Fréttablaðið - 18.01.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
FÖSTUDAGUR
18. janúar 2008 — 17. tölublað — 8. árgangur
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Hreyfing og hollt mataræði er Helenu Ólafsdótt-
ur ofarlega í huga.
Fótbolta- og einkaþjálfarinn Helena Ólafsdóttir, sem
þjálfar meistaraflokk kvenna hjá KR, hugsar vel um
mataræðið og þá sérstaklega nú í byrjun árs. „Nú er
allt að fara í gang,“ segir Helena. „Skólarnir og æfing-
arnar eru að byrja og einkaþjálfunin er komin á fullt
Nú er tíminn til að hefja nýtt lífHel
tíma en nafnið gefur til kynna að öllu með töldu,“
Helena byrjar á því að steikja kjúklinginn á wok-
pönnu og sker svo niður það grænmeti sem er til í
ísskápnum. „Ég nota til dæmis lauk, papriku, sveppi,
gulrætur, brokkolí og í raun hvaða grænmeti sem er
Síðan set ég red curry sósu frá Blu D
ásamt kókosmjólk
Hollt án nokkurra öfga
Helena leggur áherslu á hollt og fjöl-breytt mataræði en er þó ekki hrifin af öfgum af neinu tagi.FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Mensa veisluþjónusta á Baldursgötu býður nú upp á þann möguleika að taka ódýran, hollan og góðan heimilis-mat með heim á milli klukkan 17.00 og 19.00. Mat-seðillinn breytist í hverri viku en hann má sjá í glugganum og á heima-
síðunni,
www.mensa.is.
Hafragrautur er staðgóður og hollur morgunmatur og ekki verra að taka lýsi með honum. Enga stund tekur að sjóða hafragraut í potti og enn fljótlegra er að kaupa hann í pökkum sem tæmdir eru í skál með vatni sem hituð er í örbylgjuofni í tvær mínútur.
Gló er veitingastaður við Engjateig þar sem boðið er upp á fjölbreytt-an lífrænan matseðil. Auðvelt er að taka með sér heim alls konar rétti og súpur og þeir sem eru á hraðferð geta hringt á undan sér svo allt sé tilbúið. Matseðilinn má skoða á www.glo.is.
VEÐRIÐ Í DAG
HELENA ÓLAFSDÓTTIR
Hugsar sérstaklega um
mataræðið í byrjun árs
matur
Í MIÐJU BLAÐSINS
TÓMSTUNDIR OG NÁMSKEIÐ
Fjórtán ára
manga-teiknari
Sérblað um tómstundir og námskeið
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Láta allt flakka
Það er aldrei lognmolla í kringum
Siggu Lund, Svala
og Gassa á Zúúber
FM 957.
SIRKUS FYLGIR
FRÉTTABLAÐINU Í DAG
18. JANÚAR 2008 ■ Stefán Jónsson var í stjörnuleiklistarskóla ■ Svala Björgvins í Cover ■ Magnað Listaháskólagill ...
Láta allt flakka
SVALI, SIGGA OG GASSI Í ZÚÚBER
tómstundir & námskeið
FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2008
Fjarnám á vorönn 2008Skráning fer fram 11. - 20. janúar á heimasíðunni www.fa.is/fjarnam
DÓMSMÁL Hafin er vinna innan
dómsmálaráðuneytisins við að
kanna möguleika á því að senda
erlenda ríkisborgara, sem gerst
hafa brotlegir við lög hér á landi,
til afplánunar í heimalandi sínu.
Þetta staðfestir Björn Bjarnason,
dóms- og kirkjumálaráðherra, við
Fréttablaðið. Hann segir enn
fremur að kanna þurfi réttar-
heimildir og réttarstöðu. Þegar
niðurstaða liggi fyrir verði hún
kynnt.
Á nýliðnu ári luku afplánun eða
voru í afplánun í lok árs 35 erlend-
ir ríkisborgarar. Af þeim voru
tuttugu ekki búsettir hér á landi
og sátu þeir inni fyrir ofbeldis-
brot, kynferðisbrot, fíkniefnabrot
og auðgunarbrot.
Nú eru til rannsóknarmeðferð-
ar eða á ákærustigi mál allmargra
erlendra ríkisborgara, meðal ann-
ars vegna gruns um aðild þeirra
að nauðgunum, fíkniefnabrotum
eða líkamsárásum.
Hildur Dungal, forstjóri Útlend-
ingastofnunar, segir að lang-
flestum EES-borgurum sem hafi
fengið dóma hér til þessa hafi
verið vísað úr landi.
„Það gerist meðan á refsivist
stendur og þegar menn hafa
afplánað helming hennar,“ segir
Hildur. „Það fer fram með þeim
hætti að þegar komið er að helm-
ingi afplánunarinnar hefur Fang-
elsismálastofnun samband við
Útlendingastofnun og athugar
hvort vísa eigi viðkomandi úr
landi ef hann fer fram á reynslu-
lausn. Fari menn ekki fram á
reynslulausn þá hefst brottvísun-
arferli þegar líður að því að þeir
fara að losna úr fangelsi. Viðkom-
andi er þá fluttur úr landi nánast
beint úr afplánun.
