Fréttablaðið - 27.01.2008, Blaðsíða 18
18 27. janúar 2008 SUNNUDAGUR
Ráðin í pólitísku skjóli?
Umdeildar embættisveitingar hafa vakið upp töluverðar umræður að undanförnu um hvort pólitískar ráðningar séu á undan-
haldi eða ekki. Ráðherrar í ríkisstjórn Sjálfstæðiflokksins og Samfylkingarinnar hafa sætt gagnrýni ekki síður en ráðherrar í
ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Ráðherrar hafa verið sakaðir um að koma samflokksfólki sínu í pólitískt skjól.
Magnús Halldórsson fór yfir nokkur mál sem valdið hafa fjaðrafoki og illdeilum.
Jón Steinar var skipaður hæsta-
réttadómari af Geir H. Haarde,
settum dómsmálaráðherra, 15.
október 2004. Skipan hans þótti
umdeild þar sem hann hafði gegnt
trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn og var sagður náinn
samstarfsmaður Davíðs Oddsson-
ar.
Helstu rök fyrir skipan hans
voru nefnd áratugalöng reynsla
hans af málflutningsstörfum en
hann átti farsælan feril að baki
sem lögmaður þegar hann sótti
um embætti dómara. Mörgum
fannst þessi rök léttvæg í saman-
burði við dómarareynslu annarra
umsækjenda í bland við önnur lög-
mannsstörf.
Líkt og í tilfelli Ólafs Barkar
var Jón Steinar ekki sagður hæf-
astur umsækjenda í umsögn dóm-
ara við Hæstarétt. Jón Steinar er
með embættispróf í lögfræði frá
Háskóla Íslands, en hann útskrif-
aðist með meðaleinkunina 13,32
samkvæmt stöðlum sem þá tíðk-
uðust (hæsta einkunn fimmtán).
Að nýju upphófust umræður um
hvort verklagið við skipan hæsta-
réttardómara væri gott eða vont.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra sagði á vefsíðu sinni, bjorn.
is, að skipan Jóns Steinars væri
hvorki umdeild né umræða um
hana „mjög heit eða áköf“. „Fólki
finnst hæstiréttur einfaldlega
hafa gengið of langt í viðleitni
sinni til að binda hendur Geirs H.
Haarde, sem var falið að skipa í
dómaraembættið vegna vanhæfis
míns. Hvað sem öðru líður, nýtur
sú skoðun ekki almenns fylgis, að
hæstaréttardómarar eigi að
ákveða, hverjir taka sæti við hlið
þeirra á dómarabekknum,“ sagði
Björn.
Aðrir umsækjendur voru Allan
Vagn Magnússon, Eggert Óskars-
son, Eiríkur Tómasson, Hjördís
Björk Hákonardóttir, Leó E. Löve
og Stefán Már Stefánsson.
Þorsteinn Davíðsson
var skipaður dómari
við Héraðsdóm
Norðausturlands og
Austurlands frá 1.
janúar síðastliðnum
af Árna M. Mathie-
sen, settum dóms-
málaráðherra. Björn
Bjarnason var ekki
hæfur til þess að
skipa í embættið þar
sem hann var á með-
mælendaskrá Þor-
steins, sem var lengi
aðstoðarmaður hans.
Enn á ný komu
fram ásakanir um að Þorsteinn
hefði verið ráðinn vegna pólit-
ískra tengsla sinna við Sjálfstæð-
isflokkinn en hann er sonur Dav-
íðs Oddssonar.
Dómnefnd sem mat
hæfi umsækjenda
komst að því að þrír
umsækjenda hefðu
verið tveimur hæfis-
flokkum fyrir ofan
Þorstein í mati. Hún
sagði ráðherra aldrei
fyrr hafa gengið með
viðlíka hætti gegn
áliti ráðherra.
