Fréttablaðið - 27.01.2008, Blaðsíða 43
ATVINNA
SUNNUDAGUR 27. janúar 2008 2517
Listahátíð í Reykjavík var stofnuð árið 1970 og
stendur árlega fyrir alþjóðlegri listahátíð.
Aðild að Listahátíð í Reykjavík eiga
menntamálaráðuneyti, Reykjavíkurborg og
fulltrúaráð sem skipað er ýmsum samtökum
listamanna og menningarstofnunum.
Listahátíð í Reykjavík er meðlimur í EFA,
Evrópusamtökum listahátíða
Listrænn stjórnandi
Stjórn Listahátíðar í Reykjavík auglýsir
hér með laust til umsóknar starf
listræns stjórnanda. Listrænn stjórnandi
Listahátíðar í Reykjavík er yfirmaður
stofnunarinnar í fullu starfi og ráðinn af
stjórn hennar til allt að fjögurra ára í
senn. Hann mótar dagskrá hverrar
hátíðar og er ábyrgur fyrir henni gagn-
vart stjórn. Hann leggur fjárhagsáætlun
fyrir stjórn til samþykktar og er ábyrgur
fyrir framkvæmd hennar gagnvart
stjórn. Nýjar samþykktir taka gildi
haustið 2008 og tekur ráðningin mið af
þeim.
Ráðningartími er frá 1. október 2008 en
miðað er við að nýr stjórnandi geti hafið
störf að einhverju leyti fyrr eftir nánara
samkomulagi. Reynsla af listrænu starfi
skilyrði.
Frekari upplýsingar veitir formaður
stjórnar, Ingimundur Sigfússon.
Umsóknir berist formanni stjórnar
Listahátíðar fyrir 15. febrúar n.k. í
pósthólf 88, 121 Reykjavík.
Störf í boði
Fyrir góðan snyrtifræðing og fótaaðgerðafræðing.
Umsóknir berist á: paradis@islandia.is eða í
síma 898-6371 Sigrún.
PricewaterhouseCoopers hf. á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki á sviði endurskoðunar, reikningsskila, fjármálaráðgjafar, skatta- og lögfræðiráðgjafar.
Fyrirtækið er íslenskt en hluti af alþjóðlegri keðju sem er sú stærsta á sínu sviði í heiminum. PwC hefur það að markmiði að tryggja óhæði og trúverðugleika í
störfum sínum og veita ávallt bestu faglegu þjónustu sem völ er á. Aðgengi er tryggt að nýjungum og þróun í þjónustu með markvissu innra starfi , endurmenntun
og þátttöku í alþjóðlegu samstarfi . Sterk staða fyrirtækisins byggist fyrst og fremst á afburða hæfi leikum og reynslu starfsmanna. Mikið er lagt upp úr því að
efl a fólk í starfi og veita því brautargengi innan fyrirtækisins.
*connectedthinking
Vegna aukinna umsvifa viljum við stækka okkar góða starfsmannahóp enn frekar. Við óskum að
ráða löggilta endurskoðendur eða viðskiptafræðinga af endurskoðunarsviði til fjölbreyttra starfa.
Þetta er tækifæri til að starfa í krefjandi og spennandi umhverfi íslensks og alþjóðlegs viðskiptalífs,
með þátttöku í fjölþjóðlegu samstarfi og möguleikum á hluta starfstímans ytra.
Hvaða kröfur gerum við?
Við sækjumst eftir krafmiklu samstarfsfólki, sem langar til að takast á við verðug og gefandi verkefni.
Viðkomandi sækist eftir því að læra enn meira, trúir því að framlag hans/hennar skipti máli og einblínir
á lausnir fremur vandamál.
Reynsla af endurskoðunarverkefnum…
… eða af bókhaldi, uppgjörum, skattaframtalsgerð og tengdum verkefnum
Jákvætt hugarfar og uppörvandi framkoma
Góð samstarfshæfni og vilji til að miðla öðrum
Öguð vinnubrögð og skipulagshæfni
Hvað bjóðum við?
Við bjóðum þér áhugavert starf hjá nútímalegu fyrirtæki sem er hluti af PwC endurskoðunar-
keðjunni, þeirri stærstu á sínu sviði í heiminum. Þú vinnur mikilvæg verk með góðu fólki og við
tökum vel á móti þér.
Góður starfsandi og tækifæri til að vaxa í starfi
Fjölbreytt verkefni þar sem þitt frumkvæði nýtist
Símenntun í alþjóðlegu og lærdómsríku umhverfi
Sveigjanlegur vinnutími og áhersla á hreyfi ngu og heilbrigða lífshætti
Umsóknir
Umsóknir óskast sendar Þórunni Auðunsdóttur, mannauðsstjóra, eða á www.pwc.com/is
fyrir 8. febrúar n.k. Nánari upplýsingar veitir mannauðsstjóri, thorunn.audunsdottir@is.pwc.com
Spennandi tækifæri fyrir endurskoðendur og viðskiptafræðinga
Áhugaverð störf í
alþjóðlegu umhverfi !