Tíminn - 15.09.1981, Qupperneq 16
Þri&judagur 15. september 1981
Reiknistofnun
Háskólans
óskar eftir að ráða starfsmann i vinnslu-
deild sem fyrst. Mjög fjölbreytt starf.
Stúdentspróf eða hliðstæð menntun æski- »
leg.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum
um menntun og fyrri störf sendist fyrir 21.
sept.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður i
sima 25088.
Reiknistofnun Háskólans
Hjarðarhaga 2
Deildarstjóri
Höfum verið beðnir um að auglýsa eftir
deildarstjóra i kaupfélag á Suðvestur-
landi, sem hefði þekkingu á járn- og
byggingavörum.
Umsóknir er greini aldur, menntun og
fyrri störf berist starfsmannastjóra fyrir
21. þ. mánaðar, er veitir nánari upplýsing-
ar.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA
STARFSMANNAHALD
* N* m
III Borgarspítalinn
Læknaritari
Óskum eftir að ráða læknaritara til starfa
nú þegar. Starfsreynsla eða góð vélrit-
unarkunnátta áskilin.
Upplýsingar um starfið veitir Brynjólfur
Jónsson i sima 81200:368.
Reykjavik, 11.09.1981.
BORGARSPÍTALINN
Laust embætti sem forseti tslands veitir
Prófessorsembætti i vefjafræði i læknadeild Háskóla Is-
lands er laust til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um visindastörf um-
sækjenda, ritsmiðar og rannsóknir svo og námsferil og
störf skulu sendar menntamálaráðuneytinu fyrir 10.
október n.k.
Menntamálará&uneytið, 10. september 1981.
Húsbyggjendur
Húsbyggjendum, sem þurfa á rafmagns-
heimtaug i hús sin að halda i haust eða
vetur, er vinsamlega bent á, að sækja um
hana sem allra fyrst, þar sem búast má
við verulegum töfum á lagningu heim-
tauga, þegar frost er komið i jörðu.
Gætið þess, að jarðvegur sé kominn i sem
næst rétta hæð, þar sem heimtaug verður
lögð, og að uppgröftur úr húsgrunni, bygg-
ingarefni eða annað hindri ekki lagningu
hennar.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á
heimtaugaafgreiðslu Rafmagnsveitunn-
ar, Hafnarhúsinu, 4. hæð. Simi 18222.
Kennarar
vantar við Grunnskóla Eskifjarðar.
Upplýsingar gefur Trausti Björnsson i
sima 97-6182, og 97-6340.
Reykjavíkurmótið í handknattleik:
RISLfmi HflND-
KNATTLEIKUR
í UPPHAFI MÖTS
■ Ekki verður sagt að mikil
reisn hafi verið yfir reykvískum
handknattleik nú um helgina,
þegar Reykjavíkurmótiö i hand-
knattleik hófst. Það var ef til vill
ekki viö ööru að búast svona i
upphafi handknattleiksvertiðar,
en þö höfðu menn gert sér vonir
um að sjá heldur rismeiri hand-
knattleik, en þann sem sást á
fjölum Laugardalshallarinnar á
laugardag og sunnudag.
Fyrsti leikur mótsins var á
milli Islandsmeistaranna Vikings
og liðs Fylkis. Má segja aö litið
hafi farið fyrir meistaratöktum
Vlkings i þessum leik, en þeir fóru
með sigur af hólmi, skoruöu 21
mark gegn 18.
Annar leikur mótsins var á
milli Vals og Fram. Valur var
með töglin og hagldirnar framan
af leiknum, en þegar Uða tók á
leikinn þá sóttu Framarar heldur
i sig veðrið, þótt ekki dygði það
þeim til sigurs. Valur sigraði með
25 mörkum gegn 20.
Sföasti leikurinn á laugardag
var á milli KR og Armanns. Svo
þófkenndur var leikur þessara
liöa, að það sem á undan hafði
sést virkaði mun betra i endur-
minningunni. Liðin voru jöfn i
hálfleik, höfðu hvort um sig
skoraö 13 mörk. KR náði i seinni
hálfleik að sýna mun betri leik og
sigraði KR liðiö með 29 mörkum
gegn 22 mörkum Armanns.