Árni hefur vísað
öllum ásökunum um
að Þorsteinn hafi
verið ráðinn vegna
tengsla sinna við
Sjálfstæðisflokkinn á bug. Jafn-
framt sagði hann umsögn og rök-
stuðning dómnefndarinnar ekki
nægilega trausta og um margt
„gallaða“. Fullyrti hann jafnframt
í yfirlýsingu að dómnefndin hefði
sagt að þetta væri í fyrsta sinn
sem gengið væri gegn áliti dóm-
nefndar sem metur hæfi dómara.
Dómnefndin vildi ekki tjá sig um
orð ráðherra, slíkar væru rang-
færslurnar að ekki væri hægt að
„elta ólar við þær“ í fjölmiðlum.
Árni taldi dómnefndina ekki
hafa metið reynslu Þorsteins sem
aðstoðarmanns ráðherra rétt og
gagnrýndi hana harðlega. Sagði
hann nefndina, öðru fremur, hafa
minnkað traust almennings á dóm-
stólunum. Ýmsir settu sig upp á
móti þessu viðhorfi Árna, meðal
annars lögfræðiprófessorinn Sig-
urður Líndal sem taldi Árna hafa
farið gegn verklaginu sem reglur
gerðu ráð fyrir.
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráð-
herra réð Guðna Má Jóhannesson
orkumálastjóra og Ólöfu Ýrr Atla-
dóttur ferðamálastjóra um síðustu
áramót. Ráðning þeirra féll í grýtt-
an jarðveg hjá ýmsum öðrum
umsækjendum sem töldu framhjá
sér gengið. Voru margir fljótir að
álykta sem svo að pólitísk tengsl
Guðna og Ólafar við Samfylking-
una hefðu spilað inn í. Því hefur
Össur neitað alfarið og svarað því
til, í rökstuðningi við fyrirspurnum
annarra umsækjenda, að hæfasta
fólkið hafi verið ráðið. Aðstoðar-
menn fyrrverandi orkumála- og
ferðamálastjóra hafa talið framhjá
sér gengið og telja rökstuðning ráð-
herra ekki nægilega góðan.
Haft hefur verið eftir Ársæli
Harðarsyni, aðstoðarmanni ferða-
málastjóra, í Fréttablaðinu að rök-
stuðningurinn staðfesti að hæfasti
umsækjandinn hafi ekki verið ráð-
inn. Guðni Már hefur um árabil
starfað við verkfræðideild Kon-
unglega háskólans í Stokkhólmi en
hann er með doktorspróf í faginu.
Orkurannsóknir ýmiss konar hafa
verið hans aðalfag og hefur Össur
svarað því til að „yfirburðaþekk-
ing“ Guðna á málaflokknum hafi
skipt mestu máli um að hann hafi
fengið starfið.
„Nú er ekki hægt að kenna Fram-
sóknarflokknum um. Þetta er Sam-
fylkingin,“ sagði Einar Bollason,
framkvæmdastjóri Ís-hesta, um
ráðningu nýs ferðamálastjóra en
hann taldi augljóslega hafa verið
gengið framhjá fólki með reynslu
af markaðsmálum, sem væri það
sem skipti sköpum öðru fremur.
Ólöf Ýrr er líffræðingur að
mennt, með meistarapróf, auk þess
að vera með MPA-próf í stjórn-
sýslufræðum. Össur hefur svarað
því til að jafnréttislög hafi haft
áhrif á það að Ólöf Ýrr varð fyrir
valinu.
FYRSTI DAGURINN Auðun Georg Ólafsson, sem gegndi stöðu fréttastjóra hjá Ríkisútvarpinu í einn dag, sést hér ganga um gólf í útvarpshúsinu. Starfsmennirnir tóku Auðuni Georgi illa. Hann hætti eftir einn dag í starfi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TENGSL VIÐ SAMFYLKINGU EÐA YFIR-
BURÐAÞEKKING
AÐSTOÐARMAÐUR RÁÐINN DÓMARI
VINUR DAVÍÐS ÞÓTTI EKKI HÆFASTUR