Fréttablaðið - 06.02.2008, Side 6
MARKAÐURINN 6. FEBRÚAR 2008 MIÐVIKUDAGUR6
F R É T T A S K Ý R I N G
F
yrir röskri viku var til-
kynnt að ekkert yrði af
kaupum Kaupþings á hol-
lenska bankanum NIBC.
Með tilkynningu Kaup-
þings þess efnis var bundinn endi
á margra mánaða óvissuástand
vegna þessara „stærstu fyrir-
tækjakaupa“ Íslandssögunnar.
Kaup Kaupþings á NIBC
voru opinberuð á blaðamanna-
fundi í Amsterdam fimmtudag-
inn 15. ágúst síðastliðinn, rétt í
þann mund þegar fyrstu merkja
undirlánakrísunnar svokölluðu
hafði orðið vart.
Kaupverð NIBC var rétt tæp-
lega þrír milljarðar evra, eða um
270 milljarðar króna á þávirði,
um áttatíu milljörðum króna
meira en Novator greiddi fyrir
alla hluti í Actavis.
NIBC er í eigu fjárfestahóps,
undir forystu fjárfestingasjóðs-
ins JC Flowers. Til stóð að kaup-
verðið yrði greitt að fjörutíu og
sex prósenta hlut með útgáfu
hlutabréfa í Kaupþingi til selj-
enda, en eftirstöðvarnar í reiðu-
fé; sem afla átti með útgáfu víkj-
andi skuldabréfa og forgangs-
réttarútboðs sem fara átti fram á
fyrsta ársfjórðungi nýhafins árs.
NIBC varð fyrir talsverð-
um skakkaföllum vegna kaupa
á bandarískum undirmálsbréf-
um og tapaði um tólf milljörðum
króna vegna slíkra bréfa á fyrri
árshelmingi 2007. Hagnaður
fyrirtækisins á því tímabili dróst
saman um níutíu og átta prósent
og nam einungis 270 milljónum
króna.
KÆNSKA KAUPÞINGSMANNA
Yfirtakan var talin styrkja
stoðir Kaupþings sem leiðandi
fyrirtækja- og fjárfestingabanka
í Evrópu til muna. Sérstaklega
var farið yfir það á fundinum
í Amsterdam að með samrun-
anum við NIBC myndu tekjur
Kaupþings dreifast meira land-
fræðilega og bankinn yrði síður
háður Íslandi og Norðurlöndun-
um. Framvegis myndi fjórðungur
tekna bankans skapast í Benelux-
löndunum og vægi Íslands færi
úr þriðjungi af heildartekjum og
niður í fjórðung.
Það þótti enn fremur til marks
um kænsku Kaupþingsmanna að
húsnæðisskuldabréfavafning-
ar NIBC fylgdu ekki í kaupun-
um og voru þess í stað seldir
félagi í eigu seljenda fyrir um
36 milljarða króna. Kaupþings-
menn lánuðu reyndar um fimmt-
án milljarða króna í það verk-
efni, gegn veði í öllum undirliggj-
andi eignum hins nýja félags.
Þessi samningur stendur, þrátt
fyrir að yfirtakan hafi verið blás-
in af, og þiggja Kaupþingsmenn
reglulegar afborganir af láninu.
JC Flowers er sennilega stærsti
fjárfestir í fjármálafyrirtækj-
um í heiminum og töluðu Kaup-
þingsmenn fjálglega um þvílík-
ur fengur yrði af þeim inn í hlut-
hafahópinn. Meðal meðfjárfesta
JC Flowers voru stór nöfn á borð
við ABN Amro, AIG, Bank of
America, Credit Suisse og JP
Morgan „Við erum ekki bara að
fá JC Flowers inn í hluthafa-
hópinn, heldur einnig tíu af tut-
tugu stærstu fjármálastofnunum
heimsins í dag,“ sagði Hreiðar
Már Sigurðsson, forstjóri Kaup-
þings, á fundinum í Amsterdam.
Vindar á fjármálamörkuðum
reyndust hins vegar ekki hag-
stæðir til stórra viðskipta. Gengi
Kaupþings hríðféll í Kauphöll Ís-
lands, fjármögnun varð dýrari
en góðu hófi gegnir og brátt var
farið að tala um lausafjárkrísu
á mörkuðum. Raddir gerðust
sífellt háværari um að Kaupþing
hefði hreinlega ekki bolmagn til
að ganga frá kaupunum. Trygg-
ingaálag á skuldabréf Kaup-
þings rauk í kjölfarið upp í áður
óþekktar hæðir, og fór á tímabili
yfir fimm hundruð punkta.
HVÍSLAÐ Á MARKAÐI
Frá áramótum gengu ýmsar
sögur um hvort yrði af samrun-
anum stóra; ein útgáfan gekk
út á að Fjármálaeftirlitið myndi
hafna samrunanum og önnur
sagði að yfirtökunni yrði hrein-
lega snúið við. NIBC tæki þá
Kaupþing yfir, og höfuðstöðvar
hins sameinaða banka yrði í
Hollandi, Evrópski seðlabankinn
yrði bakhjarlinn og uppgjör yrði
vandræðalaust fært í evrum.
Snöggur endir var hins vegar
bundinn á þessar bollalegging-
ar með tilkynningu um að ekkert
yrði af samrunanum á miðviku-
daginn í síðustu viku. Tilkynn-
ingin var send út áður en Fjár-
málaeftirlitið hafði skilað áliti
sínu um yfirtökuna, en ákvörðun
FME hefði að öllu eðlilegu legið
fyrir áður en Kaupþing birti upp-
gjör sitt á fimmtudag í síðustu
viku.
