Fréttablaðið - 21.01.2008, Blaðsíða 46
30 21. janúar 2008 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. fjötur 6. klafi 8. fugl 9. gums 11.
tveir eins 12. frumefni 14. mælieining
16. núna 17. frjó 18. umhyggja 20.
999 21. betl.
LÓÐRÉTT
1. íþrótt 3. bor 4. matari 5. saur 7.
hænsnfugl 10. blása 13. heyskapar-
amboð 15. losa 16. á nefi 19. átt.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. haft, 6. ok, 8. lóa, 9. lap,
11. ðð, 12. flúor, 14. karat, 16. nú, 17.
fræ, 18. önn, 20. im, 21. snap.
LÓÐRÉTT: 1. golf, 3. al, 4. fóðrari, 5.
tað, 7. kalkúnn, 10. púa, 13. orf, 15.
tæma, 16. nös, 19. na.
„Ég er rosaleg alæta á tónlist og
mér er strítt á því að ég sé með
hallærislegasta tónlistarsmekk
á landinu. Ég hlusta á Abba,
Bubba, Sigurð Flosa og ítalskar
aríur, allt í bland. Músíkin fer
eftir skapinu, en ég elska ítalsk-
ar aríur af því að ég tala ítölsku
og er nú svo mikil dramadrottn-
ing.“
Rut Káradóttir, innanhúsarkitekt.
Logi Bergmann upplýsti í þætti
sínum, Logi í beinni, í síðustu viku
að hann hygðist efna til óopinbers
Íslandsmóts í eftirhermum og eru
sigurlaunin ekki af verri endanum,
sérhannaður bikar. Að sögn sjón-
varpsmannsins er að koma smá
mynd á keppnina sem hefst strax
á föstudaginn í næstu viku.
„Formaður dómnefndar verður
að sjálfsögðu eini maðurinn sem
hefur verið í fullu starfi við að
herma eftir fólki, Jóhannes
Kristjánsson,“ segir Logi. Hann
sjálfur gerir lítið af því að herma
eftir þjóðþekktar persónur,
segist einu sinni á ári reyna við
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóra í
Kópavogi. „En það er nú tiltölulega
einfalt, maður lækkar bara röddina
niður úr öllu valdi og segir að það
sé gott að búa í Kópavogi.“
Logi hefur
þegar feng-
ið til liðs
við sig
nokkra þekkta einstaklinga sem
ætla að reyna að hirða fyrsta meist-
aratitilinn í þessari þjóðaríþrótt
íslenskra grínista. Meðal þeirra er
útvarpsmaðurinn Freyr Eyjólfsson
og Hjálmar Hjálmarsson,
löngu frægur fyrir Bubba-
grín sitt, en hann hyggst vafa-
lítið sanna fyrir fullt og allt að
hann sé besta Bubba-eftir-
herma landsins eftir að Jón
Gnarr gerði heiðarlega
tilraun til að stela þeirri
krúnu í Skaupinu. Einn-
ig hefur verið staðfest
að leikarinn Atli Rafn Sigurðarson
ætli að troða upp og reyna fyrir sér
á þessu sviði. Má gera ráð fyrir að
hann prófi jafnvel Halldór Laxness
enda vakti leikarinn nóbelskáldið
til lífsins í leikverkinu Halldór í
Hollywood.
Logi segir að áhorfendur
heima í stofu eigi líka að leggja
höfuðið í bleyti og endilega
senda honum póst á logii-
beinni@365.is ef þeir viti
um góða eftirhermu eða
séu jafnvel sjálfir snill-
ingar í þessu fagi. -fgg
Logi býður upp í eftirhermudans
BIKAR Í BOÐI Logi er þegar
búinn að láta hanna bikar
sem verður afhentur bestu
eftirhermu landsins.
Veggjakrot hefur aukist mikið,
bæði í Sambíóunum og í Smára-
bíói að undanförnu, auk þess sem
sæti eru ítrekað skorin í bíósölun-
um. „Þetta hefur aukist gríðar-
lega mikið á undanförnum mán-
uðum og það má segja að síðasta
ár hafi verið það alversta,“ segir
Jón Eiríkur Jóhannsson, rekstr-
arstjóri kvikmyndahúsa Senu, um
krotið.
