Fréttablaðið - 27.01.2008, Blaðsíða 27
ER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR? MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINS
Ljósleiðarasérfræðingur
Leitað er að metnaðarfullum og árangurs-
drifnum einstaklingi til liðs við okkur í
tæknideild Gagnaveitu Reykjavíkur. Tæknideild
sér um tæknilega uppbyggingu, rekstur og
viðhald á gagnaflutningskerfi GR.
Starfssvið
Starfsmaðurinn mun starfa sem sérfræðingur
í ljósleiðarahópi GR sem er í forsvari fyrir:
• Uppbyggingu ljósleiðaranets
• Rekstri ljósleiðaranets
• Línubókhaldi ljósleiðaranets
• Heimlögnum
• Innanhússlögnum
• Verklagsreglum og gæðaskjölum
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf í verkfræði, tæknifræði,
tölvunarfræði eða sambærileg menntun
• Reynsla af lagningu innanhússlagna eða
rafvirkjun/rafeindavirkjun er kostur
• Reynsla af verkefnisstjórnun er kostur
• Góð almenn tæknikunnátta
• Fagleg, markviss og öguð vinnubrögð
Umsjón með starfinu hafa Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Tómas Oddur Hrafnsson
(tomas.hrafnsson@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar nk.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is
Verkefnastjóri
Leitað er að drífandi og metnaðarfullum
einstaklingi til starfa á verkefnastofu
Gagnaveitu Reykjavíkur. Verkefnastofa heyrir
beint undir framkvæmdastjóra og sér um að
leiða stærri framkvæmdaverkefni á borð við
ljósleiðaravæðingu heimila.
Starfssvið
Verkefnastjóri mun stýra fjölda verkefna
tengdum ljósleiðaravæðingu og annarri
starfsemi GR. Í starfinu felst:
• Yfirverkstjórn mannafla verkefnis
• Gerð tíma-, kostnaðar- og forðaáætlana
• Áhættumat og viðbrögð við áhættu
• Upplýsingagjöf til stjórnenda
• Gerð útboðslýsinga og þátttaka í
framkvæmd útboða
• Samningagerð við verktaka
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf æskilegt
• Reynsla af verkefnastjórn nauðsynleg
• Góð almenn tæknikunnátta
• Góð samskiptahæfni
• Góð skipulags- og stjórnunarhæfni
• Fagleg, markviss og öguð vinnubrögð
Um Gagnaveitu Reykjavíkur
Gagnaveita Reykjavíkur, dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur, vinnur að uppbyggingu, þjónustu og rekstri á einu
öflugasta ljósleiðaraneti landsins. Ljósleiðaranet GR nær um allt höfuðborgarsvæðið, til fjölda fyrirtækja og
þúsunda heimila. Einnig nær netið um Vesturland til Bifrastar og um Suðurland til Vestmannaeyja. Um
ljósleiðaranetið rekur Gagnaveitan öflugt dreifi- og samskiptakerfi fyrir sjónvarp, síma og Internet, byggt á
IP/MPLS tækni.