Fréttablaðið - 03.02.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 50003. febrúar 2008 — 33. tölublað — 8. árgangur
SUNNUDAGUR
ÍÞRÓTTIR Frá og með keppnistíma-
bilinu 2009 verður knattspyrnu-
félögum í efstu deild karla á
Íslandi gert skylt að láta leikmenn
sína gangast árlega undir ítarlega
læknisskoðun, sem meðal annars
felur í sér hjarta-, æða- og blóð-
rannsókn. Áætlaður kostnaður
skoðunarinnar er um 55 þúsund
krónur á leikmann og því er ljóst
að árlegur kostnaður félaga hér á
landi, sem hafa allt að 30 leik-
menn í sínum hópi, er vel á aðra
milljón króna.
Hinar hertu reglur taka mið af
kröfum Knattspyrnusambands
Evrópu, UEFA, sem vill uppræta
með öllu svokallaðan skyndidauða
knattspyrnumanna sem hefur
aukist á síðustu árum. Í flestum
tilvikum hefur orsök andlátsins
verið leyndur hjartagalli eða
hjartavöðvasjúkdómur sem hefði
líklega verið hægt að koma auga á
með tiltölulega einfaldri hjarta-
skoðun.
Áætlað er að nýjar reglur UEFA
taki gildi frá og með næsta tíma-
bili en KSÍ hefur verið veittur
frestur til 2009 til að finna leiðir
til að lækka kostnaðinn sem þær
hafa í för með sér fyrir félögin.
- vig / sjá Sport í miðju blaðsins
Evrópska knattspyrnusambandið vill koma í veg fyrir skyndidauða leikmanna:
Leikmenn gangist undir hjartaskoðun
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is fylgir með blaðinu í dag
Síðasti dagur!
Opið 13–18 í dag
ALLA SUNNUDAGA
SÍÐUR
20
12
NÝIR ÍSLENDINGAR
Fimm innflytjendur stíga út úr
skugga hversdagsleikans
Jóhann Sigurðarson
ætlaði að hætta í
leiklistinni fyrir tveimur
árum. VIÐTAL 10
Í dag NA-átt um allt land éljagang-
ur norðan og austan til og frost 1-8
stig.
VEÐUR 4
SNÆFELL Í ÚRSLIT
Snæfell komst í úrslit
Lýsingar bikars karla eftir
stórsigur á Njarðvík suður
með sjó. ÍÞRÓTTIR 24
LEIKLISTIN ER
SÁRSAUKAFULL
ANTONIO P
UERTA
MIKLOS FEHER
MARC-VIVIEN FOÉ
20. JÚLÍ 1979 - 25. JANÚAR 2004
25. M
ARS
197
2 - 2
9. D
ESE
MBE
R 20
07 1. MAÍ 1975 - 26. JÚNÍ 2003
PHI
L O’
DON
NEL
L
26. NÓVEMB
ER 1984 - 28
. ÁGÚST 200
7
KNATTSPYRNU
HREYFINGIN L
EITAR LEIÐA
TIL AÐ STÖÐV
A HIÐ VAXAND
I MEIN
KNATTSPYRN
UMANNA
EIÐUR SMÁR
I
MÆLTI MEÐ
HEMMA VIÐ
PP
ÓLAFUR JÓH
ANNESSON
SVARAR ÖÐ
RUVÍSI
SPURNINGU
M
ÞESSI
[ SÉRBLAÐ FRÉ
TTABLAÐSINS
UM ÍÞRÓTTIR
]Sport
febrúar 2008
SKYNDIDAUÐI
FY
LG
IR
Í
D
A
G
V Ð IÐ Í DAG
SAMFÉLAGSMÁL Minnst tuttugu dæmi um
mansal hafa komið upp hér á landi. Margrét
Steinarsdóttir, lögfræðingur í Alþjóðahúsi,
segist hafa hitt minnst átta fórnarlömb síðustu
fjögur árin. Um falið vandamál sé að ræða og
því megi búast við að fórnarlömbin séu enn
fleiri.
