanlega verja páskunum hér á landi
og njóta næturlífsins, sem er jafnan upp
á sitt besta á þeim tíma.
Gísli hafði sjálfur ekki rekist á félaga
sinn enda nýkominn heim frá London þar
sem Hamskiptin voru frumsýnd á mánu-
dagskvöldið. Gísli var ákaflega sáttur við
frammistöðu hópsins, sagði hann hafa
staðið sig ákaflega vel og að þegar hefði
birst jákvæður dómur í breska blaðinu
Evening Standard. Eftir nokkrar sýning-
ar mun leikverkið síðan fara í mikið
ferðalag um England og verður meðal
annars sett upp í Bítlaborginni Liver-
pool og Manchester.
En það er meira á dagskránni hjá
Vesturporti því á meðan á dvöl
Gísla Arnar stóð í London samdi
hann við Lyric Hammersmith-leik-
húsið um að setja upp söngleikinn
Ást í sumar. Gísli sagði allt verða
staðfært og meðal annars notuð lög frá
þekktum breskum tónlistarmönn-
um, þeirra á meðal Amy Wine-
house. Og hann reiknaði
fastlega með því að rykið
yrði dustað af löngu
gleymdum hetjum úr
bresku þjóðlífi. Suður-
kóreska útgáfan af Ást
verður frumsýnd 1.
febrúar næstkomandi og þótt Gísli
hafi haft litlar fregnir af gangi
mála þar skildist honum að
þegar hefði ein leikkonan verið
rekin. Og sá brottrekstur hefði
vakið mikla athygli í suður-
kóreskum fjölmiðlum. „Ætli
ég reyni ekki að drífa mig út
þegar aðeins hægist um hjá
mér hérna heima,“ segir Gísli.
Gísli dustar rykið af gömlum hetjum
ÖNNUM KAFINN Árið
2008 virðist ætla að
verða annasamt
hjá Gísla Erni
en hann ætlar
að setja upp
söngleikinn Ást í
sumar í London.
Bandaríski leikarinn
Brad Renfro, sem sló í
gegn ungur að aldri í
myndunum The Client og
Sleepers, fannst látinn á
heimili sínu, 25 ára. Ekki
er vitað hvernig Renfro
dó en hann hafði lengi
glímt við áfengis- og
eiturlyfjafíkn. Hafði hann
verið úti á lífinu með
vinum sínum kvöldið sem
hann lést.
Renfro hóf kvikmynda-
feril sinn tólf ára þegar
hann lék í myndinni The
Client á móti Susan Sarandon og
Tommy Lee Jones. Næstu mynd-
ir hans voru The Cure og Tom
and Huck, sem fjallaði um Stik-
ilsberja-Finn. Í Sleepers lék hann
síðan persónu Brad Pitt unga að
árum. Ferill Renfro dal-
aði smám saman en áður
en hann lést hafði hann
þó nýlokið við að leika í
The Informers á móti
Winonu Ryder og Billy
Bob Thornton.
Renfro lenti margoft
upp á kant við lögin og
þurfti að dúsa í fangelsi
fyrir eiturlyfjavörslu,
þjófnað, ölvunarakstur
og skilorðsbrot. Hann fór
í meðferð árið 2005 eftir
að hafa verið ákærður
fyrir að reyna að verða
sér úti um heróín. „Hann lagði
hart að sér við að hætta vímu-
efnanotkun. Honum gekk vel.
Hann var góð manneskja,“ sagði
Richard Kaplan, lögfræðingur
hans.
Brad Renfro látinn
BRAD RENFRO
Renfro sló í gegn
ungur að árum
í myndunum
The Client og
Sleepers.
Sjónvarpsmennirnir Auð-
unn Blöndal og Adolf Ingi
Erlingsson sameinast á
nýjan leik á EM í handbolta
sem hefst í Noregi í dag.
Á HM í Þýskalandi í fyrra
grófu þeir stríðsöxina eftir
harðar deilur og á Auðunn
von á góðu samstarfi við
Adolf á mótinu.
„Hann tekur bara upp sitt efni og
við tökum upp okkar. HSÍ er búið
að redda okkur einhverjum sér-
stökum pössum þannig að við
erum gjaldgengir hvar sem er,“
segir Auðunn Blöndal sem enn og
aftur er kominn á fullt með
íslenska landsliðinu á stórmót.
Nú í Þrándheimi á EM sem hefst í
dag.
Eins og frægt varð skarst í
odda með þeim Huga Halldórs-
syni, Auðuni Blöndal og svo Adolf
Inga Erlingssyni, íþróttafrétta-
manninum knáa af RÚV, á HM í
Þýskalandi í fyrra þegar þeir
félagar sökuðu Adolf um að hafa
gengið erinda þýskra yfirvalda
og komið því til leiðar að þeim
var hent út úr íþróttahöll skömmu
eftir leik Íslands og Úkraínu.
