Fréttablaðið - 06.02.2008, Blaðsíða 1
Loftið hreinsað | Kaupþing til-
kynnti að hætt hafi verið við yf-
irtöku á hollenska bankanum
NIBC. Þar með er ljóst að ekk-
ert verður úr stærstu yfirtöku Ís-
landssögunnar, sem á sínum tíma
var metin á 270 milljarða króna
Minni hagnaður | Heildarhagn-
aður viðskiptabankanna þriggja,
Glitnis, Kaupþings og Landsbank-
ans, nam 137,6 milljörðum króna
árið 2007 og dróst saman um tæp-
lega nítján prósent milli ára.
69 vikur | Exista á lausafé til
69 vikna samkvæmt Lýði Guð-
mundssyni forstjóra. Hagnaður
félagsins var um fimmtíu millj-
arðar íslenskra króna og jókst um
ríflega þriðjung miðað við árið á
undan.
Mega eiga | Samkeppniseftir-
litið heimilaði Kaupþingi að eign-
ast 49 prósenta hlut í Ekortum, að
uppfylltum skilyrðum. Ekort eru
í eigu SPRON og Kaupþings.
Metútgáfa | Fram kom að út-
gáfa krónubréfa hefði numið 87
milljörðum króna í janúar og
hefði aldrei verið meiri. Alls eru
nú um 382 milljarða krónabréf
útistandandi.
Í endurskoðun | Moody‘s til-
kynnti, í kjölfar þess að ljóst varð
að ekkert yrði af yfirtöku Kaup-
þings á NIBC, að lánshæfisein-
kunnir stóru bankanna þriggja
væru í endurskoðun.
Frístundin
Níu ára á
mótorfáki
126
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 6. febrúar 2008 – 6. tölublað – 4. árgangur
Uppgjör bankanna
Lituð af fjármálakreppu
8-9
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
F R É T T I R V I K U N N A R
Ingimar Karl Helgason
skrifar
„Mikið ber í milli sjónarmiða í málinu,“ segir Finnur
Árnason, framkvæmdastjóri Haga.
Samkvæmt heimildum Markaðarins telur Sam-
keppniseftirlitið að Hagar hafi brotið gegn sam-
keppnislögum árin 2005 og 2006, þegar mjólk var seld
fyrir nánast ekki neitt í verslunum Bónuss. Krónan
fylgdi í kjölfarið og undirverðlagði mjólkina einnig.
Samkeppniseftirlitið ákvað í kjölfar verðstríðs lág-
vöruverðskeðjanna að hefja athugun á matvörumark-
aði. Meðal þess sem eftirlitið hugðist kanna var hvort
aðili á markaðnum væri í ráðandi stöðu.
Eftirlitið telur að brotið hafi verið gegn 11. grein
samkeppnislaganna um misnotkun markaðsráðandi
stöðu.
Samkvæmt skýrslu norrænna samkeppnisyfir-
valda um matvörumarkaðinn höfðu verslanir Haga
47 prósenta markaðshlutdeild um mitt ár 2004; versl-
anir Kaupáss 21 prósent, Verslanir Samkaupa, fjórtán
prósent og aðrir minna.
Samkeppniseftirlitið gerði í haust húsleit hjá Bónus
og Krónunni. Hagar vildu að mál á hendur sér hjá
eftirlitinu yrðu sameinuð. Því var hafnað, en fram
kemur í úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála
að 5. nóvember í fyrra var Högum sent svonefnt and-
mælaskjal vegna meintra samkeppnisbrota, sumar-
ið 2006. Þar segir meðal annars að ætluð brot Haga
kalli á verulega íþyngjandi viðurlög. Samkvæmt við-
urlagakafla samkeppnislaga geta sektir numið allt að
tíu prósentum af heildarveltu síðasta árs.
„Ég er bjartsýnn á að svo verði ekki, enda fyndist
mér það fráleitt,“ segir Finnur Árnason. Hagar hafa
ekki gefið upp veltu Bónuss, en heildarvelta Haga
hleypur á tugum milljarða króna.