Tilkynningin hafði áhrif
bæði hér og í Hollandi. Michael
Enthoven, forstjóri NIBC, sagði
starfi sínu lausu eftir birtingu á
uppgjöri bankans. Slíkt hið sama
gerði Jörgen Stegman, fram-
kvæmdastjóri áhættustýring-
ar. Bankinn skilaði 2,5 milljarða
hagnaði á síðasta ári.
Kaupþingsmenn segjast hins
vegar ætla að einbeita sér
að innri vexti. Hreiðar Már
Sigurðsson, forstjóri Kaupþings,
sagði mikilvægt að loftið hefði
verið hreinsað og óvissu eytt,
og ítrekaði að Kaupþing bæri
ekki fjárhagslegan skaða af ferl-
inu. „Þetta var sameiginleg nið-
urstaða. Skynsamleg ákvörðun
í ljósi aðstæðna.“ Ljóst er að
markaðir voru á sama máli, enda
lækkaði skuldatryggingaálag
á bréf Kaupþings um leið og
ákvörðunin var tilkynnt.
Risasamruninn sem aldrei varð
Yfirtaka Kaupþings á NIBC var metin á 270 milljarða króna. Kaupþingsmenn þóttu á sínum tíma sýna mikla kænsku með því
að skilja bandaríska skuldabréfavafninga NIBC frá kaupunum. Undirmálskrísan reyndist hins vegar dýpri en flesta hafði grunað
og þrengingar á fjármálamörkuðum urðu á endanum til þess að horfið var frá kaupunum. Jón Skaftason lítur til baka.
HREIÐAR MÁR SIGURÐSSON
FORSTJÓRI KAUPÞINGS Kynnir
kaupin á NIBC-bankanum í Hollandi
15. júlí 2007.
15. ágúst
Tilkynnt um væntanlegan sam-
runa Kaupþings og NIBC, sem
metinn er á 270 milljarða króna.
Gengi Kaupþings stendur í 1.101
krónu.
22. nóvember
NIBC birtir níu mánaða uppgjör
sitt. Hagnaður nemur sex millj-
örðum króna og dregst saman
um 66 prósent frá fyrra ári.
Gengi Kaupþings stendur í 899
krónum.
27. nóvember
Kaupþing tilkynnir að fjár-
mögnun kaupanna sé lokið.
Skuldatryggingaálag bankans
lækkar í kjölfarið og stendur í
275 punktum. Gengi Kaupþings
stendur í 922 krónum.
28. desember
Síðasti viðskiptadagur ársins
2007. Gengi Kaupþings stendur í
880 krónum.
17. janúar
Fréttir birtast af því að yfirtök-
unni verði snúið við. NIBC taki
yfir Kaupþing og höfuðstöðvar
hins sameinaða banka verði
í Hollandi. Gengi Kaupþings
stendur í 751 krónu.
28. janúar
Fréttir birtast í breskum fjöl-
miðlum um að FME muni hafna
samrunanum. Gengi Kaupþings
stendur í 718 krónum.
30. janúar
Tilkynnt að hætt verði við sam-
runann. Álit FME hefur þá enn
ekki birst. Gengi Kaupþings
stendur í 771 krónu.
31. janúar
Kaupþing birtir uppgjör ársins
2007. Hagnaður nam sjötíu millj-
örðum króna. NIBC birtir upp-
gjör sitt og Michael Enthoven
segir starfi sínu lausu í kjölfarið.
Gengi Kaupþings stendur í 755
krónum.
4. febrúar
Gengi Kaupþings stendur í 774
krónum.
„Þetta er gott fyrir okkur og aðra hluthafa Kaupþings.“
- Ravi Sinha, framkvæmdastjóri JC Flowers, um samrunann. 15. ágúst 2007.
„Þetta er frábær fjárfesting, ekki bara fyrir Kaupþing heldur
einnig NIBC.“
- Hreiðar Már Sigurðsson, 15. ágúst 2007.
„Við sjáum nú bara þá umræðu sem nú er í gangi vegna
ástandsins á bandaríska húsnæðislánamarkaðnum. Svona
umræða skýtur alltaf upp kollinum annað slagið.“
- Michael Enthoven, forstjóri NIBC, um neikvæða umfjöllun erlendis
um íslenska bankakerfið. 29. ágúst 2007.
„Við töldum okkur hafa keypt skuldabréf með AAA-einkunn.“
- Enthoven um fjárfestingar NIBC á bandarískum húsnæðisskuldabréfum. 29. ágúst 2007.
„Þeir litu á okkar kjarnastarfsemi og létu ekki skammtíma-
sveiflur á markaði byrgja sér sýn.“
- Enthoven hrósar Kaupþingsmönnum fyrir að hafa séð skóginn fyrir trjánum. 29. ágúst 2007.
„Þetta var sameiginleg niðurstaða. Skynsamleg ákvörðun í
ljósi aðstæðna.“
- Hreiðar Már eftir að ljóst var að ekkert yrði af samrunanum. 31. janúar 2008.
H V A Ð S Ö G Ð U Þ E I R ?
MICHAEL ENTHOVEN, FRÁFAR-
ANDI FORSTJÓRI NIBC.
NÝTT ELDHÚS
MEÐ BREYTTUM
ÁHERSLUM
Bergstaðastræti 37 s. 552 5700 holt@holt.is www.holt.is