Nýlega var krotað á viðarhurðir
í sal eitt í Smárabíói og nemur
tjónið þrjú til fjögur hundruð þús-
und krónum. „Það þarf að spón-
leggja þær upp á nýtt,“ segir Jón
Eiríkur. „Þessi slæma umgengni
er aðallega í Smárabíói þar sem
yngra fólk kemur. Þar er farið að
bera á minni virðingu fyrir
umhverfinu.“
Jón segir lítið hægt að gera við
þessari þróun nema laga sem
fyrst það sem skemmist. Einnig
hafa starfsmenn reynt að fylgjast
betur með gestunum, sérstaklega
þegar unglingamyndir eru sýnd-
ar. „Við hikum ekki við að setja
fólk inn í sali og jafnvel starfs-
fólk á frívöktum til að fylgjast
með þessu.“
Einar Þráinsson, rekstrarstjóri
kvikmyndahúsa hjá Sambíóunum,
segir að veggjakrot hafi einnig
aukist mikið í kvikmyndahúsum
þeirra. „Það er kostnaður að láta
þrífa þetta og mála. Menn hafa
líka verið að skera heilu seturnar
og rífa innan úr þeim en samt
hafa skemmdirnar á sætunum
ekki aukist hjá okkur.“ Einar
segir að myndavélakerfi sé í hús-
inu sem hafi borið góða raun en
vegna versnandi umgengni íhugi
hann að auka eftirlitið með ein-
hverjum hætti. - fb
Veggjakrot eykst í bíóhúsum
JÓN EIRÍKUR JÓHANNSSON Veggjakrot
hefur aukist gríðarlega í íslenskum
kvikmyndahúsum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Línur hjá kátum bókaútgefendum
eru að skýrast hvað varðar skila-
tölur en Fréttablaðið hefur sagt
frá því að síðasta vertíð
sló öll met í bóksölu.
Arnaldur Indriða-
son seldi langmest
og slagaði ein-
takafjöldi til
búða hátt
í 30 þús-
und.
Frá
For-
laginu berast þær fréttir að enn
sem komið er séu skil með allra
minnsta móti og útlit fyrir að
þjóðin hafi gert minna af því
en áður að skila jólagjöfunum.
Útgefendur segja að skil geti orðið
allt að 30 prósent seldra bóka en
nú stefnir í að hlutfallið nái ekki
20 prósentum.
Finnur Þór
Vilhjálmsson
lögmaðurinn
knái, fyrrum
sjónvarps- og
blaðamaður,
hefur lagt
inn réttindi
sín sem
héraðs-
dómslög-
maður. Það
kemur til af
góðu einu.
Finnur
hefur nefnilega
söðlað um og er nú genginn til
liðs við Tryggva Gunnarsson,
umboðsmann Alþingis, og hans
menn. Alsiða er að lögmenn sem
ekki eru praktíserandi leggi rétt-
indi sín inn um hríð. Þeir eiga þá
ekki yfir höfði sér að vera skipaðir
í að flytja mál eða borga félags-
gjöld – lögmenn þurfa
nefnilega að sinna
ýmsum skilyrðum
og samfélagslegum
skyldum hvað sem
öllum lögfræð-
ingabröndur-
um líður.
- jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
ÚTVARPSHERMIKRÁKAN
Freyr Eyjólfsson, útvarps-
maður á Rás 2, þykir lunkinn
eftirherma.
BUBBA-GRÍN Hjálmar Hjálmarsson
hyggst eflaust sanna fyrir þjóðinni að
hann sé besta Bubba-eftirherman.
ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is
12 - 24V “booster”
Frábært verð.
Start- og
hleðslutæki
Auglýsingasími
– Mest lesið
„Ég veit að hann á Barnum, sem
er líklega með einasta reykher-
bergi sem til er á krá, ætlar alla
leið með þetta mál og láta á reyna
fyrir dómstólum,“ segir Kormá-
kur Geirharðsson veitingamaður
og meðlimur í Félagi kráareig-
enda. Vaxandi óánægja er meðal
verta vegna tóbakslaganna svo-
kölluðu. Rekstur nokkurra kráa
rambar á barmi gjaldþrots og er
það einkum rakið til óbilgirni
hins opinbera. Kormákur er
ómyrkur í máli.