„Málið er til meðferðar hér. Við höfum fengið rök-
semdir Haga í hendur,“ segir Páll Gunnar Pálsson,
forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Í andmælaskjalinu
kemur fram að ekki liggi fyrir lokadómur varðandi
ætluð brot Haga í þeim málum sem Samkeppniseftir-
litið hefur til rannsóknar. Eftir því sem næst verður
komist eru hins vegar engin dæmi um að Samkeppn-
iseftirlitið hafi algerlega skipt um skoðun við mót-
töku andmælaskjalsins.
Óvíst er hvenær málinu lýkur. Samkeppniseftir-
litið hóf um mitt ár 2006 rannsókn á íslenskum mat-
vörumarkaði. Þá hafði verðstríð Bónuss og Krónunn-
ar staðið frá árinu á undan. Það birtist meðal annars
í því að mjólkurlítrinn var seldur fyrir nánast ekki
neitt. Sú athugun leiddi til þess að Högum var sent
andmælaskjalið. Fram kemur í starfsreglum Sam-
keppniseftirlitsins að telji það að íþyngjandi ákvörð-
un, þar með talin ákvörðun um stjórnvaldssektir,
kunni að vera tekin, skuli taka saman andmælaskjal.
Þar komi fram atvik málsins og greint frá grunni
þess að tiltekin háttsemi kunni að ganga gegn sam-
keppnislögum.
Sektir vofa yfir Högum
Samkeppniseftirlitið telur að Hagar hafi brotið lög með
skaðlegri undirverðlagningu. Verulega íþyngjandi stjórn-
valdssekt kann að fylgja. „Fráleitt,“ segir forstjóri Haga.
London Acquisition hefur tryggt
sér 99,5 prósenta hlutafjár í hol-
lensku iðnsamstæðunni Stork
N.V. Upp úr miðjum síðasta mán-
uði hafði eignarhaldsfélagið
tryggt sér 98 prósent.
Lokauppgjör vegna útistand-
andi bréfa á að eiga sér stað á
morgun, 6. febrúar, en fyrir hlut-
inn eru greiddar 48,4 evrur. Yfir-
takan er með þeim stærstu í Evr-
ópu frá upphafi lausafjárkrepp-
unnar, upp á 1,7 milljarða evra,
eða sem nemur yfir 160 milljörð-
um króna.
Stork á sér 180 ára sögu í Hol-
landi og eigendahópurinn dreifð-
ur. Því mun óvíst að hafist upp á
þeim 0,5 prósentum hlutafjár sem
út af standa. Sparnaðurinn sem af
því myndi hljótast fyrir kaupend-
ur samstæðunnar gefur nokkra
mynd af stærð yfirtökunnar, því
virði þessa hlutar nemur 807,5
milljónum króna miðað við yfir-
tökuverð Stork.
Að London Acquisition standa
breski fjárfestingarsjóðurinn
Candover með 75 prósenta hlut,
Eyrir Invest með um 15 prósent
og Landsbanki Íslands með tí-
undapart. Eyrir myndi því spara
sér rúmlega 121 milljón króna,
Landsbankinn tæplega 81 millj-
ón og Candover sýnu mest, tæpar
606 milljónir króna.
Yfirtakan bíður enn samþykkis
samkeppnisyfirvalda, en úrskurð-
ar þeirra er vænst í mars. - óká
Yfirtöku á Stork að ljúka í Hollandi
Sparnaður af týndum bréfum gæti numið rúmum 800 milljónum króna.
Tíma - og verkskráning
Flotastýring og eftirlit
www.trackwell.com
Kaupþing og NIBC
Risasamruninn
sem aldrei varð
„Það var ákveðið á stjórnar-
fundi í nóvember að stofna sér-
stakt fyrirtæki um túlkaþjónust-
una,“ segir Einar Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðahúss.
Samkeppniseftirlitið hefur
ákvarðað, í kjölfar kvörtunar
frá Skjali þýðingarstofu, að Al-
þjóðahús verði að skilja túlka-
þjónustu frá öðrum rekstri. Hann
fái opinber framlög en þessi hluti
starfseminnar sé í samkeppni við
einkaaðila.
Einar Skúlason segir að túlka-
þjónustan hafi áður verið aðskil-
in frá annarri starfsemi í bók-
haldinu, þótt reksturinn hafi
verið á sömu kennitölu. - óká
Breyting hjá
Alþjóðahúsi
EINAR SKÚLASON Búnir að stofna sér-
stakt fyrirtæki um túlkaþjónustuna.
MARKAÐURINN/GVA