Auðunn var reyndar ekki búinn
að hitta á Adolf Inga en sagði að
sverðin hefðu verið slíðruð í
Þýskalandi og hann ætti ekki von
á því að gripið yrði til þeirra á
ný.
Auðunn, sem er að fara í annað
sinn til Noregs, segist þó ekki vita
mikið um Þrándheim og einhver
hafi logið því að honum að þar sé
öllu lokað klukkan níu. Hann
setur það þó ekki fyrir sig enda
ætli hann fyrst og fremst að taka
púlsinn á íslenskum stuðnings-
mönnum landsliðsins. „Og ætli
við reynum ekki að bögga stuðn-
ingsmenn hinna liðanna,“ segir
Auðunn.
Fyrsti leikur Íslands á mótinu
verður gegn Svíum í kvöld og má
búast við æsispennandi viður-
eign. Svíar búsettir hér á landi
ætla að hittast í Norræna húsinu
og horfa á leikinn á breiðtjaldi. Á
síðasta ári hittust Svíar einnig á
sama stað til að fylgjast með
sínum mönnum taka á móti
Íslendingum í undankeppni EM í
fótbolta. Sá leikur endaði með
stórsigri Svía en vonandi verður
ekki það sama upp á teningnum í
kvöld. Partíið í Norræna húsinu
hefst klukkan 18.30 og byrjar
leikurinn 19.15. - fgg/fb
Sverðin slíðruð fyrir EM
SVERÐIN SLÍÐRUÐ Þrátt fyrir að slegist hafi í brýnu með þeim félögum Auðuni Blön-
dal, Huga Halldórssyni og Adolf Inga þá hafa sverðin verið slíðruð fyrir EM.
Drew Barrymore segist ekki skilja af hverju hún sé talin
í hópi fegurstu kvenna í Hollywood, þar sem hún hafi alla
tíð fengið mikið af bólum. „Eina fegrunarráðið mitt er
bólukrem, ég gæti ekki lifað án þess,“ segir leikkonan við
Entertainmentwise.
„Ég er stöðugt að fá bólur og það pirrar mig meira en
allt annað. Ég hef prófað hverja einustu andlitssápu, bólu-
krem, allt,“ segir Barrymore, sem kveðst ekki hafa mikið
sjálfsálit hvað varðar útlitið. „Nú þegar ég er farin að eldast fæ ég svo
fullt af hrukkum í stíl við bólurnar. Suma daga lít ég út eins og eitthvað
úr Night of the Living Dead,“ segir hún hlæjandi.
Drew berst við bólurnar
> MARC OG VICTORIA
Victoria Beckham hefur vakið töluverða athygli
í auglýsingum fyrir hönnuðinn Marc Jacobs á
síðustu dögum. Í auglýsingunum sést krydd-
pían brölta um í risastórum innkaupapoka með
nafni Jacobs á. Á sumum sést í höfuð hennar, á
öðrum bara í einn fótlegg. Er það mál manna
að Victoria hafi þar með sannað að hún hafi
að minnsta kosti einhvern húmor fyrir sjálfri
sér.
Á laugardaginn verður fyrsta 12-
laga undanúrslitakvöldið í Euro-
vision forvalinu. Athygli vekur að
lag Hafdísar Huldar, Núna veit ég,
verður að þessu sinni flutt af
Magna Ástgeirssyni einum, en var
seinast sungið af honum og Birg-
ittu Haukdal.
„Þegar maður
er með svona
stórstjörnur
er erfitt að
finna dag-
setningar
sem ganga
upp fyrir
alla,“ segir
Hafdís.
„Birgitta er í fríi á Ítalíu svo það
varð ofan á að strákurinn syngi
þetta bara einn. Ég hef engar
áhyggjur af þessu. Lagið verður í
breyttri útgáfu, það er búið að
endurgera það svo það henti betur
Magna einum.“
Lögin sem Hafdís þarf að etja
kappi við á laugardaginn eru Gef
mér von eftir Gumma í Sálinni,
sem Páll Rósinkrans syngur og
friðarlagið hans Magnúsar Þórs
Sigmundssonar, Lullaby to
Peace, sem Ína Valgerður Pét-
ursdóttir, Seth Sharp og Berg-
lind Ósk Guðgeirsdóttir syngja.
Strax á sunnudaginn er Hafdís
Huld svo flogin til Englands.
„Ég hef búið undanfarið í
Kings Cliffe í mið-
Englandi og hlakka
mikið til að komast
þangað í sveita-
kyrrðina aftur.
Ég er með heima-
stúdíó sem ég er
spennt að kom-
ast í til að byrja
að vinna í
næstu plötu.“
Birgittulaus Magni
TREYSTIR
MAGNA FYRIR
DJOBBINU
Hafdís Huld
hefur engar
áhyggjur.