Rósa Magnúsdóttir, deildar-
stjóri hjá Umhverfissviði Reykja-
víkurborgar, átti fund með lög-
manni á fimmtudag þar sem farið
var yfir þetta tiltekna mál. Frétta-
blaðið hefur heimildir fyrir því
að þegar hafi verið ákveðið að
stefna Barnum við Laugaveg.
Ástæðan er sú að þar er reyk-
herbergi innandyra. Rósa segist
ekki getað tjáð sig þar um en
segir hins vegar:
„Þetta er klárlega brot á
tóbakslögum. Ekki má útbúa reyk-
herbergi. Það má reykja á úti-
svæðum. Við höfum skoðað þau
úrræði sem við höfum. Að kæra
og innsigla, en látið hefur verið á
það reyna að þeir færu eftir okkar
fyrirmælum,“ segir Rósa. Hún
bendir á, í tengslum við vaxandi
óánægju verta, að þeirra sé, auk
lögreglu og heilbrigðis- og vinnu-
eftirlits, að framfylgja lögum. Við
löggjafann sé að sakast séu menn
óánægðir. „Við erum bara að
vinna vinnuna okkar.“
Kormákur er einn helsti tals-
maður bareigenda og hann segir
þá binda við það vonir að menn í
nefndum finni boðlega leið því
ástandið sé með öllu óviðunandi.
Hann nefnir sem dæmi að ónefnd-
ur bar horfi fram á 40-60 pró-
senta minni innkomu eftir að hin
umdeildu tóbakslög tóku gildi.
„Það er meira en spurning um líf
og dauða. Það þýðir að menn eru
að borga með sér.“ Þolinmæðin
er við að bresta og þegar er farið
að bera á því að bareigendur sjái
í gegnum fingur sér við fólk
kveiki það sér í sígarettu innan
dyra ef gaddur og hríð er úti.
En Kormákur og félagar eru
ekki bjartsýnir á að löggjafinn sjái
ljósið. Þannig skrifaði Ásta R.
Jóhannesdóttir alþingismaður
grein í blaðið 24 stundir í vikunni
sem ekki er hægt að skilja öðru-
vísi en hótun: „Ég hvet veitinga-
menn til að vera löghlýðna ella
verða þar til bærir eftirlitsaðilar
að taka á málum. Lögbrot verða
ekki liðin,“ skrifar Ásta. Kor-
mákur segir ekki hægt að ræða
við fanatíkusa.
„Gerum Ástu að sendiherra í
Orkneyjum þaðan sem hún getur
vælt. Það þýðir ekki að hafa
fanatíkusa í ábyrgðarstöðum. Og
þetta máttu prenta. Það búa allir
í þessu landi. Af hverju er ekki
hægt að miða við sænsku lögin
þar sem má hafa reykrými að
uppfylltum tilteknum skilyrðum.
Síðan hvenær urðum við meiri
púrítanar en Svíar? Þar hlýtur að
vera einhver þröskuldur sem við
hoppum ekki yfir.“
jakob@frettabladid.is
KORMÁKUR GEIRHARÐSSON: VERTAR AÐ MISSA ÞOLINMÆÐINA
Borgin kærir bar vegna reykinga
,
KLÁRLEGA BROT Rósa Magnúsdóttir hjá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar segir að
reykherbergið sem útbúið hefur verið á Barnum sé klárlega brot á tóbakslögum.
BARINN Eigandi Barsins
ætlar að láta á málið reyna
fyrir dómstólum, að sögn
Kormáks.
ÓÁNÆGÐUR Kormákur Geirharðsson
þekkir dæmi þess að staðir horfi upp
á allt að 60 prósenta minni innkomu
eftir að tóbakslögin umdeildu tóku
gildi. Vaxandi óánægja er meðal verta
vegna tóbakslaganna.