Nú er verið að skoða þann mögu-
leika að færa þetta framar í ferlið
þannig að afplánun erlendra refsi-
fanga eigi sér stað í heimalandi.“
Hildur segir að það ferli sem
fer í gang þegar senda á refsi-
fanga til heimalands síns taki allt-
af einhvern tíma. Ekki sé hægt að
hefja það ferli fyrr en dómsniður-
staða liggi fyrir. Þá þurfi meðal
annars samþykki heimalandsins
þess efnis að það sé tilbúið til að
taka við viðkomandi.
„En nú er verið að finna farveg-
inn fyrir þetta,“ segir Hildur. „Það
á að láta reyna á það, sem er mjög
jákvætt.“ - jss
Vinna að því að senda erlenda
glæpamenn utan í afplánun
Dómsmálaráðuneytið kannar möguleika á því að erlendir ríkisborgarar verði sendir til heimalandsins til
að afplána refsidóma sem þeir hafa hlotið hér. Verið er að kanna réttarheimildir og réttarstöðu í málinu.
Dale Carnegie-samtökin
Anna Guðrún Steinsen var valin
þjálfari ársins í Mexíkó.
TÍMAMÓT 26
Konur í aðalhlutverkum
Kolfinna Baldvinsdóttir
og Ásdís Olsen stýra
nýjum þætti með
konum í öllum
aðalhlutverkum.
FÓLK 46
Hjólhýsa
sýning
Við frumsýnum 2008
árgerðina af stórglæsi-
legum Polar hjólhýsum
helgina 19.-20. janúar í
verslun okkar að Fosshálsi
5-7. Léttar veitingar í boði!
Lau kl. 10.00-17.00
Sun kl. 12.00-16.00
HEILL ÞÉR SEXTUGUM! Sirrý Sigfús spákona er ein þeirra fjölmörgu sem mættu í Ráðhúsið í gær til að fagna með afmælisbarni
dagsins – Davíð Oddssyni. Sirrý er einlægur aðdáandi Davíðs og færði honum kristalskúlu sína að gjöf en í henni hefur hún séð
fyrir fjölmörg óorðin atvik. Ára Davíðs er að sögn Sirrýjar kraftmikil, gul og falleg. sjá síðu 46
BAUGSMÁL Heimild Ríkislögreglustjóra til að
framkvæma húsleit hjá Skattrannsóknarstjóra er
einsdæmi hér á landi að mati lögspekinga. Héraðs-
dómur Reykjavíkur veitti Ríkislögreglustjóra
húsleitarheimild í síðustu viku, en úrskurðurinn
hefur verið kærður til Hæstaréttar.
Átök hafa staðið frá árinu 2006 um heimild
Ríkislögreglustjóra til að fá gögn hjá Skattrannsókn-
arstjóra. Gögnin sem um er deilt tengjast skattamál-
um Óskars Magnússonar, fyrrverandi stjórnarfor-
manns Baugs. Ríkislögreglustjóri mun halda að sér
höndum þar til úrskurður Hæstaréttar liggur fyrir.
Það er líka einsdæmi, yfirleitt er húsleit framkvæmd
um leið og heimild héraðsdóms liggur fyrir, segir
Eiríkur Tómasson, lagaprófessor við Háskóla
Íslands.
„Það er ekkert í lögunum sem bannar þetta, en ég
man ekki eftir öðru sambærilegu tilviki,“ segir
Eiríkur. „Mér finnst þetta mjög furðuleg staða sem
upp er komin.“ - bj / sjá síðu 6
Skattrannsóknarstjóri kærir húsleitarheimild til Hæstaréttar:
Húsleit hjá skattinum einsdæmi
STORMVIÐVÖRUN! Í kvöld
má búast við norðvestan stormi
á Norðausturlandi. Í dag verða
norðan 5-13 m/s en hvessir
NA-til í kvöld. Snjókoma eða él
nyrðra annars úrkomulítið og
bjart með köflum suðaustan til.
Frost 0-10 stig kaldast í kvöld.
VEÐUR 4
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
YÞ
Ó
R
Bjó til minningartreyju
Halldór í Henson gaf
eftirlifanda flugslyssins í
Munchen 1958 sérstaka
gjöf.
ÍÞRÓTTIR 40
HANDBOLTI Íslenska landsliðið í
handbolta steinlá með fimm
mörkum gegn Svíum í fyrsta leik
sínum á Evrópumótinu í hand-
bolta í Noregi í gær.
Ísland lenti mest tíu mörkum
undir þegar tíu mínútur voru
eftir en skoraði fimm af síðustu
sex mörkum leiksins og lagaði
stöðuna. Íslenska liðið skoraði
aðeins ellefu mörk fyrstu 44
mínúturnar í leiknum.
„Sóknarleikurinn var alveg
hræðilegur í þessum leik. Síðari
hálfleikur var skelfilegur þar
sem hvert klúðrið fylgdi á eftir
öðru. Þetta eru skelfileg von-
brigði. Nú verðum við að vinna
Slóvaka og takist það þá er
framundan algjör úrslitaleikur
gegn Frökkum, rétt eins og í
fyrra,“ sagði Alfreð Gíslason
landsliðsþjálfari, hundsvekktur
eftir leikinn í gær. - óój / hbg
sjá íþróttir síðu 42
EM í handbolta í gær:
Hræðilegur
sóknarleikur
felldi Íslendinga