Ásunnudagskvöldið var mótinu
svo fram haldið og leiddu þá
saman hesta sina Vikingur og
Valur. Leikurinn var spennandi,
en mjög grófur af beggja hálfu,
enda fengu margir leikmenn að
sjá gula spjaldið og siðan að hvila
sig. Nokkurs ósamræmis gættiþó
i dómum þeirra Stefáns Arnalds-
sonar og Arna Sveinssonar. Kvað
meira að segja svo rammt að
þessu ósamræmi, að Hilmar
Björnsson kom eftir leikinn að
máli við Bogdan, þjálfara
Vikinga og sagöi að viö svo bilið
mætti ekki standa. Sagði að
þjalfarar og dómarar yrðu að
hittast og samræma linurnar i
dómgæslunni fyrir veturinn, og
fær blaðamaður Timans ekki
annað séð en að þessi ósk sé
byggð á raunhæfu mati.
í hálfleik var staðan 9-7 Vikingi
i hag, en Valsarar sóttu i sig
veðriö I siðari hálfleik og jöfnuðu
þegar rúmar 10 minútur voru
liðnar af hálfleiknum. Lyktaði
leiknum með sigri Valsmanna, 18
gegn 17, eftir spennandi en grófan
leik.
Næst léku FramogFylkirog var
útlit fyrir þaö á tima að Fylkis-
menn hygöust taka Framara i
kennslustund i handknattleik, þvi
staðanihálfleik var 17-11, Fylki i
hag. Heldur dró saman með lið-
unum i seinni hálfleik og lauk
leiknum með tveggja marka sigri
Fylkis 29 mörk gegn 27.
Siöasti leikurinn á sunnudags-
kvöldiðvará milli Þröttar og IR.
Skal hér ekki fjölyrtum þann leik
að öðru leyti en þvi að IR fór með
sigur af hólmi. Skoruðu IR-ingar
25 mörk og fengu á sig 21 mark.
Næstu leikir Reykjavikur-
mótsins eru i kvöld i Laugardals-
höll og hefst sá fyrsti, leikur
' Vikings ogFram kl. 19. Aðhonum
loknum leika KR og Þróttur og
siðasti leikur kvöldsins verður á
milli IR og Armanns.
—AB
■ Hér skorar Jón Pétur Jónsson eitt af mörkum sinum fyrir Vai gegn Fram, s.L laugardag.
Timamynd — EHa.
Páll bjargaði Eyja-
mönnum frá stórtapi
þegar Breiðablik vann þá
1:0 á Kópavogsvelli
■ Breiðablik vann sanngjarnan
sigur á Vestmannaeyingum sl.
laugardag á Kópavogsvelli, 1:0,
þegar þessi lið áttust við i siðasta
leik sinum 11. deildarkeppninni i
knattspyrnu. Breiðablik hafnaði
þvi i fjórða sæti i deildarkeppn-
inni að þessu sinni en Vestmanna-
eyingar i þvi sjötta, þegar upp
var staðið.
Það var Páll Pálmason hinn si-
ungiog spræki markvörður Eyja-
manna sem var maður leiksins og
bjargaði hann liði sinu frá stór-
tapi. Ef hans hefði ekki notið við
má búast við að ófarir Vest-
mannaeyinga hefðu orðið miklar,
og meiri en raun varð á.
Leikurinn var nokkuð jafn til að
byrja með. Skiptust liðin á tæki-
færum, en tókst þó ekki að skora.
A 15. min. kom fyrsta og eina
markið i leiknum. Það var þá sem
Helgi Bentsson, einn af hinum
snjöllu og eldfljótu leikmönnum
Blikanna, einlék upp hægri kant-
inn og þaðan inn i vitateig Vest-
mannaeyinga. Skaut hann
snúningsbolta að marki. Páll
Pálma i marki Eyjamanna hefur
greinilega reiknað hann úti, þvi
hann gerði varla tilraun til að
verja knöttinn þegar hann small i
markstönginni fjær og beint inn i
markið. Staðan 1:0.
Eftir þetta tóku Kópavogsmenn
leikinn i sinar hendur, og gilti það
einnig um seinni hálfleik. Mátti
Páll taka á honum stóra sinum,
sem hann og gerði, enda urðu
mörkin ekki fleiri, þrátt fyrir si-
endurteknar sóknarlotur Breiða-
bliks. Það var annaðhvort að Páll
batt enda á sóknarlotur þeirra
með þvi að handsama knöttinn,
eða hitt að Blikunum bar ekki
gæfa til að binda endahnút á
sóknarlotur sinar.
Þetta var þvi skemmtilegur og
fjörlegur leikur, en mörkin voru
alltof fá miðað við gang hans.
—Kás.