Fréttablaðið - 27.01.2008, Blaðsíða 13
F A X A F E N 1 0
108 REYKJAVÍK
GLERÁRGATA 36
6 0 0 A K U R E Y R I
W W W . T S K . I S
SKOLI@TSK. IS
SÍMI: 544 2210
REYKJAVÍK & AKUREYRI
Computer and office courses
for beginners and advanced users
VAKTAVINNUFÓLK
Flest námskeið skólans geta hentað ykkur
sérstaklega vel þar sem möguleiki er að skipta
milli morgun- og kvöldtíma eftir vöktum
án þess að missa úr.
ALMENN TÖLVUNÁMSKEIÐ
Tölvunám byrjenda
Vinsælt námskeið ætlað fólki á öllum aldri sem hefur enga tölvukunnáttu. Á þessu
námskeiði er allt tekið fyrir sem byrjandinn þarf til að komast vel af stað í notkun
tölvu.
Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga og er hægt að velja um morgun- eða kvöld
námskeið. Hefst 31. janúar. Lengd 42 std. Verð kr. 32.900,-
ECDL tölvunám
Alþjóðlegt tölvunám hentar fólki á öllum aldri sem vill fá ítarlega þekkingu og þjálfun
í öllum helstu tölvugreinunum og alþjóðlega vottun því til staðfestingar.
Helstu kennslugreinar: Windows, Word, Excel, Internet, Outlook og PowerPoint.
Kennt er þrisvar í viku og er hægt að velja um morgun- eða kvöldnámskeið.
Hefst 7. febrúar. Lengd: 84 std. Verð kr. 65.000,- (Bækur og próf innifalin).
ÖNNUR NÁMSKEIÐ AÐ HEFJAST
Vefsíðugerð I
Vinsælt námskeið ætlað byrjendum í vefsíðugerð og þeim sem vilja koma sér upp
einfaldri og þægilegri heimasíðu. Sérstök áhersla er lögð á myndgerð og
myndnotkun á heimasíðunni. Kennt er á algengustu forritin sem notuð eru til
vefsmíða og myndvinnslu fyrir vefinn, Dreamweaver og Photoshop. Í lok námskeiðs
eiga þátttakendur að vera færir um að búa til frambærilega heimasíðu fyrir sjálfan sig
eða lítil fyrirtæki til kynningar á Netinu.
Hefst 30. jan. Sjá nánar á www.tsk.is. Lengd 47 std. Verð kr. 49.000,- Allar
kennslubækur innifaldar í verði.
Photoshop grunnur
Námskeið fyrir byrjendur í myndvinnslu í þessu frábæra forriti.
Hefst 30. jan. Sjá nánar á www.tsk.is. Lengd 21 std. Verð kr. 24.000,-
Stafrænar myndavélar
-og meðferð stafrænna mynda í heimilistölvunni. Stutt og hnitmiðað námskeið þar
sem farið er yfir helstu stillingar stafrænu myndavélanna, flytja myndir í tölvu og
skipuleggja myndasafnið. Einfaldar lagfæringar mynda (Picasa).
Heimaprentun/framköllun, myndir sendar í tölvupósti, brenndar á CD diska ofl.
Sjá nánar á www.tsk.is. Lengd 14 std. (þrjú kvöld) Verð kr. 15.000,-
TÖLVU- OG SKRIFSTOFUNÁM
Sérlega viðamikið og hagnýtt nám í takt við þarfir markaðarins, nám sem hentar fólki
á öllum aldri, hvort sem það er á leiðinni út á vinnumarkaðinn að nýju eða vill skapa
sér sterkari stöðu á vinnumarkaði með aukinni menntun. Hentar einnig vel sjálfstætt
starfandi atvinnurekendum sem vilja vera sem mest sjálfbjarga í allri tölvuvinnu og við
bókhaldið.
Hefst 28. janúar. Kennt er þrisvar í viku og er boðið upp á morgun og kvöldhópa. Sjá
stundaskrá á heimasíðu skólans.
Lengd: 260 std. - Námið er metið til eininga. Verð: 199.000,-
TÖLVU- OG BÓKHALDSNÁM
200 stundir. Verð kr. 153.000,- Morgun og kvöldnámskeið.
Hefst 28. janúar á Akureyri og 7. febrúar í Reykjavík.
Bókhald 1
Hagnýtt 100 std. Bókhaldsnámskeið fyrir byrjendur í bókhaldi. Verslunarreikningur,
VSK, bókhaldsgrunnur og tölvubókhald í Navision. Hefst 3. mars. Verð kr. 94.000,-
Morgun- og kvöldhópar.
Bókhald 2
32 std hagnýtt framhaldsnámskeið. Hentar þeim sem lokið hafa bókhaldsgrunni eða
hafa bókhaldsreynslu. Fjárhagsbókhald upprifjun og framhald, VSK uppgjör og
leiðréttingarskýrslur, launabókhald, launamiðar, launaframtal og skil til skatts.
Afstemmingar og skil á bókhaldi til endurskoðenda ásamt lestri ársreikninga.
Hefst 30. janúar. Lengd 32 std Verð kr. 36.000,-
Tollskýrslugerð
21 stund. Verð kr. 28.000,-
• MCSA
• MCP XP
• MCDST
• Windows 2003 Server
• Windows 2003 Network
Infrastructure
• MS Exchange Server
• Navision
• Grafísk hönnun
• Vefsíðugerð II
• Photoshop grunnur
• Photoshop ljósmyndun
• Myndbandavinnsla
• Excel grunnur og framhald
• Word grunnur og framhald
• Outlook
• Flash
• Office 2007 kynningar
Útskrift nemenda í Tölvu- og skrifstofunámi í janúar 2008
Útskrift nemenda í Tölvu og bókhaldi desember 2007