Gerð var óformleg könnun á vinnufundi með
fulltrúum frá Stígamótum, Kvennaathvarfinu,
lögreglunni, Alþjóðahúsi, Ríkislögreglustjóra,
Ríkissaksóknara, Félagsþjónustunni og
sjálfstætt starfandi lögmanni og kom þar fram
að flestir fundarmanna höfðu hitt frá sex og
upp í tuttugu fórnarlömb mansals hver. Um
einhverja skörun getur verið að ræða.
Margrét segir að birtingarmynd mansals
geti verið með ýmsum hætti en fórnarlömbin
eigi það öll sameiginlegt að flýja neyð og að
bágar aðstæður þeirra séu misnotaðar. Í
sumum tilvikum komi þau af fúsum og
frjálsum vilja til landsins og gifting sé þeirra
leið til að fá dvalarleyfi. Fórnarlömbunum sé
oft stjórnað, þau ráði ekki yfir launum sínum
og vegabréf hafi verið tekin af þeim.
Innanlandssvið Rauða krossins ætlar að
kanna mansal á Íslandi og stefnir að því að
gera það í samstarfi við stjórnvöld. Helga G.
Halldórsdóttir, sviðsstjóri hjá Rauða krossin-
um, segir að ýmislegt bendi til að mansal
fyrirfinnist á Íslandi eins og í öðrum löndum.
Umfang og eðli verði kannað fyrir árslok og
sett verði upp aðgerðaáætlun um hvernig eigi
að ná til þeirra verst stöddu.
„Við höfum áhuga á að fá mynd af því hvers
eðlis þetta vandamál er og til að komast að því
þurfum við að gera rannsókn. Ef mansal fer
hér fram þá er eðlilegt að við könnum það,“
segir Helga og gerir ráð fyrir að sömu útgáfur
af mansali finnist hér og þekkjast annars
staðar.
Félagsmálaráðherra hefur skipað starfshóp
sem á að fjalla um hvernig megi standa að
gerð og framkvæmd heildstæðrar áætlunar
gegn mansali á Íslandi. ghs@frettabladid.is
Fórnarlömb mansals á Íslandi
Rauði krossinn ætlar að kanna umfang mansals á Íslandi og koma upp aðgerðaáætlun í samstarfi við
félagsmálaráðuneytið. Lögfræðingur Alþjóðahúss segist hafa hitt átta fórnarlömb og telur þau fleiri.
DÝRALÍF Nokkrir Eyjamenn ráku
upp stór augu þegar þeir sáu
fálka gæða sér á fýl nálægt
höfninni um hádegisbilið í gær.
„Fálkinn á það nú til að koma
hingað svona yfir háveturinn og
ná sér í æti,“ segir Kristján
Egilsson, forstöðumaður
Náttúrugripasafns Vestmanna-
eyja. „Það er hins vegar
nýlunda að hann láti sjá sig í
byggðinni eins og hann hefur
gert undanfarið. Það er mjög
gaman að því að koma að honum
þegar hann er með bráð því það
er eins og hann gleymi sér alveg
við átið og menn geta þá nálgast
hann ótrúlega mikið og hann
kippir sér ekkert upp við það
þótt bílar fari hjá í lítilli
fjarlægð.“
Kristján segir það þó alls ekki
hættulaust fálkum að ráðast á
fýl. „Ef fýllinn nær að spúa á
hann þá fer nú klístrið þannig
með vængina hjá honum að
hann verður alveg ófleygur. Við
höfum fengið allnokkra á safnið
okkar sem hafa lent í því,“ segir
hann. - jse
Ósmeykur fálki í Eyjum:
Fékk sér fýl
í hádegisverð
GOTT Í GOGGINN Fálkinn lét hvorki bílaumferð né mannaferðir trufla sig á meðan hann gæddi sér á fýlnum góða. Fálkar leita
oft ætis í Eyjum þegar hungrið sverfur að. MYND/ÓSKAR