Tíminn - 01.07.1981, Page 13
Fylkir sló
Blikana út
® Jóhannes Hjálmarsson kraftlyftingamaður ætlar sér stóra hluti á
HM öldunga i ágúst.
Ljósmynd GK-Akureyri.
Sigradi 1-0 og eru komnir
í 8 liða úrslit
■ ,,Ég er að sjálfsögðu mjög
ánægður með þessi úrslit, að okk-
ur skyldi takast að slá Breiðablik
úr Bikarkeppninni. Blikarnir
byrjuðu með miklum látum i fyrri
hálfleik en ekkert gekk. Ég held
að það hafi verið mistök hjá þeim
að leggja ekki meiri áherslu á
vörnina”, sagði Theódór Guð-
mundsson þjálfari Fylkis. En i
gærkvöldi sigraði Fylkir Breiða-
blik með einu marki gegn engu i
16-iiða úrslitum Bikarkeppni KSÍ
á Laugardalsvellinum.
Blikarnir sóttu mun meira i
fyrri hálfleik og voru þá óheppnir
að skora ekki mark, Fylkismenn
gáfu aldrei þumlung eftir og
börðust eins og ljón. Litlu munaði
að Blikunum tækist að ná foryst-
unni er ögmundur Kristinsson
varði gott skot á 11. min. siðari
hálfleiks.
Mark Fylkis kom á 15. min. sið-
ari hálfleiks. Tekin var horn-
spyrna og upp úr henni skallaði
Gunnar Gunnarsson til Birgis
Þórissonar sem skallaði áfram til
Ömars Egilssonar á markteig og
hann skallaði i markið, sérlega
glæsilegt mark.
Eftir þetta sóttu Blikarnir mik-
ið en Fylkismenn voru ekkert á
þvi að gefa eftir og sigurinn var
þeirra. Blikarnir sitja þvi eftir
með sárt ennið að komast ekki
áfram i Bikarkeppninni, sem á
öllu mátti dæma að þeim hafi
fundist auðvelt fyrir leikinn.
Eins og áður sagði börðust
Fylkismenn mjög vel og þar voru
allir vel með á nótunum. Litil
barátta var i Blikunum það mun-
aði að visu um minna að fyrirlið-
inn Ólafur Björnsson var meiddur
og lék ekki með, en fyrrum at-
vinnumaður Sigurður Grétarsson
lék að nýju með Blikunum en þvi
miður féll á sama plan og aðrir
leikmenn i liðinu.
röp—.
Ekki átaka-
laus sigur
er FH sigradi Árroðarm
2-0 í Bikarnum
■ ,,Það var ekkert vafamál að
ég hélt á boltanum og Pálmi
sparkaði honum úr höndunum á
mér”, sagði Ævar Stefánsson
markvörður Árroöans um fyrsta
mark FH i leik þeirra i 16-liða úr-
slitum Bikarkeppninnar á Lauga-
lansvellinum i gærkvöldi. „Þetta
er tóm della að ég hafi sparkað
boltanum úr hendinni á mark-
verðinum”, sagði Pálmi eftir
ieikinn.
FH sigraði 2-0 i leiknum gegn
Árroðanum en i hálfleik var stað-
an 0-0. Fyrsta mark FH kom ekki
fyrren á 67. min., boltinn vargef-
inn fyrir markið og virtist Ævar
markvörður hafa boltann en svo
var ekki þvi Pálmi Jónsson náði
til hans og skoraði. FH-ingum
tókst ekki að bæta öðru marki við
fyrr en rétt fyrir leikslok, gefin
var sending til Ólafs Danivals-
sonar sem lék á tvo varnarmenn
Arroðans og skoraði auðveldlega.
FH-ingar voru betri aðilinn i
leiknum en þó án þess að skapa
sér nein verulega hættuleg mark-
tækifæri.
Óvist er hvernig leikurinn hefði
þróast ef Árroðanum hefði tekist
að skora úr tækifæri sem þeir
fengu á 38. min. fyrri hálfleiks, en
þá missti Hreggviður markvörð-
ur boltann frá sér en leikmenn
Árroðans náðu ekki tii hans.
Bestu menn Arroðans voru örn
Tryggvason framherji sem sóma
myndi sér i hvaða 1. deildarfélagi
sem væri og þá átti Rúnar Arason
einnig góöan leik. Þrátt fyrir
ósigurinn kom lið Árroðans veru-
lega á óvart með góðri frammi-
stöðu. Hjá FH bar mest á Inga
Birniog Guðmundi Kjartanssyni.
GK—Akureyri.
Næsti heims-
meistari okkar
fslendinga?
— Jóhannes Hjálmarsson kraftlyftinga-
maður á Akureyri hefur verið að lyfta
17,5 kg meira í réttstöðulyftu en
gildandi heimsmet er — hann ætlar sér
stóra hluti á HM öldunga í kraftlyfting-
um sem fram fer í Chicago í ágúst
■ ,,Ég er alveg viss um að ég get
tekið þetta heimsmet hvenær sem
er, það er einungis spurning hvort
ég geri það á Heimsmeistaramót-
inu í Chicago eða hvort sett verð-
ur upp fyrir mig mót hérna heima
áður en ég fer til Chicago” sagöi
Jóhannes Hjálmarsson kraft-
iyftingamaður á Akureyri er
247,5 kg og er þvi ljóst að Jó-
hannes á að geta tekiö þaö hve-
nær sem er. En hvaö segir hann
um sigurmöguleika sina i 100 kg
flokknum á Heimsmeistaramót-.
inu i Chicago.
„Það er ekki alveg á hreinu
hvort ég á möguleika á þvi, ég
þyrfti að fá mót til þess aö sjá ná-
kvæmlega hvernig ég stend aö
vigi i dag. En ég geri mér góðar
vonir um að verða við toppinn á
Heimsmeistaramótinu sem fram
fer i Chicago i byrjun ágústy
sagði Jóhannes.
gk-Akureyri.
Barist í
Bikarnum
Timinn ræddi við hann i vikunni.
Jóhannes er i hópi elstu iþrótta-
manna landsins sem keppa opin-
berlega, sennilega elstur allra,
enda 50 ára að aldri. Hann hóf að
æfa lyftingar i desember 1979, fór
þá með syni sinum á æfingar, en
„smitaðist illilega” og fékk
„bakteriuna” sjálfur.
A sinu fyrsta móti lyfti Jó-
hannes 380 kg, en best á hann nú i
keppni 550 kg. Framfarirnar hafa
þvi verið örar og Jóhannes sem
keppir i 100 kg flokki hefur að
undanförnu veriö að lyfta 265 kg i
réttstöðulyftu sem er ein þriggja
keppnisgreinanna i kraftlyfting-
unum.
Heimsmetið i þeirri grein er
■ Fimmleikireruá dagskrá i 16-
liða Urslitum Bikarkeppni KSl i
kvöld. Eftir þá leiki er aðeins ein-
um leik ólokið en það er viðureign
Þróttar R. og Þróttar Neskaup-
staðar. KA leikur gegn tBV á
Akureyri, Leiftur Ólafsfirði leik-
ur gegn Þór Akureyri «g Skaga-
menn fá V ai enn einu sinni i heim-
sókn upp á Skaga. 2. deildarlið
Keflavikur leikur viö efsta liðið i
1. deild, Viking, og siðasti leikur-
inn er á milli KR og Fram á
Laugardalsvellinum.
Fyrrnefndu félögin eiga heima-
leikina, en allir leikirnir hefjast
kl. 20.
!